Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 17
Db4 27.Dxb4?? Hvítur gat nú
Ieiðrétt mistökin með því, að
leika aftur 27.Bdl!! og síðan 28.
Bb3, því svartur má ekki skipta
upp á drottningum vegna lepp-
unar riddarans á c6. 27. - Rxb4
28.Hxc7 Hvítur hefur engu að
síður ágæt vinningsfæri, en
svartur hélt jafntefli að lokum.
1/2-1/2
Kvennaflokkur
Kvennaskák hefur verið í örum
vexti á síðari árum, ekki síst fyr-
ir tilstilli baráttuglaðra braut-
ryðjanda, en langt er síðan jafn
margar konur hafa að jafnaði
sest að borðum Caissu á skák-
mótum hér innanlands, ekki síst
á alþjóðlega Reykjavíkurskák-
mótinu, þar sem fjölmargar er-
lendar skákkonur, jafnvel mjög
sterkar, taka orðið þátt hverju
sinni.
Flestar sterkustu skákkonur
landsins mættu til leiks í
kvennaflokki, nema hvað skák-
drottningin og helsti talsmaður
kvennaskákar á Islandi, Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir, sá sér
ekki fært að mæta, og einnig
vantaði til dæmis Aslaugu Krist-
Frá verðlaunaafhendingu á Skákþingi tslands 2004.
um. En miðað við dugnað
kvennanna kæmi eklci á óvart,
þótt Olöf Þráinsdóttir og fleiri
skákkonur, sem gerðu garðinn
frægan hér á árum áður, færu að
taka fram skákborðið að nýju.
Óvænt úrslit áttu sér stað þegar í
upphafi, þegar Sigurlaug Regína
Friðþjófsdóttir, Karlssonar fyrrv.
formanns TR, sigraði Lenku
Ptacnikovu, en Sigurlaug hefur
lítið teflt síðasta áratuginn eða
svo, en hefur nú smitast af skálc-
bakteríunni að nýju, en hún tefl-
Lenka lét þó ekki tapið á sig fá,
en vann aðrar skákir og tryggði
sér sigur. En þar sem hún er enn
tékkneskur borgari varð Harpa
Ingólfsdóttir, Taflfélaginu Helli,
Skákmeistari Islands í lcvenna-
flokki, en hún hafði unnið
þennan titil einu sinni áður,
2000. Ungu stúlkurnar, Hall-
gerður, Elsa María og Júlía Rós
stóðu sig vel, og náði Hallgerður
að leggja Önnu Björgu Þor-
grímsdóttur, Islandsmeistara
1996. Um önnur úrslit sjá eftir-
insdóttur, af virkum skálckon- ir m. a. milcið á internetinu. farandi töflu.
Nr Nafn Stig Samt. 1 2 3 4 5 6 7 8
1 Lenka Ptácniková 2160 6.0 * 1 1 0 1 1 1 1
2 Harpa Ingólfsdóttir 1820 5.5 0 * 1/2 1 1 1 1 1
3 Guðlaug Þorsteinsdóttir 1990 5.0 0 1/2 * 1/2 1 1 1 1
4 Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir 1575 4.5 1 0 1/2 * 0 1 1 1
5 Anna Björg Þorgrímsdóttir 1660 3.0 0 0 0 1 * 0 1 1
6 Hallgerður Þorsteinsdóttir 1235 2.5 0 0 0 0 1 * 1/2 1
7 Elsa María Þorfinnsdóttir 1.0 0 0 0 0 0 1/2 * 1/2
8 júlía Rós Hafþórsdóttir 0.5 0 0 0 0 0 0 1/2 *
S K Á K
131