Golf á Íslandi - 01.08.2015, Page 106

Golf á Íslandi - 01.08.2015, Page 106
Way of Life! er öflugur, fjórhjóladrifinn snillingur með ríkulegan staðalbúnað. Meðaleyðsla er aðeins 5,7 l/100 km sjálfskiptur. All-grip skapar aksturseiginleika í sérflokki. Komdu og prófaðu. Þú kemst alla leið! Suzuki bílar hf. I Skeifunni 17 I Sími 568 5100 Fáðu nánari upplýsingar á suzuki.is Suzuki Golfkerrurnar oG Golfararnir! allt kemst fyrir! d y n a m o r e y k ja v ík Jordan Spieth hefur verið á ótrúlegum skriði á þessu ári og hinn 21 árs gamli Bandaríkjamaður hefur komið með ferska vinda í golfveröldina. Spieth sigraði á Opna bandaríska meistaramótinu á Chambers Bay á mögnuðum lokadegi. Þetta er annar sigur hans á risamóti en hann sigraði á Mastersmótinu á Augusta. Lokakafli mótsins var stórkostlegur þar sem Dustin Johnson gat tryggt sér sigurinn á lokaholunni en hann þrípúttaði þegar mest á reyndi. Spieth sigraði með minnsta mun. Johnson gat tryggt sér sigurinn þar sem hann púttaði fyrir erni á lokaholunni en niðurstaðan var þrípútt og skolli. Aðstæðurnar á Chambers Bay vellinum rétt við Seattle voru heitt umræðuefni í fjölmiðlum en gríðarlegir þurrkar og hiti gerðu það að verkum að keppnisvöllurinn var á köflum harður eins og malbik. Spieth er aðeins sjötti kylfingurinn í sögunni sem nær að sigra á Mastersmótinu og Opna bandaríska meistaramótinu á sama árinu. Hann er nú þegar búinn að koma sér fyrir á sömu hillu og Tiger Woods, Jack Nicklaus, Arnold Palmer, Craig Wood og Ben Hogan. Þar að auki er Spieth yngsti sigurvegarinn á Opna bandaríska meistaramótinu frá því Bobby Jones sigraði árið 1923. Spieth er einnig sá yngsti sem sigrar á tveimur risamótum í röð frá því Gene Sarazen gerði slíkt hið sama árið 1922. Æfði margar íþróttir sem barn og unglingur Það er margt áhugavert við feril Jordans Spieth. Sérstaklega bakgrunnur hans í íþróttum. Það mætti ætla að hann hafi lagt golfíþróttina snemma fyrir sig og lagt allt í sölurnar. Staðreyndin er önnur. Þegar Spieth var 12 ára gamall var ljóst að golfíþróttin átti hug hans. Foreldrar hans hvöttu hann til þess að stunda fleiri íþróttir samhliða golfinu. „Við trúum því að það sé betra fyrir börn að upplifa marga hluti í gegnum mismunandi íþróttagreinar. Við vildum ekki að Jordan myndi sérhæfa sig of snemma. Það er hlutverk okkar sem foreldra að koma því til skila til barnanna okkar að lífið er meira en ein íþrótt og eitt markmið. Það gerist of oft að börn sem sérhæfa sig snemma í einni íþrótt brenna hreinlega upp og missa áhugann,“ sagði Chris Spieth, móðir Jordans Spieth, í viðtali vestanhafs. Þess má geta að Jordan Spieth kastar með vinstri en slær golfboltann rétthent. Baklandið: Jordan Spieth fagnar hér sigrinum á Opna bandaríska meistaramótinu ásamt foreldrum sínum og bróður. Frá vinstri; Shawn Speith, Chris Speith, Jordan Spieth og Steven Speith. Jordan Spieth æfði margar íþróttir sem barn og unglingur. Yfir vetrartímann var hann leikstjórnandi í körfuboltaliði, aðal­ kastarinn í hafnaboltaliði og leikstjórnandi í bandarísku fótboltaliði. Hann var því fyrst og fremst íþróttamaður áður en hann gerðist kylfingur. Við vorum með um 700 manns á biðlista og þar eru einstaklingar sem hafa beðið allt frá árinu 2009. 106 GOLF.IS - Golf á Íslandi Spieth skrifar söguna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.