Golf á Íslandi - 01.12.2014, Qupperneq 122
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
122
Nítján manna hópur Indverja kom til að leika
golf á Íslandi í sumar. Allir í þessum hópi
áttu það sameiginlegt að hafa aldrei komið
til Íslands áður, en á fötulista margra (þ.e.
bucket list) var að spila golf á Íslandi, og ekki
skemmdi fyrir að hér eru jöklar, heitir hverir
og stórbrotið landslag til að skoða í leiðinni.
Í þessum hópi voru kylfingar á flestum getu-
stigum, allt frá besta kylfingi Indlands upp í
fólk sem var með rúmlega 20 í forgjöf. Með
í för voru sem sagt þrír af bestu atvinnu-
mönnum Indlands í golfíþróttinni, Chikka
Rangappa, Angad Cheema og Anirban Lahiri.
En af hverju Ísland? Maðurinn á bakvið þessa
ferð, Gaurav Shirke frá Nýju-Delhi og eigandi
Bentbrass Golf, átti sér þann draum að spila
golf á Íslandi eftir að hafa fyrir tilviljun hitt
íslenska fulltrúa UN Women í lok október á
síðasta ári sem unnu að heimildarmynd um
sýruárásir. Sagan segir að Gaurav hafi spurt
í hálfgerðu gríni hvort að það væru golfvellir
á Íslandi (landið heitir jú Iceland - ólíklegt
að hægt sé að spila golf þar ekki satt?). Eftir
að hafa fengið önnur viðbrögð við þessari
spurningu heldur en hann bjóst við, jók á
forvitni hans og hann setti sér það markmið
að koma með hóp hingað áður en nýafstaðið
Besti kylfingur Indlands
í Íslandsheimsókn
Nítján manna hópur
Indverja lék golf í
Brautarholti og í
Kiðjabergi:
tímabilið væri úti. Tæplega ári seinna kom
hópurinn hingað til lands fullur eftir-
væntingar að spila golf á bestu golfvöllum
landsins sem partur af svokallaðri Bentbrass
Experience - sem er golfferð þar sem atvinnu-
menn ferðast með almennum kylfingum til
framandi golfáfangastaða, spila með þeim,
veita þeim ráð og mynda persónulegt tengsl í
formi vináttu og virðingar.
Upphaflega var áætlunin að dvelja hér á
landi í fimm daga og spila þrjá golfhringi,
en sökum þess að hópurinn missti af síðasta
tengifluginu sínum til Íslands þá styttist
ferðin í fjóra daga og ákveðið var vegna
veðurs að sleppa síðasta golfhringnum, enda
var þeim nánast búið að blása og rigna niður
þegar komið var að lokum ferðarinnar. Síðasti
dagurinn fór því í óvæntan útsýnistúr um
Suðurlandið og vakti það mikla kátínu enda
voru flestir dolfallnir yfir fegurð landsins og
þrátt fyrir óvenju mikinn blástur og vætu þá
fannst flestum það gott frí frá hitanum sem er
í Indlandi á þessum tíma ársins.
Vellirnir sem urðu fyrir valinu voru Brautar-
holtsvöllur og Kiðjabergsvöllur. Einn þeirra,
Angad Cheema, var á góðri leið með að setja
vallarmet á Brautarholtsvelli þegar hann
ákvað að koma sér inn í hlýjuna þegar tvær
holur voru eftir - sem sagt ekkert að spá í
skorið. Þannig gat hann líka dáðst betur að
vellinum og landslaginu og átti hann ekki orð
yfir fegurðinni enda búinn að eiga sér þann
draum að heimsækja landið eftir að hann
sá kvikmyndina „The Secret Life of Walter
Mitty“, sem var að stórum hluta tekin upp hér
á landi. Brosti hann hringinn alla ferðina þó
að veðurguðirnir hafi ekki beint endurgoldið
honum það viðmót, en honum var að eigin
sögn alveg sama um slíkt og óskaði hans þess
heitast að hafa getað verið lengur og séð fleiri
staði og spilað fleiri velli og tóku margir aðrir
undir það í hópnum.
Þekktastur þessara kylfinga er án efa Anirban
Lahiri sem nýverið tryggði sér fullan þátt-
tökurétt á Evrópumótaröðinni í golfi og situr
í 70. sæti heimslistans í golfi þegar þetta er
skrifað. Stuttu áður hafði hann tekið þátt í
PGA risamótinu og British Open og ákvað
að slást með í för þrátt fyrir að þurfa að stytta
ferðina sökum þess að hann átti að taka við
Arjuna verðlaununum af forseta Indlands.
Það eru næst mestu heiðursverðlaun sem
íþróttamaður getur hlotið í Indlandi. Átti
hann mjög erfitt að koma orðum að því
hversu fallegir golfvellirnir voru og landslagið
í kring, og hversu magnað það var að ganga
um götur Reykjavíkur á Menningarnótt og fá
beint í æð eftir langt ferðalag þá stemmningu
sem var í miðbænum.
Þrátt fyrir stutt gaman í frekar slæmu veðri
þá er óhætt að segja að allir hafi skemmt
sér mjög vel og voru jafn hrifnir af náttúru
landsins og fólkinu sem varð á vegi þeirra í
þessari ferð. Sérstakar þakkir fær starfsfólk
GBR og GKB fyrir afbragðs þjónustu og lið-
legheit og það er von margra í þessum hópi
að geta heimsótt aftur og þá spilað fleiri golf-
velli enda er af nægu að taka í þeim efnum.
Heimurinn hefur því stækkað örlítið fyrir
þetta fólk enda voru golfvellir á Íslandi ekki
til í þeirra huga fyrir ári síðan.
Birgir Sverrisson.
Anirban Lahiri, besti
kylfingur Indverja var
ánægður á Íslandi.