Golf á Íslandi - 01.08.2015, Page 120
DÓMARASPJALL
Hörður Geirsson
hordur.geirsson@gmail.com
Regla 10 fjallar um leikröð. Reglan er einföld og líklega eitt af því fyrsta sem
kylfingar læra. Á fyrsta teig ræður rástafla eða hlutkesti leikröðinni. Sá sem
á lægsta skor á holu leikur síðan fyrstur á næsta teig. Eftir teighöggin leikur
sá næst sem á boltann sem er lengst frá holunni.
Skiptir einhverju máli hvort leikið er í réttri röð? Oftast ekki. Í holukeppni
passa menn sig á að leika í réttri röð, því ef keppandi slær sinn bolta
þegar mótherji hans á að leika getur keppandinn átt það yfir höfði sér að
mótherjinn afturkalli höggið. Í höggleik (þ.á.m. punktakeppni) hefur það
engar afleiðingar þótt leikið sé í rangri röð, nema ef keppendur koma sér
saman um það til að einhver keppendanna hagnist á því.
Sú staðreynd að það er almennt refsilaust
að víkja frá reglunni um leikröð í höggleik
hefur leitt til þess að kylfingar eru sífellt
oftar hvattir til að leika „ready golf“, til að
flýta leik.
Á teignum
Sá sem á teiginn á að vera tilbúinn til
að slá fyrstur. Ef hann er ekki tilbúinn
slær einhver annar í ráshópnum fyrstur.
Skorkortið er fyllt út á meðan aðrir í
ráshópnum slá.
Á brautinni
Allir í ráshópnum ættu að fara að sínum
bolta eins fljótt og hægt er. Á meðan beðið
er eftir að næsti ráshópur á undan sé úr
færi ættu kylfingar að undirbúa sitt högg,
velja kylfu, taka hana úr golfpokanum og
vera tilbúnir að slá. Ef sá sem er lengst frá
holunni og „á að slá næstur“ hefur tafist
slær einhver annar sem er tilbúinn.
Ef leita þarf að bolta fara aðrir í ráshópnum
samt fyrst að sínum bolta og undirbúa sig.
Langoftast finnst boltinn sem leitað er
að mjög fljótlega og því er óþarfi að allur
ráshópurinn fari strax í að leita. Þegar ljóst
er að eigandi boltans finnur hann ekki eftir
snögga yfirferð fara aðrir í ráshópnum til
hans og hjálpa honum að leita, helst eftir að
hafa sjálfir slegið sinn bolta.
Á flötinni
Þegar boltinn er kominn inn á flötina ættu
allir að geyma golfpokann sinn við flötina
þar sem gengið er í átt að næsta teig. Með
„Ready golf“
Leikröð –
Hvatningin um að leika „Ready golf“ felst í
aðalatriðum í tvennu:
■■ Kylfingar séu vakandi fyrir því að tefja ekki leik að óþörfu og séu tilbúnir
til að slá sinn bolta þegar það er hægt.
■■ Kylfingar komi sér saman um að líta framhjá reglunni um leikröð ef það
flýtir leik.
Þótt „Ready golf“ sé oft tengt við seinna atriðið má segja að það fyrra sé jafnvel
mikilvægara. Í því felst að nýta tímann sem best, huga að kylfuvali þegar
gengið er að boltanum, vera tilbúinn með kylfu og tí þegar kemur að manni að
leika á teig o.s.frv.
Að tileinka sér „ready golf“ á við alls staðar á golfvellinum.
ÞARFTU
AÐ GEYMA
GAMLA
GOLFSETTIÐ?
WWW.GEYMSLA24.IS
GEYMSLA24 | Skemmuvegi 4 | 200 Kópavogur
120 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Dómaraspjall