Háðfuglinn - 01.07.1949, Blaðsíða 7

Háðfuglinn - 01.07.1949, Blaðsíða 7
raust sína öflugum, drynjandi tónum „Táp og fjör og frískir menn“, hærra og hærra, þangað til því líkast er sem allt norður stranda stuðla-' berg muni á hverju augnabliki hrynja yfir sam- komuna. Á þessari stundu hófst blómaskeið söngsins listar í Vegleysusveit. En það hófst líka á sarnri stundu hnignunartímabil fyrir kýrnar í Styrkja- koti. Því nú mátti bóndinn á bænum ekki lengur vera að því að hugsa um búskapinn. — Hann varð stöðugt að vera á ferðinni um sveitina að syngja íyrir fólkið. Væri brúðkaup á einhverj- um bænurn, væri afmæli, væri skírnarveizla, væri verið að grafa liina dauðu, aldrei þótti nein slík athöfn fullkomin án raddarinnar frá Styrkjakoti. — Bóndinn í Styrkjakoti steig liærra og hærra á liimin frægðarinn- ar. Kýrnar í Styrkja koti sukku dýpra og dýpra í innihald flórsins. En bóndinn i Styrkjakoti ofmetn- aðist ekki af Irægð sinni. Alltaf var hann jafn alþýðleg- ur, hrokalaus, blátt áfram. Til dæmis þegar hann var búinn að syngja á einhverjum bænum hafði hann það jafn- an fyrir sið að fara með seinasta tóninn fram í eldhús að fá sér kaffi. Hann átti enga óvini, þessi yfirlætislausi mað- ur senr öllum vildi skemmta. „Hvernig getnm við launað honum ölf innilegheitin“, sagði fólkið. Og nú, þegar bóndinn í Styrkjakoti liafði haldið sína fyrstu opinberu söngskemmtun, datt fólkinu snjallræði í hug. „Það verður að kaupa nýtt orgel til að spila undir hjá honum“, sagði fólkið. „Við skulum launa honum öll innileg- heitin með því að senda hann eftir því suður“. — „Já, og endilega láta hann líka kaupa músa- gildru til frekara öryggis fyrir ofan háa-c“, sögðu gárungarnir. „Ég moka flórinn þegar ég kem aftur“, sagði bóndinn í Styrkjakoti, kvaddi konu sína og hélt til Reykjavíkur. II. KAFLI. Hér segir frá því, þegar bóndinn í Styrkjakoti hitti mennina sem áttu borð. Þegar bónclinn í Styrkjakoti steig út úr áætl- unarbílnum sem flutti hann til Reykjavíkur var komið kvöld. En þeir sem íerðast í verzlunarerindum Veg- leysusveitar spyrja ekki hvað klukkan sé, þeg- ar afgreiðsla aðkallandi mála er annars vegar. Bóndinn í Styrkjakoti sneri sér tafarlaust að hópi ungra manna sem stóðu á götuhorni og spurði: „Afsakið, en þið getið víst ekki sagt mér hvar hægt væri að fá keypt orgel við sanngjörnu verði?“ — „Orgel?" sögðu piltarnir og litu undr- andi hver á annan; orgel, meira að segja óclýrt orgel á miðri götu og komið kvöld í Reykja- vík? — Svo þóttust þeir skilja manninn. „Heyrðu vinur“, sagði einn þeirra. „Þú meinar víst brenni- vín, er það ekki? — Nei, bóndinn í Styrkjakoti meinti ekki brennivín. Bóndinn í Styrkjakoti meinti orgel. Piltarnir ræddu við manninn langa hríð, því þeir vildu svo gjarnan veita honum ein- liverja úrlausn. En þar sem það varð æ betur ljóst að verzlunaráhugi hans var ekki á því sviði að honum yrði fulnægt með þeim varningi sem piltarnir vissu einan til sölu á þessum tíma sólarhrings, þeim auk þess ókunnugt um ann- að orgel en dómkirkjuorgelið, sem varla mundi einu sinni falt að degi til, sízt af öllu við sann- gjörnu verði, þá kom þar um síðir að þeir gáf- ust upp og tjáðu sig því miður ekki vera réttu mennina til að leysa málið. Bóndinn í Styrkjakoti kvaddi ]jiltana og hélt áfram eftir götunni. Lengi gekk hann og marga vegfarendur stöðvaði hann, en enginn þeirra kunni lausn á vandamáli hans. Surnir urðu jafnvel undarlegir frammi fyrir spurningum þessa skilyrðislausa orgelkaupancla og flýttu sér burt. Seinast þóttist hann þess fullviss að hér um slóðir mundu menn vera búnir að afneita gyðju söngsins og sennilega hefðu þeir, gripn- HÁÐFUGLIN.K 7

x

Háðfuglinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Háðfuglinn
https://timarit.is/publication/2029

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.