Golf á Íslandi - 01.12.2014, Page 104
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
104
Hver er ástæðan fyrir að
þú hófst að leika golf?
„Ég veit það ekki alveg, enginn í fjöl-
skyldunni spilaði golf þannig að þetta voru
ekki áhrif frá fjölskyldunni eða vinum. Var
í ferðalagi með mömmu minni þegar ég
var 2-3 ára og þar sem við vorum var mini
golfvöllur sem við gengum fram hjá honum
nokkrum sinnum á dag. Alltaf þegar við
gengum fram hjá honum byrjaði ég að væla
vegna þess að mig langaði svo mikið að
prófa. Mamma gafst upp einn daginn og
leyfði mér að prófa þó að kylfan væri tvisvar
sinnum stærri en ég. Ég mætti svo á mína
fyrstu æfingu 6 ára og eftir það var ekki aftur
snúið.“
Hvað er það sem heillar þig við golf?
„Hversu krefjandi þessi íþrótt er, að það sé
allt undir sjálfum þér komið, útiveran og
ýmislegt fleira.“
Hverjir eru þínir
framtíðardraumar í golfinu?
„Þeir sömu og flestra held ég, fara í háskóla-
golfið og reyna að komast eins langt og ég
get.“
Hefur þú verið að bæta þig mikið í golfinu
á undanförnum árum?
„Já, alveg helling.“
Hver er þinn helsti kostur og galli
í golfinu og hvers vegna?
„Mínir helstu kostir eru líklega þeir að ég fæ
mikið af fuglum og gefst ekki auðveldlega
upp. Mínir helstu gallar eru að ég fæ allt of
mikið af sprengjum og skapið getur eyðilagt,
það hefur þó verið að batna mikið.“
Hvað ætlar þú að bæta í þínum
leik fyrir næsta sumar?
„Reyni auðvitað að bæta allt, stefni á að
verða mikið stöðugri, fækka lélegu högg-
unum sem enda í vítum. Var með allt af
mikið af skrömbum sem eyðilögðu annars
mjög góða hringi þannig að ég stefni á að
fækka þeim.“
Hvert er eftirminnilegasta atvikið sem þú
manst eftir úr golfi?
„Þegar ég fór holu í höggi í fyrsta skipti 2009
og að verða klúbbmeistari GA í sumar.“
Hvað er það vandræðalegasta sem
þú hefur lent í á golfvellinum?
„Þegar ég var að keppa á stigamóti í Leir-
dalnum 2011 lenti ég í því að fá 14 högg á
3. holuna. Tók örugglega svona 40 mínútur
að spila þessa holu og hollið á undan
mér ábyggilega komið á 6. holu þegar við
komumst inn á flötina.“
Hverjir eru uppáhalds
kylfingarnir og af hverju?
Tiger út af öllu sem hann hefur afrekað.
Arnold Palmer og Jack Nicklaus út af öllu
sem þeir hafa gert fyrir íþróttina. Adam Scott
og Louis Oosthuizen af því að þeir eru með
fallegustu sveiflur sem ég hef séð.“
Í hvaða skóla ertu og
hvernig gengur í náminu?
„MA, upp og niður bara.“
Hvað æfir þú mikið yfir vetrartímann?
„Eins mikið og ég get, hef ekki verið nógu
duglegur undanfarna tvo vetur en ætla að
bæta mig í því í vetur.“
Hver er uppáhalds
golfvöllurinn og hvers vegna?
Af þeim sem ég hef spilað er Arcos Gardens
í uppáhaldi, án efa flottasti völlur sem ég
hef komið á. Líka skemmtilega krefjandi að
pútta á flötunum þar vegna þess að þar er
bermúdagras. Af völlunum hér heima eru
Oddurinn, Korpan og Jaðar í uppáhaldi,
finnst þeir mjög flottir. Finnst breytingarnar
á Korpunni og Jaðri hafa komið vel út og
gert vellina skemmtilegri.“
Hvaða þrjár golfholur á Íslandi eru í sér-
stöku uppáhaldi hjá þér?
„Bergvíkin í Leirunni, 17. í Vestmannaeyjum
og 18. á Hellishólum, skemmtileg risk/
reward hola, hægt að reyna við grínið í teig-
högginu eða leggja upp og eiga þá skemmti-
legt pitch eftir.“
Hvaða golfhola á Íslandi er ekki
í sérstöku uppáhaldi hjá þér?
„3. holan í Leirdalnum, finnst hún ekki
skemmtileg.“
Hvaða fjórir kylfingar skipa
draumaráshópinn að þér meðtöldum?
„Tumi Kúld, tattúið hans er ómótstæðilegt,
Tiger og Bubba“
Hver eru helstu áhugamál fyrir utan golf?
„Blak“
Staðreyndir:
Nafn: Ævarr Freyr Birgisson.
Aldur: 18.
Klúbbur: GA.
Forgjöf: 2,8.
Uppáhalds matur: Pasta.
Uppáhalds drykkur: Vatn.
Uppáhalds kylfa: 54° gráðu fleygjárnið.
Ég hlusta á: Allt sem mér finnst gott, Pink
Floyd er uppáhalds.
Besta skor: Í móti er það -1 (70 högg) á
Jaðri.
Rory McIlroy eða Tiger Woods?
Tiger þegar honum gengur vel, annars
Rory svona heilt yfir.
Evrópu- eða PGA-mótaröðin?
Finnst gaman að horfa á báðar og langar
að komast á báðar. Get varla valið, þær eru
svo ólíkar.
Besta vefsíðan: Facebook,
YouTube og Kylfingur.
Besta blaðið: Golf á Íslandi.
Besta bókin: Les ekki mikið en af þeim
sem ég hef lesið er Hobbitinn ofarlega á
þessum lista.
Besta bíómyndin: Pulp Fiction.
Hvað óttastu mest í golfinu?
Veit það ekki alveg, líklega að klúðra
góðum hringjum eða mótum
á lokasprettinum.
Golfpokinn:
Dræver: Titleist 913D2 9,5°
Brautartré: Titleist 913F 15°
Járn: Titleist 714 CB 3-5 járn, MB 7-9
járn.
Fleygjárn: Vokey 48°, 54° og 60°.
Pútter: Scotty Cameron Studio Select
Newport 2.
Hanski: FootJoy, Asher.
Skór: Adidas Tour 360.
Bolti: Titleist ProV1 eða ProV1x,
fer eftir aðstæðum.
„KLÚBBMEISTARA-
TITILLINN Í GA
EFTIRMINNILEGASTUR“
UNGUR OG EFNILEGUR
Ævarr Freyr Birgisson