Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 118
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
118
á hálfum degi. Ég vissi ekkert af þessari ferð
fyrr en rétt áður en farþegarnir komu. Í þess-
ari ferð var mikið og skrautlegt lið sem fyllti
flugvélina. Ég þekkti ekki alla sem komu
úr vélinni en margir af þeim urðu miklir
vinir mínir og eru enn. Hér á Husa Golf í
Alicante eru 4-5 sem voru í þessari afmælis-
ferð fyrir 25 árum. Margir voru að fara í sína
fyrstu utanlandsferð í golfi og þarna urðu
ógleymanlegar uppákomur. Við erum enn að
hlæja af sumu sem þarna gerðist. Ég var t.d.
minntur á eina sögu í afmælinu núna sem
gerðist í þessari ferð. Þá kom einn félaginn
til mín á öðrum degi í golfmótinu sem var
haldið og spurði mig grafalvarlegur hvort
hann mætti taka regngallann sinn úr golf-
pokanum. Ég hélt það nú enda glampandi sól
og engin rigning í vændum næstu dagana.
Þegar ég spurði nánar út í málið fékk ég þetta
svar. „Sko, ef ég tek regngallann úr pok-
anum, þá kem ég miklu fleiri bjórum fyrir í
honum.“
Kjartan segir að hann verð viðloðandi farar-
stjórn áfram á meðan einhver not verði fyrir
hann eftir öll þessi ár. Þó ég segi sjálfur frá
þá finnst mér það bara vera afrek að vera enn
þátttakandi í þessu eftir öll þessi ár.
Kjartan kynntist golfíþróttinni í kringum
árið 1970 þegar hann var á kynningarmóti
fyrir íþróttafréttamenn úti á Nesvelli. Á þeim
tíma var golfíþróttinni aldrei gerð nein skil á
síðum dagblaða en Kjartan vann á þeim tíma
á dagblaðinu Tímanum. „Ég smitaðist mjög
alvarlega og illa af golfbakteríunni á þessum
tíma og flæktist í svo í allt sem viðkom
golfinu á Íslandi. Landsliðseinvaldur í mörg
ár, formaður Einherjaklúbbsins í 34 ár og
stjórnaði Nesklúbbnum í mörg ár, svo eitt-
hvað sé nefnt, ég man þetta ekki allt lengur,“
segir Kjartan L. Pálsson.
Sex draumahögg og
tveir Albatrossar
Kjartan var um tíma sá íslenski kylfingur
sem oftast hefur farið holu í höggi. Hann
hefur afrekað það sex sinnum - og hann
lét af formennskunni í Einherjaklúbbnum
þegar Björgvin Þorsteinsson náði metinu
af honum með sjöunda draumahöggi sínu.
Kjartan hefur einnig náð því tvívegis að
leika par 5 holu á 2 höggum sem kallast
Albatross. „Í fyrra skiptið var það á velli í
Frakklandi og ég setti annað höggið ofaní
af um 120 metra færi. Upphafshöggið
rúllaði endalaust niður brekku og ég hafði
heppnina með mér. Í síðara skiptið var
ég staddur á Írlandi og þar sló ég annað
höggið í stein eða eitthvað álíka því
hollið á undan okkur fann boltann ofan í
holunni,” segir Kjartan.
Verðlaunahafar
á afmælismóti
KLP 2014
Konur:
1. Katrín Magnúsdóttir, GV 36 punktar.
2. Hólmfríður Þórhallsdóttir, GKj 35
punktar.
3. Bergdís Kristjánsdóttir, GR 34 punktar.
Karlar:
1. Kristján Ólafsson, GV 34 punktar.
2. Sigurgeir Steingrímsson, NK 32
punktar.
3. Einar B. Gunnlaugsson, GR 32 punktar.
Golf Iceland var með kynningarbás á International Golf
Travel Mart IGTM ferðasýningunni sem fram fór á
Ítalíu dagana 26.-31. okt. Á þessari árlegu ferðaþjónustu-
sýningu kynntu samtökin almennt möguleika til að spila golf hér
á landi svo og sérstaklega þjónustu sinna meðlima.
Að þessu tóku um 1.100 aðilar þátt en þessi sýning er stærsta sér-
hæfða golfferðasýning í heiminum.
Þar af voru 600 aðilar sem kynntu sína áfangastaði, heil lönd, ákveðin
golfsvæði í heiminum eða einstaka golfvelli fyrir um 350 sérhæfðum
söluaðilum golfferða og um 150 fjölmiðlamönnum sem sóttu
sýninguna.
Samhliða sýningunni fer fram mikil kynning á golfi og ferðaþjónustu
svo og alls konar tölfræði og niðurstöðum varðandi ferðahegðun
kylfinga.
Magnús Oddsson, verkefnastjóri Golf Iceland, sótti sýninguna og sá
um kynninguna:
„Þarna fáum við margs konar tækifæri til að koma golfi á Íslandi á
framfæri. Í fyrsta lagi eru fyrirfram bókuð viðtöl við söluaðila sem
áhuga hafa á að kynna sér golf á Íslandi. Í öðru lagi þá eru sérstakar
opnar kynningar á áfangastöðum sem eru vel sóttar. Og loks reynum
við að koma okkur og okkar efni á framfæri við þá fjölmörgu fjöl-
miðlamenn sem sækja sýninguna.
Í allri okkar kynningu er lögð áhersla á möguleikana til að spila í
okkar einstöku náttúru enda eru vellirnir hluti af henni svo ekki sé
minnst á miðnæturgolfið, sem alltaf vekur mikla athygli.
Samhliða auknum almennum áhuga á Íslandi,sem áfangastað fyrir
ferðmenn hefur áhugi á Íslandi sem golfáfangastað farið vaxandi
enda eru söluaðilar golfferða stöðugt að leita að nýjum og „öðruvísi“
stöðum fyrir sína viðskiptavini,“ segir Magnús.
Að þessu sinni óskuðu söluaðilar frá alls 14 löndum eftir viðtölum;
mismunandi margir frá hverju landi,en mestur áhugi var frá Mið-
Evrópu, Bretlandi og Bandaríkjunum auk Norðurlandanna.
ÍSLENSKT GOLF KYNNT Á STÆRSTU
GOLFFERÐASÝNINGU HEIMS