Golf á Íslandi - 01.08.2015, Page 36
©
Ö
SS
U
R
, 0
7.
2
01
5
UNLOADER ONE
Verkjameðferð án lyfja
Unloader One spelkan frá Össuri veitir nýja
möguleika í meðferð við slitgigt í hnjám. Spelkan
er sérstaklega hönnuð til þess að draga úr álagi
á slitnum liðflötum, veitir hnénu stuðning og
dregur úr verkjum.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið
samband við sérfræðinga Össurar í síma
425-3400.
GRJÓTHÁLS 1-5
110 REYKJAVÍK
WWW.OSSUR.IS
flottu trönur hérna upp við golfvöllinn
og í framhaldinu fundum við golfkúlur í
trönunum og þá langaði okkur að prófa.
Það er í raun forsagan að þessu að við vorum
að þvælast í skógræktinni og trönurnar
voru aðlaðandi fyrir stráka sem eru 9-10
ára. Hinum megin við trönurnar leyndist
Garðavöllur.“
„Maður var undir handleiðslu mikilla
meistara sem tóku gríðarlega vel á móti
manni. Fremstur í flokki var Gunnar
Júlíusson sem var á þeim tíma öflugur
golfari. Guðmundur Valdimarsson einnig
– þeir kölluðu oft á mig þegar ég var að
væflast hérna einn upp á velli.”
„Það hafa margir velt því fyrir sér af
hverju það voru svona margir ungir
meistaraflokkskylfingar hérna úr klúbbnum.
Og af hverju margir af þeim náðu eins langt
og raun bar vitni. Mergur málsins er sú
samkeppni sem var hérna. Við tókum þátt
á nánast öllum innanfélagsmótum. Það var
eilíf samkeppni og samanburður. Við vorum
líka mættir hingað snemma á morgnana
áður en við byrjuðum að fá einhverja
unglingavinnu. Það var alltaf keppni í
gangi. Ég held að metið á einum degi hjá
okkur hafi verið 63 holur frá því við komum
að morgni og fórum heim rétt um miðnætti.
Það voru langir dagar en menn spiluðu
og spiluðu. Nálægðin við bæinn skipti
einnig máli og við vorum ekki háðir því að
vera skutlað upp á völl eða taka strætó. Á
þessum tíma þegar við vorum að alast upp
þá getum við horft á þær aðstæður sem voru
annars staðar. Þetta var hálfgerð gullöld og
það var auðvelt fyrir þá sem á eftir komu
að detta inn í þetta umhverfi. Við vorum
stoltir Leynismenn – og menn gerðu bara
ráð fyrir því að við værum góðir.“
18. er uppáhaldsholan
Að lokum var formaðurinn beðinn um að
velja uppáhaldsholuna á Garðavelli.
Uppáhaldsholan er 18. holan sem var í
gamla daga sú fimmta. Það helgast af því að
lengi vel var ég búinn að fara þrisvar holu
í höggi en í dag er ég búinn að fara fjórum
sinnum holu í höggi – alltaf á Garðavelli.
Fyrsta draumahöggið kom þegar ég var tólf
ára með 5-járni af rauðum teigum. Síðan
í annað sinn þá var ég 18 ára á hring þar
sem ég jafnaði vallarmet Ómars Arnars
Ragnarsson sem þá var 67 högg. Þriðja
skiptið var á 72. holu í meistaramóti, við
vorum á lokaholunni í lokahollinu. Það
var gott veður og tugir manna að fylgjast
með, trúlegast er það högg það sem er
minnistæðast á þessum velli,“ sagði Þórður
Emil ÓIafsson.
Hola í höggi: 18. brautin hefur skipað stórt
hlutverk þegar formaður Leynis hefur
„grísað“ á holu í höggi. Á myndinni er hann
nýbúinn að ljúka meistaramóti og tryggja sér
sigur með holu í höggi á 18.
Hér fór Gunnar holu í höggi árið 2004. Eitt fullkomið högg.
En það var ekkert vitni. Í 6 ár með upptökuvél og þolinmæðina
að vopni hefur Gunnar mætt reglulega á völlinn.
Nú vantar bara annað fullkomið högg.
ÞOLINMÆÐI
BRUGGMEISTARA OKKAR SKILAR SÉR TIL ÞÍN.
2.25%
A L C . V O L .. .
W O R L D ’ S B E S T S T A N D A R D L A G E R
O K K A R B J Ó R
36 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Metnaðurinn er enn til staðar