Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 82
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
82
áskorun fyrir mig að komast í samkeppnis-
hæft umhverfi með nýjum áskorunum. Það
er nauðsynlegt að víkka sjóndeildarhringinn.
Mitt starf gengur út á að halda utan um
kennsluþáttinn á öllum sviðum og undir
mínum hatti verða nokkrir golfkennarar.
Það er markmiðið að setja upp aðlaðandi
umhverfi fyrir atvinnukylfinga á þessu svæði
– þeir myndu þá greiða fyrir þá aðstöðu
sem þeir nýta sér. Það er allt til alls þarna,
aðstaða, útbúnaður og sérþekking. Það sem
verður mitt fyrsta verk er að búa til „æfinga-
pakka“ sem hentar fyrir börn og unglinga.
Það er mikil eftirspurn á Berlínarsvæðinu
að golfklúbbarnir bjóði upp á fagmannlegt
og uppbyggilegt starf fyrir yngri kynslóðina.
Það er ekki mikið af góðum kostum í boði og
eigendur klúbbsins vilja feta þessa leið. Það
voru 54.000 hringir spilaðir á þessum velli
í fyrra sem er með því mesta í Þýskalandi.
Völlurinn er opinn 12 mánuði á ári. Það
eru 600.000 íbúar í 20 mínútna fjarlægð frá
vellinum og í 30 mínútna fjarlægð er íbúa-
fjöldinn 1,2 milljónir. Þetta eru því stærðir
sem við þekkjum ekki á Íslandi.“
Eins og áður segir hefur Brynjar starfað hjá
GR í tæplega átta ár og hefur hann átt góðar
stundir með keppnisfólkinu. „Það verður
erfitt að yfirgefa GR. Það hefur gengið vel
að undanförnu og það er bjart framundan
hjá klúbbnum. Það hefur verið gott að vinna
hjá GR, sem er stór klúbbur með stórt og
gott bakland. Ef ég lít yfir síðustu tíu ár hér
á Íslandi þá erum við að taka framförum
á afrekssviðinu. Þeim fjölgar sem komast
inn á efri stigin á úrtökumótunum, bæði í
karla- og kvennaflokki. Landsliðsmálin eru
betri en áður þrátt fyrir að menn séu alltaf að
gagnrýna það. Það eru fullt af góðum hlutum
sem hafa verið gerðir hérna á landi og við
eigum að vera stolt af því. Það hefur verið
gríðarleg framför hjá flestum klúbbum hvað
varðar fagmennsku í þjálfun – sérstaklega á
síðustu 10 árum eftir að PGA kennurum fór
að fjölga. „Leikmaðurinn er samt sem áður
alltaf sá sem hefur valdið hvort hann leggi
það á sig að komast í fremstu röð.“
Brynjar var fljótur að svara þegar
hann var inntur eftir því hvað stæði
helst upp úr hjá honum hjá GR.
„Margir Íslandsmeistarar hjá konunum.
Langþráður Íslandsmeistaratitill í karla-
flokki árið 2012. Annað sætið á Evrópumóti
klúbba í karlaflokki var einnig eftirminnilegt.
Þar vorum við hársbreidd frá því að loka
því móti sem fram fór í Portúgal. Sveita-
keppnirnar hafa einnig verið eftirminnilegar,
sigruðum þrjú ár í röð með konunum og tvö
ár í röð með körlunum. Það hefur verið smá
niðursveifla síðustu tvö árin miðað við þær
væntingar sem gerðar voru – en framtíðin
er björt hjá GR. Ef barna- og unglingastarfið
er að skila 2-3 samkeppnishæfum meistara-
flokkskylfingum á hverju ári þá er það góð
niðurstaða. Ég er viss um að það verður
raunin á næstu misserum. Stærsti hlutinn af
þeim sem ná árangri hérna heima eru þeir
sem æfa mest og leggja mest á sig. Það má
aldrei gleymast. Alveg sama hve þjálfarinn
góður, þá gerast hlutirnir ekki af sjálfu sér.
Hugarfarsþjálfunin er það sem við þurfum
að laga mest í okkar þjálfun. Að börn og
unglingar sjái að fyrir sér að komast í hóp
þeirra allra bestu. Þar er verk að vinna,“
sagði Brynjar Eldon Geirsson.
Brynjar og Ólafur Már Sigurðsson
en þeir hafa rekið Bása í mörg ár.
Traustsins
verðir
Vörður nýtur trausts hjá öflugum íslenskum fyrirtækjum og stofnunum.
Áhersla okkar á einföld og þægileg viðskipti er nokkuð sem fyrirtæki af
öllum stærðum og gerðum kunna að meta.
Hafðu samband og fáðu tilboð í tryggingar þíns fyrirtækis.
VIÐ VILJUM KYNNAST ÞÍNU FYRIRTÆKI BETUR
Við stöndum vörð
um öflug fyrirtæki
RÚV
Til að tryggja landsmönnum
fréttir, skemmtun og fróðleik
þarf fjölda starfsmanna,
tæknibúnað og húsnæði.
Hér er góður staður
fyrir þitt fyrirtæki
Brim
Þrír afkastamiklir frystitogarar
og öflugt starfslið tryggja
Íslendingum hærri útflutnings-
tekjur af gæðahráefni.
Atlantsolía
Með 19 sjálfsafgreiðslu-
stöðvum, birgðastöð og
fjórum olíubílum er hægt að
tryggja aukna samkeppni á
eldsneytismarkaði á Íslandi.
Landsbankinn
Stærsta fjármálafyrirtæki á
Íslandi með víðtækasta útibúa-
netið tryggir trausta og alhliða
fjármálaþjónustu um allt land.
Marel
Eitt af stærstu útflutnings-
fyrirtækjum Íslands tryggir
markaðnum hugvitsamlegar
lausnir til vinnslu matvæla.
Isavia
Það þarf mikil umsvif til
að tryggja öryggi á öllum
flugvöllum landsins og sjá
um nærri 5,5 milljóna km²
flugstjórnarsvæði.
Landsvirkjun
Stærsta fyrirtæki landsins í
orkuvinnslu vinnur 73% allrar
raforku innanlands til að tryggja
fólki og fyrirtækjum rafmagn.
Össur
Rannsóknir og nýsköpun
styrkja stoðir atvinnulífsins með
framleiðslu sem tryggir að fólk
geti staðið á eigin fótum.
Þökkum fyrir skemmtilegar
golfstundir á árinu.
Sjáumst hress á nýju golfári.
LIFANDI GOLFSÍÐA
ALLA DAGA ÁRSINS!