Golf á Íslandi - 01.12.2014, Síða 90
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
90
Darren Clarke var ekki kátur þegar
hann sá mynd af sér á Dunhill
Links meistaramótinu í fyrra. „Ég
hugsaði með mér...dj...er ég feitur,“ segir
Clarke þegar hann rifjar þetta upp.
Nokkrum dögum síðar byrjaði hann í
æfingum hjá Jamie Myerscough, vinsælum
einkaþjálfara í Dublin. Eftir nokkra mánuði
var Clarke búinn að léttast um meira en 12
kíló; eftir níu mánuði lýsti hann því yfir að
meira en 24 kíló væru horfin, vöðvar væru
komnir í staðinn og hann væri kominn í
miklu betra form, bæði líkamlega og and-
lega. Við ákváðum að biðja Myerscough að
upplýsa hvernig þeir fóru að þessu.
Hver voru markmið Darrens í upphafi?
Það var þrennt sem hann vildi; grenna sig,
bæta líkamsástand, einbeitingu og vöðva-
styrk og svo að ná betri heilsu.
Hvernig áætlun settuð þið upp?
Við byrjuðum á því að breyta mataræðinu
hjá honum, til að minnka sykurneyslu, því ég
vissi að svona breyting myndi lækka insúlín-
magnið í blóðinu. Það er lykilforsenda fyrir
því að léttast, því insúlínið er hormón sem
segir líkamanum að geyma fitu. Ég sagði
honum að hætta að einbeita sér að þol-
þjálfun og byrja á alhliða líkamsrækt, þar á
meðal að lyfta þungum lóðum í 20 mínútur
á dag, fjórum til fimm sinum í viku. Darren
tekur þetta skipulega; hann einbeitir sér einn
daginn að neðri hluta líkamans, næsta dag
að brjóstvöðvum og baki, og þriðja daginn
að handleggjum og öxlum til dæmis.
Bara 20 mínútur á dag?
Ef þú ert með gott skipulag þá duga 20
mínútur fyllilega til að ná markmiðinu. Ég
mæli heldur ekki með því að kylfingar geri of
mikið af þolþjálfun. Í fyrsta lagi skapar slík
þjálfun misvægi milli vöðvahópa, í öðru lagi
hafa rannsóknir sýnt fram á að sá líkams-
massi sem hverfur við þolþjálfun kemur
að mestu leyti til vegna minnkandi vöðva-
massa og það er ekki gott fyrir kylfinga, því
minni vöðvamassi þýðir minni styrkur. Auk
þess er erfiðara að búa til kraft og hægja á
meltingunni.
Hvaða líkamshluta ættu kylfingar
að einbeita sér að?
Miðhluti líkamans (core) þarf að vera
sterkur, en ef ég ætti að velja einn líkams-
hluta fram yfir annan, þá væru það fæturnir.
Darren gerir réttstöðulyftur og hnébeygjur
(squats and deadlifts), og ég veit að Justin
Rose talar líka um gagnsemi þeirra. Báðar
þessar æfingar eru góðar fyrir kylfinga, því
með þeim byggir maður upp styrk í öllum
líkamanum, en þó sérstaklega í lærvöðvum,
rassinum og mjöðmunum, þaðan sem
krafturinn í sveiflunni kemur.
Rory McIlroy hefur greinilega verið
að byggja upp handleggsvöðvana.
Ættum við að gera það líka?
Já og nei. Það er mikilvægt að hafa styrk í
framhandleggjum til að geta slegið fast niður
á bolta sem situr í háu grasi. En ég mæli
hins vegar ekki með því að fá of stóra fremri
upphandleggsvöðva (biceps), því ef þeir eru
of sterkir, þá halda þeir aftur af þríhöfðanum
aftan á handleggnum (triceps). Þetta skiptir
ekki svo miklu máli í öðrum íþróttagreinum,
en í golfi er það þríhöfðinn sem réttir hand-
leggina þegar kylfan kemur í boltann. Þess
vegna reyni ég að fá mína kúnna til að leggja
meiri áherslu á aftari handleggsvöðvana.
Hraðinn á snúningi mjaðmanna hefur
áhrif á kraftinn í sveiflunni, er það ekki?
Hvernig æfir maður þetta?
Teygjubönd eru góð leið til þess. Darren
festir einn enda teygjubands í hurðarhún
til dæmis, heldur í hinn endann og tekur
æfingasveiflu. Mótstaðan í teygjubandinu
eykur snúningsstyrkinn og þar með kraftinn
í gegnum sveifluna.
Hvaða önnur ráð áttu fyrir áhugakylfinga
sem vilja grennast og slá boltann lengra?
Þeir ættu að líta réttum augum á leikfimi
fyrir kylfinga. Margir virðast halda að gott
líkamsform felist í því að geta hlaupið fimm
kílómetra, en það segir ekki alla söguna.
Gott líkamsform fer eftir æfingunum sem
maður gerir; það að vera í góðu golfformi
snýst um að geta tekið þrjátíu til fimmtíu
góðar sveiflur í hverjum golfhring.
Segðu okkur að lokum eitthvað um
æfingar sem fáir kylfingar vita.
Karlmenn sem eru orðnir eldri en 27 ára, og
konur sem eru eldri en 25 ára tapa um það
bil 250 grömmum af vöðvamassa á hverju
ári. Það virkar ekki mikið, en ef ekkert er
gert til að vega á móti þessu, þá eru 47 ára
gamall karlmaður og 45 ára gömul kona
búin að tapa fimm
kílóum af vöðvamassa
á tuttugu árum. Þegar
maður gerir sér grein
fyrir þessu er auðvelt
að skilja hvers vegna
eldra fólk slær styttra
og hvers vegna það
er svo mikilvægt
að stunda styrktar-
þjálfun til að vinna
gegn þessari þróun.
Einkaþjálfari Darrens gefur góð ráð
ÉG KOM
DARREN
CLARKE
Í GOTT
FORM
Hér fór Gunnar holu í höggi árið 2004. Eitt fullkomið högg.
En það var ekkert vitni. Í 6 ár með upptökuvél og þolinmæðina
að vopni hefur Gunnar mætt reglulega á völlinn.
Nú vantar bara annað fullkomið högg.
ÞOLINMÆÐI
BRUGGMEISTARA OKKAR SKILAR SÉR TIL ÞÍN.
A L C . V O L .
2.25%
W O R L D ’ S B E S T S T A N D A R D L A G E R
O K K A R B J Ó R