Golf á Íslandi - 01.08.2015, Blaðsíða 35
„Ég býst við að framkvæmdastjórinn,
Guðmundur Sigvaldason, væri ánægður ef
ég kæmist ekki í gegn því að verkefnin eru
mörg sem þarf að leysa en ég vinn líka að
mótinu sjálfu með ýmsum hætti.“
Formaðurinn segir að það hafi aldrei verið
efi í hans huga að Leynir gæti tekið að sér
þetta verkefni.
„Þetta er stórt verkefni fyrir lítinn klúbb
en við erum með metnað til þess að gera
þetta eins vel og hægt er. Það er búið að
setja viðmið um það hvernig Íslandsmótið
eigi að fara fram og við vorum aldrei í vafa
um að Leynir gæti haldið þetta mót með
glæsilegum hætti. Við erum með frábæran
golfvöll hérna á Garðavelli og markmiðið er
að hann verði í sínu besta ástandi og verði
skemmtileg áskorun fyrir bestu kylfinga
landsins. Það eru margir sem eiga eftir að
njóta þess að spila á vellinum bæði fyrir
og eftir Íslandsmótið og ég hvet sem flesta
að nýta sér tækifærið og leika á vellinum
á meðan hann er í þessu ástandi. Við
finnum fyrir miklum meðbyr og stuðningi
úr samfélaginu hérna á Akranesi og ekki síst
frá bæjaryfirvöldum. Regína Ásvaldsdóttir
bæjarstjóri hefur m.a. sýnt þessu mikinn
áhuga og við finnum að það starf sem við
erum með hérna í Leyni skiptir miklu
máli fyrir bæ á borð við Akranes og eykur
lífsgæði þeirra sem hér búa. Íþróttabandalag
Akraness hefur einnig lagst á árarnar með
okkur og við höfum fengið aðgang að
starfsmanni ÍA í ýmis verkefni.“
Samkeppnin er meiri er áður
Þórður fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í
golfi árið 1997 og er hann annar kylfingur
inn í karlaflokki úr Leyni sem hefur afrekað
það. Birgir Leifur Hafþórsson var sá fyrsti í
Vestmannaeyjum árið 1996. Þórður segir að
samkeppnin í golfinu í dag sé meiri en áður.
„Samkeppnin í keppnisgolfinu er meiri í
dag, breiddin er meiri miðað við þegar ég
var að keppa mest sjálfur. Við erum að sjá
12-14 ára krakka leika á pari og jafnvel
undir pari vallar. Gæði valla á Íslandi hafa
stóraukist með bættri þekkingu og menntun
golfvallasérfræðinga. Menntunarstig
golfkennara hefur einnig aukist til muna.
Allt þetta gerir það að verkum að íslenskir
kylfingar eru stöðugt að verða betri.
Vandamálið mitt í golfinu í dag er að ég
mæti á teig og held að ég sé enn með sömu
taktana og fyrir 17 árum. Metnaðurinn er
enn til staðar en ástundunin er ekki sú sama
og áður. Ég geri miklar kröfur til mín og ég
vil alltaf leika í kringum parið.“
Hvað hefði gerst?
Þórður valdi aðra leið en vinur hans
Birgir Leifur Hafþórsson en hann veltir
því stundum fyrir sér hvernig hlutirnir
hefðu þróast ef vinirnir hefðu farið saman í
atvinnumennskuna.
„Ég fór út í háskólanám í Bandaríkjunum
en ákvað að koma heim eftir eitt ár og
klára námið mitt hér. Ég hef oft hugsað
um hvað hefði gerst ef ég hefði valið að
taka golfíþróttina fram yfir námið og
starfsferilinn í kjölfarið. Ég hefði getað
farið sömu leið og Birgir Leifur Hafþórsson
valdi, að taka áhættuna og gerast
atvinnukylfingur. Við hefðum verið gott
teymi enda þekkjumst við mjög vel og við
höfum séð að t.d. Svíar reyna ávallt að vera
með hóp af ungum atvinnukylfingum saman
til þess að þeir nái enn betri árangri. Það
er erfitt og oft einmanalegt að standa einn
í þessu eins og Birgir Leifur hefur upplifað.
Ég var aldrei í vafa um að ég hefði getuna
til þess að fara í atvinnumennskuna. Ég
valdi að fara aðra leið og ég sé ekkert eftir
því í dag. Hins vegar er alltaf gaman að
velta fyrir sér hvað hefði gerst ef ég hefði
valið atvinnumennskuna og farið með Bigga
Leif.“
Þórður man hvert einasta högg á loka
hringnum árið 1997 þegar hann tryggði sér
sigurinn á Íslandsmótinu.
„Ég átti 2-3 högg að ég hélt þegar ég kom
á 18. teig. Ég fann mikinn stuðning frá
félögum mínum úr Leyni sem voru allir
mættir á lokaholuna. Upphafshöggið fór
aðeins hægra megin í kargann. Um leið og
boltinn fór af stað öskruðu strákarnir ofan
af Skaga, „þú ert maðurinn“ og þá vissi ég
að staðan væri hagstæð. Ég slakaði aðeins
á eftir það og sló með 9-járni inn á flöt en
náði ekki upp á efri pallinn. Ég þrípúttaði
og fékk skolla en það skipti engu máli þar
sem ég var með gott forskot. Tilfinningin
sem fylgdi í kjölfarið var ótrúleg og fátt sem
toppar þetta. Ég rifja þetta nú ekki oft upp
en ég fæ oft að heyra það frá syni mínum
að ég hafi einu sinni verið Íslandsmeistari.
Þá er hann að fussa og sveia yfir einhverju
ömurlegu skori hjá pabba sínum og þá fæ ég
að heyra þessa setningu: „Og þú varst einu
sinni Íslandsmeistari.“
Gríðarlega stór hópur
afrekskylfinga
Þórður var inntur eftir því hvernig golf
áhuginn hafi vaknað á Akranesi á sínum
tíma.
„Áhuginn á golfinu kviknaði hjá mér árið
1982. Við bjuggum í Grundahverfinu og
við vinirnir vorum oft að þvælast út fyrir
okkar nærsvæði. Við römbuðum á þessar
Ungur og efnilegur: Þórður Emi slær hér á
gamla hvíta teignum á 6. sem var staðsettur
fyrir aftan 18. flötina.
Ég held að metið á einum degi hjá okkur hafi verið 63
holur frá því við komum að morgni og fórum heim
rétt um miðnætti. Það voru langir dagar en menn
spiluðu og spiluðu. Nálægðin við bæinn skipti einnig
máli og við vorum ekki háðir því að vera skutlað
upp á völl eða taka strætó. Á þessum tíma þegar
við vorum að alast upp þá getum við horft á þær
aðstæður sem voru annars staðar. Þetta var hálfgerð
gullöld og það var auðvelt fyrir þá sem á eftir komu
að detta inn í þetta umhverfi.
35GOLF.IS