Golf á Íslandi - 01.08.2015, Qupperneq 68
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
4
7
9
2
Alvöru íslenskt golfhótel
Icelandair hótel Hamar
REYKJAVÍK NATURA REYKJAVÍK MARINA Í KEFLAVÍK FLÚÐIR KLAUSTUR HÉRAÐ AKUREYRI HAMAR
Icelandair hótel Hamar, Borganesi
Nánari upplýsingar og bókanir: icelandairhotels.is eða í síma 433 6600
Hamarsvöllur er skemmtilegur 18 holu golfvöllur staðsettur í gullfallegu umhverfi á söguslóðum í Borgarnesi. Icelandair hótel
Hamar er glæsilegt hótel þar sem gestir njóta einstakrar kyrrðar og snæða ljúfmeti sem framreitt er úr hráefni úr héraði. Af
hótelinu er gengið beint út á golfvöllinn. Staðsetningin, aðstaðan og frábær tilboð á golfi og gistingu gera Icelandair hótel
Hamar að draumaáfangastað golfarans, hvort sem um ræðir golfhelgi með ástinni eða heimsóknir stærri hópa.
Verið velkomin á Icelandair hótel Hamar.
Sláttur alla daga: Flatirnar á Garðavelli
verða í toppstandi á Íslandsmótinu
eins og aðra daga.
Mín skoðun er sú að ég vil sjá keppendur ná góðu skori á góðum velli á
Íslandsmótinu. Við höldum því vellinum í því ástandi sem hann er vanalega,
þá á ég helst við að við munum ekki láta kargann vaxa sérstaklega fyrir
Íslandsmótið. Flatirnar verða í eins góðu ástandi og mögulegt er að hafa
þær. Völlurinn verður snyrtilegur og þegar Íslandsmótinu er lokið ættu allir
kylfingar að njóta þess að leika við frábærar aðstæður. Ég vil að kylfingarnir
sem keppa á Íslandsmótinu eigi frekar möguleika á að fá fugl eða jafnvel
örn í stað þess að vera að ströggla við skolla eða skramba,“ segir Brynjar
Sæmundsson vallarstjóri Garðavallar á Akranesi en Brynjar er þaulreyndur
þegar kemur að undirbúningi á keppnisvöllum fyrir stórmót á Íslandi.
„Við stefnum á að hafa hraðann í 8,5+ í
stimpmetrum á flötunum. Það þarf að finna
út hvernig við förum best að því. Það er
töluverður munur á hraða á gömlu og nýju
flötunum á Garðavelli og við setjum okkur
það markmið að flatirnar verði með mjög
svipaðan hraða. Það þarf að beita þekktum
aðferðum til þess, slá neðar, valta oftar eða
tvíslá. Fer allt eftir því hvaða flatir er um að
ræða. Garðavöllur er mun þurrari en í fyrra,
tíðarfarið hefur verið annað í sumar, og
þær framkvæmdir sem farið var í til þess að
þurrka völlinn hafa skilað sínu.“
Brynjar rekur fyrirtækið Grastec samhliða
því að vera í hlutastarfi sem vallarstjóri
á Garðavelli. Hann segir að reynslan af
því sé góð og það henti vel að vera með
slíkt fyrirkomulag hjá klúbbi eins og
Leyni. Brynjar var áður framkvæmdastjóri
Leynis en hann er menntaður sem
golfvallasérfræðingur frá Skotlandi.
„Þetta hentar vel hérna á Akranesi þar
sem ég var starfandi í áratug hjá klúbbnum
og ég þekki þetta því vel. Þetta snýst um
samvinnu við stjórn og framkvæmdastjóra,
sem hefur gengið ljómandi vel, en þetta
fyrirkomulag hentar að ég held betur
fyrir millistærð af golfklúbbum og þá sem
minni eru. Við höfum bætt við mannskap
á völlinn í aðdraganda Íslandsmótsins og
þetta er að ganga vel upp. Það er tilhlökkun
hjá okkur að taka á móti bestu kylfingum
landsins,“ sagði Brynjar Sæmundsson
vallarstjóri Garðavallar.
Flatirnar
verða
frábærar
– Brynjar Sæmundsson vallarstjóri á Garðavelli
Gengið: Brynjar Sæmundsson, Leó Snær Guðmundsson og Hallur Flosason eru með puttann á
púlsinum á Garðavelli.
68 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Flatirnar verða frábærar