Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 112
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
112
eftir að hafa hampað Rauðvínskönnunni. „Ég
þarf ekki að hugsa um að í hverju móti sé
ég að verja sætið. Það er vissulega heiður að
vera í efsta sæti styrkleikalistans, en maður
þarf bara að hugsa um að spila eins vel og
maður getur, ekki að einblína á röðina á
þessum lista.“
McIlroy hefur einstakan hæfileika til að láta
afrek líta út eins og daglegt brauð á golfvell-
inum og menn taka eftir því sjálfsöryggi sem
einkennir framkomu hans. Jack Nicklaus
nefndi þetta í sumar. „He´s cocky in a nice
way,“ sagði Jack, og náði þannig fullkomlega
að grípa áruna í kringum McIlroy.
Rory segist sjálfur trúa því að metnaður hans
og einbeiting geti einn daginn komið honum
á sama stall og Nicklaus og Tiger Woods.
McIlroy er núna skör neðar; hann er þriðji
yngsti kylfingurinn til að sigra á þremur af
fjórum risamótum golfsins. Þeir tveir sem
voru yngri eru einmitt Nicklaus og Woods.
„Ég vonast auðvitað til að komast upp að
hlið þeirra,“ segir hann. „Ég er aftur búinn
að finna ástríðuna
í íþróttinni; hún
minnkaði svosem
ekkert mikið,
en þetta er ég að
hugsa um þegar ég
vakna á morgnana
og ég fer að sofa á
kvöldin.“
Þegar hann lyfti
Rauðvínskönn-
unni á Hoylake
í sumar, þá varð
McIlroy litið á
nöfnin sem búið
er að grafa í silfur
á elsta verðlauna-
gripinn í golfi
– Watson, Hagen,
Player, Hogan,
Nicklaus, Woods,
Faldo, Ballesteros
og mörg fleiri.
McIlroy – sem bar
höfuð og herðar
yfir aðra kylfinga á Royal Liverpool vellinum
– gæti risið hærra og náð lengra.
„Þetta er alltaf erfitt,“ segir McIlroy, sem
leyfir manni aldrei að gleyma því að innst
inni er hann hógvær. „Maður reynir sitt
ítrasta, en á sama tíma reynir maður líka að
láta líta út fyrir að þetta sé ekki mjög erfitt.“
McIlroy segir að leikagi hans á Opna breska
hafi sprottið upp úr tveimur lykilhug-
myndum sem hann var með í kollinum allt
mótið, „skipulag“ og „punktur“. „Þetta var
ekki flókið,“ segir hann. „En þetta var málið
fyrir mig. Úti á vellinum vildi ég halda mér
við skipulagið – hvernig ég lék holurna, og
reyndi að hugsa ekki um úrslitin. ´Punktur´
var fyrir mér bara punktur á flötinni sem
ég vildi láta boltann rúlla yfir á leiðinni í
holuna. Ég var reyndar ekkert að hugsa
um að setja púttið niður, hverju það myndi
skila mér; ég vildi bara koma boltanum yfir
þennan punkt. Ef hann fór í holu, þá fínt. Ef
ekki, þá reyndi ég bara aftur.“
McIlroy komst ekki í gegnum niðurskurðinn
á Muirfield í fyrra, en trúir því að ný afstaða
hans til leiksins skýri betra gengi hans í ár.
„Haltu áfram að gera það sem þú gerir vel,“
segir hann.
En aukið sjálfsöryggi skilar sér á ýmsan hátt,
til dæmis í betri teighöggum. Meðallengd
teighögga McIlroys í ár er 310,5 jardar, sem
er svipað því sem hann sló á leiktíðinni 2012,
þegar hann sigraði fjórum sinnum; þar á
meðal á PGA meistaramótinu á Kiawah
Island vellinum.
„Því lengri sem kylfan er, því erfiðara er að
slá vel með henni,“ segir McIlroy, sem er í
þriðja sæti hvað högglengd af teig varðar, á
eftir þeim Bubba Watson og Dustin Johnson.
„Þannig að ef ég er að slá vel með erfiðustu
kylfunni í pokanum, þá ættu hinar kylfurnar
að láta þokkalega að stjórn.“ „Þegar ég slæ
vel af teig, þá er ég alltaf að koma mér í stöðu
til að slá á pinnann og búa til fuglafæri. Þetta
hefur áhrif á allt golfið hjá mér, þannig að
ef drífarinn er að virka, þá er líklegra að allt
hitt sé að virka vel
líka.“
Í sínu besta
formi
Frammistaða
hans á mótum að
undanförnu og
aukið sjálfsöryggi
gefa til kynna að
McIlroy sé um
þessar mundir í
sínu besta formi.
„Þetta er mun
betra,“ segir hann,
þegar hann miðar
núverandi form
við það sem hann
var í árið 2012,
þegar hann var
efstur á peninga-
listum beggja
vegna Atlants-
hafsins. „Ég hef
betri stjórn á
boltanum og flugi hans; ég er líka einbeittari
úti á velli.“
Einbeiting og form McIlroys er ekki síst
Michael Bannon að þakka – manninum sem
segja má að hafi þjálfað McIlroy frá því hann
var lítill patti í úthverfum Austur-Belfast.
„Okkar samband hefur auðvitað þróast og
breyst á undanförnum árum,“ segir McIlroy.
„Ég er orðinn eldri og reyndari, þannig að
við eyðum ekki eins miklum tíma saman
og við gerðum. En ég er stundum að hugsa
um einhver smáatriði í sveiflunni og þá tala
ég við hann; reyndar ekki bara um golf-
sveifluna, því Michael þekkir golfið út og
inn og við tölum oft saman um leikskipulag,
ákveðin högg fyrir ákveðnar aðstæður og
slíkt, og þannig hefur okkar samband breyst
í áranna rás.“
McIlroy hefur þroskast sem kylfingur á
undanförnum árum og geislar af sjálfsöryggi.
En hvað með árið í fyrra, þegar naumur sigur
á Opna ástralska meistaramótinu var sá eini
ÁLITIÐ
Það sem bestu kylfingar
heims segja um mann-
inn á toppnum
Tiger Woods:
Þegar hann kemst af stað
þá virkilega fer hann í gang.
Þegar illa gengur, þá gengur
virkilega illa. Það er ýmist
í ökkla eða eyra, rétt eins og hjá Phil.
Svona spilar hann einfaldlega golf.
Graeme McDowell
Rory sigrar með brautar-
höggum. Eftir 340 metra
teighögg á miðja braut, þá er
auðvelt að klára dæmið. Tiger gat klárað
þetta úr erfiðum aðstæðu, og kannski
á Rory eftir að sanna að hann geti það
líka. Hann er með nægt sjálfsöryggi og
það sést einfaldlega á því að ef hann
byrjar illa, eða klúðrar einni eða tveimur
holum, þá getur hann fengið fugl eða
örn á þá næstu.
Jack Nicklaus
Rory býr yfir ótrúlegum
hæfileikum. Ég held mikið
upp á sveifluna hans, taktinn
og hvernig hann nálgast íþróttina. Hann
er sjálfsöruggur og næstum því svolítið
montinn, en hann fer vel með það.
Svona sjálfsöryggi er gott að sjá í ungum
manni. Hann er með ótrúlega hraða
sveiflu og slær boltann feykilangt, en þó
með miklu öryggi.
Gary Player
Ef Rory er ánægður og
heldur heilsu, þá verður
hann næsti maður til að
vinna öll risamótin. Ég sagði við hann
eftir fyrsta risatitilinn að ég hefði
óbilandi trú á honum. Ég tók Alslemm-
una þegar ég var 29 ára gamall, þegar
ég sigraði á Opna bandaríska meistara-
mótinu árið 1965. Á næsta ári verða
fimmtíu ár liðin frá því og það væri mjög
gaman að sjá Rory klára sína Alslemmu
á sama ári og ég fagna þessum áfanga.