Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 100

Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 100
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is 100 eiga sér stað í þeim 30 sveitarfélögum sem SNAG er að festa rætur. Oft er samvinna á milli golfklúbbs, skóla og sveitarfélags sem stuðlar að samnýtingu búnaðar og kennslu fyrir mismunandi hópa í viðkomandi sam- félagi. Golfbúnaðurinn er þá oft staðsettur í íþróttahúsi staðarins svo auðvelt sé að nýta búnaðinn fyrir æfingar kylfinga, aldraðra, fatlaðra, leikskólabarna og fleiri hópa í samfélaginu auk notkunar í íþróttakennslu skólans. SNAG - Hið nýja skólagolf Í þeim skólum sem SNAG er komið inn í íþróttakennslu kynnast börnin golfi á skemmtilegan og öruggan hátt um leið og þau læra grunnhreyfingar golfsins. Þá kynn- ast börn golfi á sama máta og þau kynnast öðrum íþróttum í skólanum. Með SNAG búnaðinum geta þau einnig leikið sér á skóla- lóðinni eða í nánasta umhverfi sínu eins og þau leika sér í fótbolta eða öðrum íþróttum. Grunnþekking barnanna á golfi er því komin á sama tíma og grunnþekking þeirra á öðrum íþróttum. Þetta leiðir til þess að golfið verður fyrr valmöguleiki fleiri barna þegar þau velja sér íþrótt til að stunda. „Mitt mat er það að SNAG búnaðirinn er framúrskarandi vel hannaður og hugsaður til að gera golf að hættulausum og stór- skemmtilegum leik fyrir börn ásamt því að kenna undirstöðuatriðin í alvöru golfi. Ásamt því sem búnaðinum fylgja mislitar keilur sem hægt er að útbúa golfbrautir úr og um leið kenna reglurnar“. „SNAG bætti ekki bara golfkennsluna hjá mér heldur bætti þetta líka vipp tæknina hjá mér persónulega“. „Búnaðurinn er sérlega handhægur og vandaður í alla staði. Kennarinn er fljótur að setja upp þau verkefni sem ætlað er að fara í og fljótur að taka saman og ganga frá að tíma loknum“. „Krakkarnir urðu strax agaðri og tileinkuðu sér fljótar góða tækni“. „Okkur í golfklúbbnum hérna datt ekki í hug að við gætum verið með golfæfingar yfir vetrartímann fyrr en við kynntumst SNAG“. „Þetta er miklu skemmtilegra en ég hélt og ég þarf ekki einu sinni að fara út á golfvöll til að æfa mig“. „Rútínan mín er orðin miklu markvissari vegna þess að ég skil mikið betur til hvers ég er að nota hana“. „Ég lagði mikla áherslu á að tala við börnin í fáum og skýrum orðum og vera alltaf í augnhæð við þau við kennslu. Góður agi er öryggismál og því þarf að gæta að því sleppa þeim aldrei lausum með kylfurnar heldur alltaf að láta þau leggja þær inní hringinn að höggi loknu“. „Er búin að vera með fólk á öllum aldri og líka barn með á einhverfurófi. Þetta hentar öllum, góð samhæfing huga og handar hjá eldri borgurum og börnum með ADHD“. „Það er einfaldara að kenna grunnat- riði golfsins, s.s. grip, uppstillingu og mið í SNAGi heldur en í venjulegum búnaði“. „Það er auðveldara fyrir nemandann að fara inn í endurtekningarferli sem festir hlutina sem hann var að læra, grip, uppstillingu og mið“. „Stutta spilið mitt er orðið einfalt eftir að ég lærði SNAG“. SNAG leiðbeinendur hafa meðal annars kennt golf í leikskólum, íþróttakennslu í grunnskólum, valáföngum á unglingastigi og sem íþróttagrein á framhaldsskólastigi. Þeir miðla þekkingu og reynslu sín á milli og til nýrra leiðbeinenda í tengslaneti SNAG leið- beinenda. Hissa ehf. hefur leitt þróunina með SNAG leiðbeinendunum og þeim stofnunum sem þeir tilheyra í samvinnu við Golfsam- bandið, Kylfing, Golfklúbbinn Keili og golf- kennaraskólann. Hægt er að fá meiri upplýsingar um SNAG á Íslandi á heimasíðunni www.snaggolf.is og á Facebook síðunni „SNAG golf Island.“ UMMÆLI UM SNAG: Verðandi Snag leiðbeinendur námskeiði hjá Magnúsi Birgissyni í Hraunkoti. Eldri borgarar geta farið í Snag á elliheimilunum. Verslanir á Laugavegi 182 og í Smáralind · sími 512 1300 · epli.is Studio 2.0 Verð frá..- Njóttu tónlistarinnar í ró og næði með ANC tækninni (Adaptive Noise Canceling) frá Beats. Þegar þú hlustar á tónlist þá útilokar ANC-tæknin umhverfishljóð eftir mismunandi hávaða og aðstæðum í umhverfinu. Litir °°°° Solo2 Verð..- Solo2 heyrnartólin eru kraftmikil, tær og færa þig nær þeim gæðum sem tónlistarmaðurinn vill að þú upplifir. Litir °° UrBeats Verð..- UrBeats In-Ear heyrnartól, fást í iPhone litunum. Litir °°°
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.