Golf á Íslandi - 01.12.2014, Blaðsíða 74
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
74
þó á þessu tímabili orðið framför í fyrir-
gefningu á dræverum sem myndi skila sér í
meiri meðallengd hjá flestum kylfingum og
þá helst hjá þeim sem lakari eru. Með reglum
um hámark á hverfitregðu („MOI“) er búið
að mestu leyti setja þak á það líka.
Öll mæld meðaltöl hafa vikmörk og það er
eðlilegt að sjá meðaltölin fara örlítið upp og
niður. Meðallengd teighögga á atvinnumóta-
röðum er þar engin undantekning. Það er
ljóst að dræverarnir hættu að mestu, ef ekki
öllu leyti, að lengja teighögg atvinnumanna
árið 2003. Þeir hafa mun meiri kylfuhraða
heldur en flestir kylfingar og myndu þeir
sjá talsvert meiri bætingar í högglengd með
breyttum spuna eða COR heldur en aðrir
kylfingar með minni sveifluhraða. Stað-
reyndin er augljóslega sú að ef þú hittir
boltann á miðjan höggflötinn með dræver
sem var gerður árið 2003 og dræver sem þú
keyptir í dag og allt annað væri eins, þá væri
sáralítill eða enginn munur á högglengdinni.
Tölurnar ljúga ekki og með öllum þeim
framförum sem eiga að hafa átt sér stað í
kylfuhausum, boltum, sköftum og líkamlegu
atgervi þá slá kylfingarnir á PGA móta-
röðinni ekki nema 2 metrum lengra í dag en
árið 2003.
Hvað þýðir þetta?
Það er óþarfi fyrir kylfinga að eltast sífellt við
nýjustu „byltinguna“ í dræverum, hvort sem
hún er auglýst á nokkurra ára fresti eða oft á
ári. Loforðin frá markaðsdeildunum eru ein-
faldlega ekki sannleikanum samkvæm. Það
sem er mikilvægast er hvort kylfan hentar
þér og þinni sveiflu. Þau atriði sem skipta
mestu máli eru t.d. lengd, þyngd og jafnvægi
kylfunnar, flái og afstaða höggflatarins („face
angle“), þykkt gripsins, stífleiki og þyngd
skaftsins o.s.frv. Ef eitthvað við núverandi
dræverinn þinn passar ekki fyrir þig og
þína sveiflu, þá slærðu hvorki eins langt og
þú getur né spilar af hámarks getu. Ef þau
eru hins vegar öll rétt, þá er engin ástæða
til að skipta kylfunni út. Til að lækka for-
gjöfina væri peningunum mikið betur varið
í kennslu hjá góðum golfkennara heldur en í
árlega áskrift af nýjustu afurð markaðsdeilda
golfkylfuframleiðenda.
Birgir Vestmar Björnsson
Golfkylfusmiður
www.golfkylfur.is
„Tölurnar ljúga ekki og
með öllum þeim fram-
förum sem eiga að hafa
átt sér stað í kylfuhaus-
um, boltum, sköftum
og líkamlegu atgervi þá
slá kylfingarnir á PGA
mótaröðinni ekki nema
2 metrum lengra í dag
en árið 2003“
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
47
FlugFélag Íslands mælir með þvÍ að leika golf í sumar-
blíðunni. Með því að nýta þér þjónustu okkar geturðu fjölgað góðu dögunum.
Við mælum með því að taka hring á Jaðarsvelli á Akureyri, Tungudalsvelli á
Ísafirði, Ekkjufellsvelli á Egilsstöðum eða Grafarholtsvelli í Reykjavík.
Bókaðu núna á flugfelag.is eða hafðu samband í síma 570 3030
flugfelag.isBÆTTu fORgJÖfiNa MeÐ OKKuR
HOluR uM allT laND
IS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
F
LU
6
38
31
0
4/
13
paNTaÐu í Dag
eKKi á MORguN
á flugfelag.is
sláÐu Til
Tíaðu upp og
faRsíMavefuR: m.flugfelag.is viNguMsT: facebook.com/flugfelag.islands
L-staða
Hægri handleggur og kylfan
mynda aftur bókstafinn L undir
lok sveiflunnar. Brjóstkassinn
snýr að skotmarkinu.
Lokastaða
Eftir að höggið ríður af
hljóðna fuglarnir augnablik og
eftirvæntingin hangir í loftinu.
pútta
Í huga púttarans er jörðin flöt
en kúlan hnöttótt. Málið er
að láta kúluna snúast frekar
en að slá hana. Ýttu henni
í átt að holunni því hvernig
sem jarðkúlan snýst þá er það
tæknin sem gildir.
akureyri
Þeir sem hafa leikið golf á Jaðarsvelli
vita að þar er betra að slá styttra en
of langt. Júnínóttin á holu þrjú er rétti
staðurinn til að æfa sig í að hafa augun
á kúlunni. Þú gætir blindast um stund
af miðnætursólinni ef þú lítur upp.
upphafsstaða
Handleggir beinir og bakið.
Axlabil á milli fóta. Rassinn
út og hnén eilítið bogin líkt
og maður sitji á barstól.
egiLsstaðir
Skömmu eftir að þú lendir á
Egilsstöðum gæti kúlan þín lent á
mishæðóttum brautum Ekkjufells-
vallar. Ef þú þarft að slá kúlu sem
er aðeins upp í móti þá er þjóðráð
að auka bilið milli fótanna þar til
æskilegri stöðu er náð.
pútta
Hafðu minna bil á milli
fótanna þegar þú púttar.
Augun á boltanum. Nánar
tiltekið, hafðu vinstra
augað beint yfir kúlunni.
L-staða
Vinstri handleggur og kylfa eiga
að mynda bókstafinn L áður en
höggið ríður af. Taktu flugið,
taktu þér stöðu og njóttu þess
að leika golf um allt land.