Golf á Íslandi - 01.12.2014, Page 84
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
84
Forskot er sjóður sem styður við efnilega íslenska kylfinga.
Eimskip, Valitor, Icelandair Group og Íslandsbanki stofnuðu sjóðinn
ásamt Golfsambandi Íslands árið 2012. Markmiðið er að styrkja
framúrskarandi kylfinga sem eru að taka sín fyrstu skref út
í heim atvinnumennskunnar og stefna á að komast í fremstu röð.
Fáðu forskot
á mótherjana
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
STUTTA SPILIÐ
Vipp og fleyghögg (pitch) með Ívari Haukssyni PGA golfkennara
Það er aldrei of seint að bæta sig í stutta spilinu því
það er jú einn stærsti hlutinn af leiknum, ekki satt.
Eflaust kunna þetta margir eða alla vega halda
það en það eru líka margir sem ekki eru með
þessi högg á hreinu né hvernig á að framkvæma
þau. Í þessum pistli ætla ég að kenna ykkur á ein-
faldan hátt framkvæmd þessara högga.
Vipp, fleyghögg (pitch), glompuhögg og pútt eru
högg sem tilheyra stutta spilinu. Vipp og fleyg-
högg virðast í fljótu bragði vera svipuð í fram-
kvæmd en þau eru talsvert ólík og í þessari grein
ætlum við að taka fyrir vipp og fleyghögg.
VIPPHÖGG
Vipp eru högg sem slegin eru í flatarkanti um það bil 5 metra frá og eru notaðar mismunandi kylfur við þessar
lengdir. Einnig skiptir máli hvar flaggstöngin er staðsett og hvaða kylfur eru notaðar. Til að ná bestum árangri
er þumalputtareglan þessi: Minna boltaflug - minni áhætta. Nota kylfur með minni fláa og rúlla boltanum
inn að stönginni. Hitt er auðvitað hægt að gera, nota fleygjárnin og slá hærra högg með minna rúlli en það
er erfiðara og meiri líkur á mistökum. Ég persónulega nota alltaf 7-járn þegar ég er í flatarkanti og hef mikið
svæði til að vinna með. Eftir því sem ég er lengra frá og þarf að lyfta boltanum meira tek ég kylfur með hærri
númerum, 8-9-járn og síðan fleygjárnin. Sandjárnið er síðan flott þegar maður þarf að lyfta boltanum mikið og
láta hann stoppa snöggt. Allt snýst þetta um áhættuþáttinn. Miklu meiri líkur eru á mistökum með kylfur sem
geta lyft boltanum meira en hinar með minni fláa. Gott er að hafa í huga að þegar flötin hallar niður á við notar
maður frekar kylfu með meiri fláa og svo öfugt þegar maður þarf að koma boltanum upp flötina.
Fyrst er farið fyrir aftan boltann til að taka miðið um það bil 30-40 cm
framan við boltann í sömu stefnu og þú vilt slá boltann. Við stöndum í
örlítilli opinni stöðu með fætur saman með litlu millibili til að koma í veg
fyrir hreyfingu á okkur sjálfum og til að auðvelda framsveifluna, þyngdin
örlítið meiri á vinstri fætinum allan tímann, ekkert vagg frama og til baka
með mjöðmum. Við höldum aðeins neðar á gripinu til að hafa meira vald
á kylfunni og til að koma í veg fyrir úlnliðahreyfinu, þá höldum við aðeins
fastar um kylfuna. Hér er nánast eingöngu axlahreyfing, fram og til baka.
Höfuðið þarf að vera beint yfir boltanum og hendur aðeins framan við
boltann, setja kylfuna fyrst framan við vinstra lærið, grípa um kylfuna og
hafa hana hornrétta við höggstefnu áður en þú grípur um kylfuna. Þegar
uppstillingin er klár þá erum við búin að mynda stafinn „y“ með kylfu
handleggjum og öxlum. Þessari stöðu þurfum við að halda allan tímann í
högginu. Sveifla svo fram og aftur. Þegar við endum höggið þá á kylfu-
hausinn að vera tiltölulega nálægt sláttusvæðinu og skaftið á að vísa að
jörðinni, ekki fram á við eftir að höggið hefur verið framkvæmt.
Ívar Hauksson og
Antonio Solano
framkvæmdastóri
golfvallarins fyrir
framan Inter-
continental Hótelið
á Mar Menor Golf
Resortinu þar sem
Ívar kennir. Hann
hefur verið með golf-
ferðir fyrir Íslendinga
að undanförnu á
Mar Menor Golf
Resortið og mun gera
það áfram.
„Y“
staðan er
í gegnum
alla
sveifluna.