Golf á Íslandi - 01.12.2014, Page 56
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
56
Hólmfríður: „Ég fann það strax að þetta
var pútterinn, Scotty Cameron 5R. Þetta var
fyrsti pútterinn sem ég prófaði og hann fékk
fullt hús stiga hjá mér. Þessi pútter er ekki
ósvipaður þeim sem ég nota í dag – ég er
með Odyssey og ég er hrifnari af stærri haus-
unum. Ég hef aldrei átt Scotty Cameron og ef
maðurinn minn er að lesa þetta þá væri þetta
tilvalin jólagjöf. Útlitið skiptir miklu máli,
hann verður að virka fyrir augun annars fer
hann að trufla mig. Þetta er kylfan sem við
notum mest og það er eins gott að hann virki
vel fyrir augað. Ég æfi púttin töluvert yfir
vetrartímann með börnunum mínum í pútt-
mótaröð hjá GKG.“
Gressi: „Mér fannst Scotty Cameron 5R
pútterinn bera af þessum fimm. Scotty
X pútterinn var einnig góður. Þyngdin í
þessum pútterum er svipuð og er í þeim sem
ég nota og eflaust hefur það mikið að segja.
Pútterinn er mikivægasta kylfan í pokanum
– við endum hverja holu með þessari kylfu
þannig að við þurfum að vera sátt við þessa
kylfu. Ég æfi mig aðeins í púttunum áður en
ég fer að keppa en annars er ég ekki duglegur
að æfa mig. “
Grímur: „Mér fannst báðir Scotty Cameron
pútterarnir sem ég prófaði góðir en ég er
sammála Hólmfríði með að þetta er besti
pútterinn, Scotty Cameron 5R. Pútterinn
sem ég er með í pokanum er Cleveland
og hann er nokkuð frábrugðin þessum 5R
týpunni frá Scotty. Ég átti einu sinni Scotty
Cameron en við vorum ekki í góðu sam-
bandi. Ég fer kannski að gefa honum tæki-
færi á ný. Valið á pútter snýst oft um trú á
þeirri kylfu sem maður velur að nota. Maður
þarf að geta treyst kylfunni en útlitið er ekki
aðalmálið fyrir mig.“
Helgi: „Ég er sjálfur með Ping Anser en
það kom mér á óvart hve langt hann var frá
hinum pútterunum sem ég prófaði í dag.
Það sem mér fannst
sérstakt við Scotty
Cameron pútterana
var þyngdin í skaftinu.
Ég er ekki vanur því
en það vandist vel og
ég kunni vel við það.
Útlitið skiptir eflaust
máli en það á ekki að
gera það - það skiptir
meira máli hvernig
hann virkar. Ég er
ekki nógu duglegur að
æfa mig í púttunum
þrátt fyrir að ég viti að
þar getur maður bætt
skorið mikið.“
Um pútterana
Scotty Cameron Futura X5R 56 stig
Það er áratugur frá því að Futura línan
var kynnt fyrst. Hönnunin var „út fyrir
kassann“ hugsun á þeim tíma sem hefur
verið bætt enn frekar með þessari útfærslu.
Stöðugleiki og öryggi einkennir hönnunina
en þynging er í endanum á gripinu til þess
að líkja eftir „löngu“ skafti sem verður brátt
bannvara.
Scotty Cameron Futura X™ 49 stig
Adam Scott kom að því að hanna pútterinn
sem á að taka við löngu pútterunum sem
verða bannaðir frá árinu 2016. Stöðugleiki
er einkennisorðið sem notað er um pútt-
erinn sem er með 50 gramma þyngingu í
endanum á gripinu sem á að gefa svipaða
tilfinningu og fylgir því að pútta með löngu
skafti.
Odyssey Tank Cruiser #1 44 stig
Það eru þyngingar í botni púttersins sem
hægt er að stilla en jafnvægið í blaðinu
er einstakt. Nokkuð hefðbundið útlit en
áferðin er „silkimjúk“ og útkoman einni.
Ping Karsten TR 38 stig
Einn af fimm vinsælustu pútterum Ping
frá upphafi. Það er hægt að fá mismunandi
dýpt á raufunum í höggfletinum sem gefur
aukna tilfinningu í lengdar- og hrað-
astjórnun. Koparliturinn hefur verið „ein-
kenni“ Ping allt frá því að Anser pútterinn
kom fyrst fram á sjónarsviðið.
Mizuno 90 T02 31 stig
Það sem einkennir pútterinn er að tvær
línur eru notaðar sem mið fyrir kylfinginn.
Samkvæmt rannsóknum þá á auga áhuga-
kylfingsins að nema betur þetta mið en
hefðbundin lína sem er yfirleitt notuð.
Línurnar eiga líka að stuðla að því að
kylfingar pútti „beint“ í átt að skotmarkinu.
„Ég var búinn að spá því að Scotty Cameron Futura X5R yrði
efstur í þessu prófi. Það sem einkennir pútterinn er að hann er ekki
með neitt framan á höggfletinum til þess að „dempa“ höggið líkt
og á mörgum öðrum pútterum. Það er gott jafnvægi í pútternum
og góð tilfinning sem fylgir því að standa yfir boltanum á flötinni
með þessa græju í höndunum,“ sagði Þorsteinn Hallgrímsson,
golfsérfræðingur í Hole In One.
Þorsteinn segir að á undanförnum tveimur árum hafi Odyssey nr.
7 verið vinsælasti pútterinn í verslun Hole In One en margir aðrir
pútterar hafi einnig notið vinsælda - þar á meðal Ping og að sjálf-
sögðu Scotty Cameron.
ÞAÐ ER GÓÐ TILFINNING Í ÞESSUM PÚTTER
Fjórmenningarnir gáfu pútter-
unum einkunn frá 1 og upp í 5.
Hér er Gressi að skrá hjá sér.
Hólmfríður, Grímur og Helgi á pútt-
flötinni í Laugardalshöllinni.
HIN 4 FRÆKNU PÚTTA
1. 4.
3.
5.
2.