Golf á Íslandi - 01.08.2015, Page 28
Heiða Guðnadóttir skrifaði nafn sitt í sögubækurnar á Íslandsmótinu í holukeppni þegar hún stóð uppi sem
sigurvegari í kvennaflokknum á Jaðarsvelli á Akureyri. Þetta er í fyrsta sinn sem Heiða vinnur stóran titil í
fullorðinsflokki og hún er fyrsti kylfingurinn úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar sem vinnur stóran titil. Heiða sigraði Ólafíu
Þórunni Kristinsdóttur úr GR í úrslitum og það er óhætt að segja að sigur Heiðu á þessu móti hafi komið flestum á
óvart – nema henni sjálfri.
Heiða komst upp úr riðlakeppninni með
því að leggja systur sína að velli í úrslitaleik
um efsta sætið í riðli 1. Heiða sat því yfir
í átta manna úrslitum og komst beint í
undanúrslit líkt og Ólafía Þórunn. Valdís
Þóra Jónsdóttir úr Leyni sem fagnaði þessum
titli árið 2010 komst ekki upp úr sínum riðli
þar sem Signý Arnórsdóttir úr GK stóð uppi
sem sigurvegari.
Heiða gerði sér lítið fyrir og lagði Signýju
í undanúrslitunum 2/1 en Signý hefur
tvívegis sigrað á Íslandsmótinu í holu
keppni. Ólafía Þórunn þurfti að hafa mikið
fyrir því að komast í sjálfan úrslitaleikinn
þar sem Anna Sólveig Snorradóttir úr GK
gaf ekkert eftir fyrr en á 20. holu.
Í úrslitaleiknum setti Heiða hvert púttið á
fætur öðru rétta leið og það var lykillinn
að árangri hennar. Hún nýtti hverja stund
á meðan mótið fór fram til þess að lesa
íþróttasálfræði og þá sérstaklega að hún ætti
að pútta eins og barn.
„Ég vissi að ég gæti þetta þar sem ég lék
í undanúrslitum í þessari keppni í fyrra
en þá þorði ég ekki að vinna. Ég var að
keppa þar við systur mína. Ég vann hana
í riðlakeppninni á þessu móti og þá fór
ég að trúa meira á mig. Ég hef undirbúið
mig svipað fyrir þetta keppnistímabil og
áður – hef reyndar haft fleiri tækifæri til
þess að fara til útlanda að æfa. Það sem var
aðalmálið í þessari keppni var að ég ákvað
að pútta eins og barn allt mótið. Ég las kafla
eftir hann þar sem hann fór í gegnum það
hvernig börn hugsa þegar þau pútta. Þau
efast aldrei um eigin getu og þótt púttið
fari langt framhjá eða sé of stutt – þá ganga
þau að boltanum og hafa alltaf trú á því að
þau geti sett næsta pútt ofan í. Ég púttaði
því eins og barn allt mótið og það skilaði
árangri,“ sagði Heiða Guðnadóttir.
Sigurpúttið stendur upp úr
„Eftirminnilegasta höggið á Jaðarsvelli
var um 5 metra langt pútt á 15. flöt í
úrslitaleiknum. Ég setti það niður og það
reyndist vera sigurpúttið.“
Sjötta holan í uppáhaldi
„Þegar ég stend á teignum á 6. braut á
Jaðarsvelli þá líður mér eins og ég sé á velli
erlendis. Bara yndislegt. Gott teighögg fær
sanngjarna niðurstöðu, flötin er stór, og mér
líkar við stórar flatir. Kletturinn á bak við
flötina gerir brautina enn áhugaverðari og
þetta er bara frábær hola í alla staði.“
Reyndi að
pútta eins
og barn
– Heiða Guðnadóttir
notaði sálfræðina til
þess að tryggja sér
sinn fyrsta stóra titil
Kvennaflokkur, Íslandsmeistarar í holukeppni:
1988 Karen Sævarsdóttir GS (1) (1)
1989 Þórdís Geirsdóttir GK (1) (1)
1990 Ragnhildur Sigurðardóttir GR (1) (1)
1991 Karen Sævarsdóttir GS (2) (2)
1992 Karen Sævarsdóttir GS (3) (3)
1993 Ragnhildur Sigurðardóttir GR (2) (2)
1994 Karen Sævarsdóttir GS (4) (4)
1995 Ólöf María Jónsdóttir GK (1) (2)
1996 Ólöf María Jónsdóttir GK (2) (3)
1997 Ragnhildur Sigurðardóttir GR (3) (3)
1998 Ólöf María Jónsdóttir GK (3) (4)
1999 Ólöf María Jónsdóttir GK (4) (5)
2000 Ragnhildur Sigurðardóttir GR (4) (4)
2001 Ragnhildur Sigurðardóttir GR (5) (5)
2002 Herborg Arnarsdóttir GR (1) (6)
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir GR (6) (7)
2004 Ólöf María Jónsdóttir GK (5) (6)
2005 Ragnhildur Sigurðardóttir GR (7) (8)
2006 Anna Lísa Jóhannsdóttir GR (1) (9)
2007 Þórdís Geirsdóttir GK (2) (7)
2008 Ásta Birna Magnúsdóttir GK (1) (8)
2009 Signý Arnórsdóttir GK (1) (9)
2010 Valdís Þóra Jónsdóttir GL (1) (1)
2011 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR (1) (10)
2012 Signý Arnórsdóttir GK (2) (10)
2013 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR (2) (11)
2014 Tinna Jóhannsdóttir GK (1) (12)
2015 Heiða Guðnadóttir GM (1) (1)
Silfur: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var
með Alfreð bróður sinn á „pokanum“ í
úrslitaleikjunum.
28 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Íslandsmót í holukeppni