Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 72
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
72
Árlega koma flestir stærstu golf-
kylfuframleiðendur með fjölda
af nýjum dræverum. Sumir er
með allt að níu nýjar gerðir á einu ári, en
einhverjir þó ekki með nýjungar nema á
nokkurra ára fresti. Með hverri uppfærslu
lofa öll þessi fyrirtæki að með nýju kylf-
unum muni kylfingar slá beinna, stöðugar
og aðallega lengra. Langmesta áherslan er
lögð á að lofa aukinni högglengd, enda eru
allir kylfingar til í að slá lengra.
Ástæðurnar sem gefnar eru upp af
hverju kylfingar eiga eftir að slá lengra
eru fjölmargar. Kylfuhausarnir eru ýmist
straumlínulagaðri, með massamiðjuna
(„center of gravity“) á öðrum stað sem
á að hækka boltaflug og minnka spuna,
léttari kylfur, sjáanlegir vasar sem auka
fjöðrun, þynnri og „heitari“ höggflötur,
betri sköft , ný og betri efni í kylfuhaus-
unum, yfir hundrað mismunandi stillingar,
betri orkuflutningur o.s.frv. Sumir fram-
leiðendur virðast jafnvel farnir í hringi með
breytingarnar. Eitt árið gera þeir kassa-
lagaða drævera til að ná þyngdinni aftar og
á jaðarinn til að auka hverfitregðu en næst
setja þeir þyngdarskrúfur í miðjan kylfu-
hausinn til að færa massamiðjuna nær
höggfletinum til að minnka spuna. Eitt árið
stækka þeir kylfuhausana í hámarksstærð en
svo koma þeir með minni og svo má áfram
telja.
Þetta er svo allt saman vel markaðsett með
grípandi orðum og auglýsingum. Gjarnan
má sjá orð eins og „speed“, „hot“, „energy“
og „lower spin“. Bestu kylfingar heims tala
svo um hvað þeir slá mikið lengra og beinna
með nýjustu græjunum og það eru jafnvel
gerð „fyrir og eftir“ auglýsingamyndbönd
sem sýna tölur úr mæligræjum og hvað þeir
standa sig mikið betur með nýrri kylfum.
En þá er það spurningin, er þetta satt eða
er þetta sölumennska? Slá bestu kylfingar
heims lengra með þessum kylfum og munt
þú slá lengra með nýjum dræver? Kíkjum
fyrst aðeins á hvað COR er áður en við
svörum þeim spurningum.
Hvað er COR?
COR er skammstöfun fyrir „coefficient
of restitution“. Þetta hugtak mætti kalla
endurkastsstuðul á íslensku og er oft nefnt
fyrir mistúlkun „trampolínáhrif “. Þetta er
mælieining á hversu mikil hreyfiorka tapast
þegar tveir hlutir rekast saman. Mælingin
gæti verið 0.0 ef öll hreyfiorka tapast eða
1.0 ef engin hreyfiorka tapast. Dæmi um 0.0
árekstur væri ef þú hentir tyggjói í vegg, það
festist við vegginn og hreyfist ekki, þá hefur
öll hreyfiorka tapast. Dæmi um COR sem er
nánast 1.0, er þegar þú skýtur kúlu í billiard
beint í aðra kúlu af sömu stærð og massa.
Þá algjörlega stöðvast kúlan sem þú skaust
í með kjuðanum, en hin kúlan fer af stað á
næstum sama hraða.
Þegar kylfuhausar fóru að stækka ört
frá 1991 fór málmurinn í þeim að verða
þynnri og höggflöturinn fór þá að sveigjast
við snertingu( „impact“). Því meira sem
höggflöturinn sveigist, því minna kremst
golfboltinn og þetta leiðir til hærri endur-
kastsstuðuls. Ástæðan er að það tapast mikið
meiri orka þegar golfboltinn kremst heldur
en þegar höggflöturinn svignar. Árið
2003 voru sett mörk á hversu hátt
COR kylfuhaus má vera og
tóku þau líka gildi á PGA
mótaröðinni. Mörkin
voru sett í .83 COR.
Fyrst voru þessi
mörk sett á kylfur
með undir 15°
fláa, en seinna
voru þau sett á
allar golfkylfur.
Þetta þýðir að
ef golfbolta væri
skotið á kyrrstæðan
höggflöt á golfkylfu
á 100 km/klst hraða,
þá mætti boltinn ekki
koma til baka á meira en
83km/klst hraða.
Til að átta sig betur á hvað COR
getur skipt miklu máli er hér dæmi til
að gefa viðmið. Gamlir stál- eða tré-dræ-
verar sem voru ekki sérstaklega hannaðir
með þunnan höggflöt eru með COR í mesta
lagi .78. Ef kylfingur sem slær rúmlega 200m
af teig með nútímadræver með .83 COR
myndi nota slíkan dræver, þá myndi hann
slá boltanum rúmlega 10 m styttra í flugi en
hann er vanur. Þeir sem slá lengra væru að
tapa enn meiri lengd með gamla.
Muntu slá lengra með nýjum dræver?
Hér fyrir ofan sést súlurit yfir meðalhögg-
lengd á PGA mótaröðinni frá 1993 til lok
tímabilsins 2014. Eins og sjá má þá rýkur
lengdin upp á þeim tíma sem hausarnir voru
að stækka og COR var að aukast. Árið 2003
voru flestir framleiðendur búnir að ná COR
hámarki á miðjum höggfletinum. Meðal-
lengdin árið 2003 var 262 metrar og núna
árið 2014 var hún 264 metrar. Atvinnu-
mennirnir á PGA mótaröðinni hafa bætt sig
um heila 2 metra á síðustu 11 árum. Hank
Kuehne á enn metið yfir heilt tímabil sem
var 293,9 metrar árið 2003. Mesta meðal-
lengdin var árið 2011 266 metrar, 2 m lengra
en í dag árið 2014. Kylfuhraðinn á PGA
mótaröðinni mælist 0,6 mph hraðari nú í
ár en frá því það var hann var fyrst mældur
með radar 2007, en það þýðir aukna högg-
lengd upp á 1,5 m að öllu öðru jöfnu.
Það þarf ekki að rýna lengi í þetta súlurit
til að sjá að það er ekki jafn mikil bylting í
högglengd með hverri kynslóð af driverum
eins og margir vilja halda fram. Það hefur
SANNLEIKURINN
UM ÞRÓUN DRÆVERA
www.ricedream.eu
Möndlumjólkina má nota
á sama hátt og mjólk:
á uppáhalds morgunkornið,
í te eða kaffi, sem hressandi
kældan drykk og jafnvel
í bakstur og matargerð.
Njóttu góðrar heilsu