Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 36
tfiij í^|,V,iS
I I
Jy J
Skákfélagið Mjölnir
Þráinn Guðmundsson:
Örlög Skákfélagsins Mjölnis
hafa lengi verið mér hulin ráð-
gáta. Mig hefur oft langað til að
skrifa um félagið, sem skaust
eins og Sputnik uppá skákhim-
ininn árið 1975 og var mjög
virkt f nokkur ár eða allt fram til
ársins 1982, er það hvarf úr
skáklífinu jafn óvænt og það
skaust fram í dagsljósið - og þó
héldu virkustu skákmenn þess
nær allir áfram að tefla - og eru
margir hverjir enn að!
Eg hef gert margar tilraunir síð-
asta áratug til að hafa upp á ein-
hverjum gögnum um sögu og
starf félagsins, en án árangurs.
Fyrrum forystumenn félagsins
hafa tekið málaleitan minni vel,
en síðan ekki söguna meir - og
sífellt fennir í sporin. Félagið
átti töfl og klukkur sem í sjálfu
sér tilheyra ekki skáksögunni, en
fundargerðir, mótabók, mót-
stöflur, verðlaunagripir og önn-
ur gögn um merkt starf virðast
ekki fyrirfmnast - og þó -, von-
andi kemur eitthvað af þessu nú
í leitirnar í kjölfar þessa greina-
korns og skilar sér til Skákminja-
safnsins þar sem það á heima!
Við Haraldur heitinn Blöndal
ræddum oft um nauðsyn þessa
og hann hafði reyndar hug á að
fara í eftirleitir hvað þetta varðar
og ég hefði treyst honum manna
best til þess verks, en þar tóku
máttarvöldin því miður fram
fyrir hendur þess ágæta drengs
og fyrrum formanns Mjölnis
eins og skákmenn vita nú.
Ýmislegt liggur þó fyrir um
Skákfélagið Mjölni. Hinn 8.
september 1975 kom saman
hópur skákmanna, flestir úr
T.R., og ákváðu að stofna nýtt
skákfélag sem heita skyldi
Mjölnir eftir hamri Þórs og
væntanlega átti nafnið að vera
táknrænt fyrir þau þungu högg
sem veita skyldi andstæðingun-
um. Formleg stofnun fór svo
fram 29. október sama ár og var
stofnfundurinn í Sjómannaskól-
anum. Líkt og hjá öðrum taflfé-
lögum í gegnum tíðina voru
húsnæðismálin erfið Mjölnis-
mönnum í byrjun. Þeir fengu í
fyrstu athvarf í húsi Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur við Tjörnina,
því sögufræga húsi, síðan í Vél-
skólanum og Jóhann Þórir hýsti
starfsemina um sinn á skákstofu
sinni vestur á Hagamel. Breið-
holtið varð síðar einskonar
heimahverfi þeirra og athvarfið í
Fellahelli, miðstöð æskulýðsráðs
í Fellaskóla.
Það hlýtur að hafa farið um for-
ystumenn T.R. þegar Ijóst var
hverjir stæðu að félaginu eða
tefldu á þess vegum næstu árin.
Þar voru landsliðsmenn og fyrr-
um Ólympíufarar í röðum, m.a.
Ingvar Asmundsson, Magnús
Sólmundarson, Ólafur Magnús-
son, Bragi Halldórsson, Jónas
Þorvaldsson, Björgvin Víglunds-
son og Jón Þorsteinsson svo að
einhverjir séu nefndir og sjálfur
Friðrik Ólafsson mætti hjá félag-
inu og skýrði skákir.
Fljótlega í kjölfar stofnunar
sóttu Mjölnismenn um inn-
göngu í Skáksambandið og voru
samþykktir á aðalfundi eftir
harðar deilur og flokkadrætti.
Sveit félagsins tók svo þátt í
Deildakeppninni og sigraði þar
strax á fyrsta ári 1976 og þóttu
það mikil tíðindi í hinum litla
íslenska skákheimi. Þetta gaf fé-
laginu byr undir báða vængi og
blómstaði starfsemin þessi fyrstu
150
S K A K