Golf á Íslandi - 01.12.2014, Qupperneq 94
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
94
varð síðan einn sá vinsælasti sem settur hafði
verið á markaðinn.
Pelz ræddi ferilinn og rannsóknir sínar við
Tony Dear, blaðamann Golf World, sem
heimsótti hann til Austin í Texas, þar sem
Pelz er með æfingabúðir sínar.
Hvernig myndir þú lýsa þinni nálgun
að golfkennslu?
Dave Pelz: Margir golfkennarar leiðbeina
nemendum sínum út frá því að þeir eigi að
vera með eina sveiflu sem virkar á öll högg.
Ég er ósammála því. Ég segi að það séu
þrjár sveiflur eða þrír hlutar af leiknum sem
útheimta mismunandi aðgerðir. Við erum
með kraftmiklu sveifluna þegar við erum
að reyna að koma boltanum eins langt og
við getum. Við erum með stutta spilið þar
sem allt gengur út á að stjórna lengdinni
sem boltinn fer í hvert skipti, og síðan erum
við með púttstrokuna sem útheimtir nánast
engan kraft. Mismunandi kröfur þýða ólíkar
aðferðir.
Hvaðan koma áhrifavaldar þínir?
DP: Eðlisfræðikennarinn minn í Indiana
sagði mér að ef ég vildi þoka einhverjum
fræðum áfram, þá ætti ég ekki að lesa
kennslubækurnar, heldur hugsa sjálfstætt
og láta ekki kreddur og venjur hafa áhrif á
mig. Mínar aðferðir grundvallast auðvitað
á vísindalegri hugsun og aðferðafræði, en
líka á tilraunum; á þessu byggjast mínar
kennsluaðferðir.
Er stutta spilið flókið – og ertu
kannski ennþá að uppgötva nýja hluti?
DP: Sveiflan í stutta spilinu er mun auð-
veldari en í kraftmiklum höggum. Maður
þarf ekki eins mikinn liðleika eða styrk til að
slá högg með fleygjárni eins og með drífara.
Á hinn bóginn eru höggin mun fjölbreytt-
ari, þannig að þótt kröfurnar beinist ekki
að líkamlegri getu, þá þarf hugmyndaflugið
og hugsunin á bak við höggin að vera í lagi.
Hitt svarið er já, ég er ennþá að læra eitthvað
nýtt, því þessi grein kemur manni alltaf
á óvart. Ég er orðinn 74 ára gamall og er
nánast á hverjum degi að uppgötva nýja hluti
um stutta spilið.
Hvað er það nýjasta?
DP: Núna er ég að reyna að þróa tækni til að
slá mjög stutt högg með miklum spuna. Ég
er ekki búinn að ná þessu ennþá, en færist
nær takmarkinu með hverjum degi sem
líður.
Hvað er það mikilvægasta
í stutta spilinu?
DP: Vel útfærð sveifla með 8-járni leiðir
venjulega til þess að maður slær gott högg
með 8-járni. Í stutta spilinu getur þú slegið
höggið nákvæmlega eins og þú ætlaðir, en
ef þú klikkar á því að meta rétt legu boltans,
eða lendingarstaðinn á flötinni til dæmis, þá
er allt eins mögulegt að höggið verði lélegt.
Þú verður að æfa þessa hluti; hvernig boltinn
bregst við á flötinni, högg frá mismunandi
legum, mismunandi boltaflug...
Hver er versta klisjan í golfkennslu?
DP: Ég held að hugmyndin um „góðar
hendur“ sé stórlega ofmetin. Ef fólk sér
kylfing sem er góður í stutta spilinu; kylfing
eins og Phil Mickelson eða Seve Balleste-
ros, þá er alltaf talað um að þeir hafi góðar
hendur. En meðalskussar í golfi eru með
sveiflu sem byggist allt of mikið á hreyfingu
handanna og verða þess vegna aldrei góðir í
stutta spilinu.
Hvaðan kemur þetta sem
kylfingar kalla tilfinningu?
DP: Góð tilfinning fyrir höggum kemur
að stórum hluta frá því að kenna heilanum
hvað muni gerast, áður en það gerist, og
líka frá því að losa sig við miklar hreyfingar
handanna. Adrenalínið í líkömum okkar
hefur áhrif á hendur og fingur í sveiflunni og
verður þannig að breytu sem afar erfitt er að
hafa stjórn á. Til að þróa tilfinningu þarftu
að æfa höggin nógu oft til að vita hvað muni
gerast. Það getur þýtt að maður slái eitthvað
högg 20 þúsund sinnum. Sumir fá þessa
tilfinningu í vöggugjöf og hafa minna fyrir
þessu, en í öllum tilvikum útheimtir það
mikla vinnu að öðlast góða tilfinningu.
Hversu mikilvægt er að beita öllum
líkamanum í stutta spilinu?
DP: Það er ekki eins mikilvægt og í fullri
sveiflu, en þó mikilvægara en margir telja.
Fyrir hundrað metra högg er mikilvægt að
samhæfa snúning handa og skrokks; þetta
högg er ekki framkvæmt með höndunum
einum.
Er eitthvað eitt sem er öðru fremur
mikilvægt fyrir stutta spilið?
DP: Að hafa hæfileikann til að taka réttu
æfingasveifluna fyrir viðkomandi högg, og
geta síðan endurtekið þá sveiflu þegar mikið
liggur við.