Golf á Íslandi - 01.12.2014, Blaðsíða 116
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
116
Kjartan L Pálsson hélt upp á 75 ára
afmæli sitt þann 6. október s.l. á
Alicante Husa golfvellinum þar
sem hann starfar sem fararstjóri. Í tilefni
dagsins var haldið afmælisgolfmót og kom
Kjartan með áletraða verðlaunagripi með
sér frá Íslandi fyrir þetta mót en á þeim
stóð „KLP 75 Spánn 2014“. Kjartan starfar
sem fararstjóri fyrir „heldri kylfinga“ á
vegum Úrvals/Útsýnar, en við Husa golf-
hótelið í Alicante er bráðskemmtilegur
völlur sem er hannaður af hinum eina
sanna Seve Ballesteros.
Afmælismót KLP tókst vel en alls tóku 42
„mörlandar“ þátt eins og Kjartan orðar það
sjálfur. „Það var mikið fjör og kátína eins
og gerist ávallt í kringum íslenska kylfinga,“
segir Kjartan. Það voru kylfingar frá Vest-
mannaeyjum sem sigruðu í bæði karla- og
kvennaflokki á þessu 18 holu punktamóti
sem fram fór við bestu aðstæður; logni, sól
og 25 stiga hita.
Kjartan segir að ástandið á „KLP“ á þessum
tímamótum sé bara fjandi gott. „Mér fannst
ég ekkert vera neitt eldri eftir afmælisdaginn.
Ég hef verið að berjast við krabbamein í
lunga en ég var skorin fyrir tveimur árum og
helmingur af lunganu var tekið. Ég er orðinn
góður af því en það er eins og læknarnir
hafi skorið eitthvað af „golfbakteríunni“
í leiðinni. Áhugi minn á golfinu sem leik
hefur minnkað enda tók í skurðinn þegar
ég lék golf lengi eftir aðgerðina. Ég varð
að breyta sveiflunni og sú nýja passar ekki
nógu vel og það gengur hægt að finna gömlu
sveifluna aftur. Það mun koma til baka og
næsta takmark er að spila hring á „aldri“
mínum. Möguleikarnir á því ættu að aukast
þegar árunum fjölgar en ég þarf að vera dug-
legri að spila og æfa mig til þess að ná því.“
Kjartan er einn af frumkvöðlunum í golf-
ferðaþjónustu á Íslandi og hefur starfað sem
fararstjóri í þrjá áratugi. „Ég var farþegi í
fyrstu skipulögðum golferðunum frá Íslandi.
Þær voru til North Berwick í Skotlandi og
þessar ferðir opnuðu augu margra fyrir
ýmsum nýjum hlutum sem hægt var að taka
með heim. Ég var síðan fararstjóri í golf-
ferðum til Írlands, Spánar, Flórída og Tæ-
lands og þetta er búið að standa yfir í 30 ár,“
segir Kjartan en hann bætir því við að margt
hafi breyst á þessum tíma.
Hefur ekki hugmyndum
hve golfferðirnar eru margar
„Þetta er allt önnur veröld að vinna í þessu
núna en hér áður fyrr. Í fyrstu ferðunum var
maður „redda“ rástímum út um allt tveimur
dögum áður, og það greiddu allir sjálfir fyrir
teigtímana. Ferðalagið var í leigubílum og
allt frekar laust í reipunum. Í dag er þetta
allt skipulagt með lengri fyrirvara og allt
innifalið í „pakkanum“. Það eru allir að reyna
að gera betur og betur og þannig verður upp-
lifun farþegar skemmtilegri,“ segir Kjartan
en hann hefur ekki hugmynd um í hve
margar golfferðir hann hefur farið – en þær
eru margar.“
Eftirminnilegasta ferðin hjá Kjartani var til
Mallorca á Spáni þegar hann fagnaði fimm-
tugsafmæli sínu fyrir 25 árum.
Skipti út regngallanum
fyrir fleiri bjóra
„Ég var að vinna hjá Samvinnuferðum
– Landsýn á þeim tíma sem almennur
fararstjóri. Helgi Jóhannsson, þáverandi
forstjóri félagsins, auglýsti vikugolfferð til
Santa Ponsa á Mallorca og ferðin seldist upp
„SKÁRU ÚR MÉR
GOLFBAKTERÍUNA“
- Afrek að vera enn þátttakandi í þessu eftir öll þessi ár segir hinn
þaulreyndi fararstjóri Kjartan L. Pálsson