Skák


Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 24

Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 24
staðan auðtefldari, en hans býð- ur þó hið erfiða hlutverk að koma kóngi sínum í skjól. Sjálf- ur tefldi eg þessa stöðu gegn Helga Áss og datt eftir l.Hfl í hug að leika 1 - Dc7 til að rýma fýrir framrás b-peðsins. Þetta reyndist ekki illa, en í seinni J skákinni fann hann hinn „ónaj- dorflega“ leik 1 - a5!?, sem var bölvanlegur við að eiga, enda hótar hann að fara með peðið alla leið á a3. Hér er dæmi um það sem oft var í gangi á þessu móti; keppendur lærðu á stöð- una í fyrri skákinni og gátu í seinni skákinni nýtt sér þær pæl- ingar með skiptum litum. STAÐA 8 I I # i A i ± * i i i i *. i i A A A A & A A & H A A A H H Bird-Rosenthal, Vín 1873 Þá er það forngripurinn í safn- inu og byrjunin greinilega í anda Birds sjálfs, sem hafði dálæti á að leika fram f-peði sínu í fyrsta leik og reyndi svo að skapa þrýsing á löngu skálínunni niður á g7 með því að skásetja drottningarbisk- up sinn. Næstu leikir í skák þeirra félaga einkenndust af nokkuð torskiljanlegum liðs- flutningum, (l.Hael Rh6 2.Bdl Rh5 3.Khl Rg4 4.Hgl, o.frv.!), er hvítur náði brátt yfir- höndinni og sigraði. I stöðunni sem upp er komin er í sjálfu sér ekki margt að gerast, og margir ] keppenda munu hafa fetað í fór- spor höfundanna að fara sér hægt og sjá til. STAÐA 9 Kortsnoj-Karpov Hér voru þeir íjandvinirnir að berjast um heimsmeistaratitilinn í Moskvu árið 1974, án þess að vita um það sjálfir. Staðan kom upp í skák 11 af 24 og hafði Kar- pov þá unnið tvær en Viktor enga. Þetta er dæmigerð hanga- peðsstaða og báðir líklega á heimavelli. Hér er svartur líklega með a.m.k. jafnt tafl og ekki augljóst hvernig hvítur heldur áfram. Viktor lék l.e3 og eftir 2 - Bc6 3.Dc2 Ba4?! (líklega er 3 - d4!? betra), 4. b3 fékk hann upp stöðu sem hann reyndi lengi að svíða en Karpov hékk naumlega á. Fyrir áhugasama má rifja upp að Karpov vann sinn þriðja sigur í 17. skákinni; Kortsnoj náði loks að vinna skák í þeirri 19. og svo aftur í þeirri 21., en lengra komst hann ekki. Með minnsta mun hreppti Anatólí þannig réttinn til að skora Robert James á hólm en við vitum öll hvernig það fór. I MH léku nokkrir eins og Kortsnoj og einhver fann annan 138 S K A K

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.