Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 27
Lilja var kjörin með lófataki og
þar með hafði sá sögulegi at-
burður átt sér stað, að kona sest
í fyrsta skiptið í stól forseta sam-
bandsins.
Hún lagði fram „ráðherralista“
sinn: Gunnar Björnsson, Harpa
Ingólfsdóttir, Haraldur Baldurs-
son, Helgi Ólafsson, Hrafn Jök-
ulsson og Ólafur Kjartansson í
aðalstjórn og Helgi Arnason,
Páll Sigurðsson, Auðbergur
Magnússon í varstjórn, auk þess
sem Björn Þorfmnsson bauð sig
fram á fundinum. Voru allir
kjörnir með lófataki.
Úr aðalstjórn hurfu Stefán Bald-
ursson, Bragi Kristjánsson, Rík-
harður Sveinsson og Haraldur
Blöndal. Úr varastjórn gengu
Þorfinnur Björnsson, Ingvar
Þór Jóhannesson og Daði Örn
Jónsson.
Engar breytingar urðu á kjör-
bréfanefnd og endurskoðendur
reiknings eru hinir sömu.
Miklar breytingar urðu á Dóm-
stól Skáksambands Islands. Að-
almenn eru Ingólfur Friðjóns-
son, lögmaður, Jón Rögnvalds-
son og Ólafur H. Ólafsson.
Varamenn eru Hilmar Ingi-
mundarson, lögmaður, Hlíðar
Þór Hreinsson og Þráinn Guð-
mundsson. Aðeins Ólafur og
Þráinn sátu í fyrri dómstól, báð-
ir sem varamenn.
Sá liður fundarins, sem að venju
tók mestan tíma, var umræða
um lagabreytingatillögur, en þær
voru nokkrar.
Fyrst ber að geta um tillögur
stjórnar SI, sem í raun voru lag-
færingar og samræmingar á
Skáklögum sambandsins. Sam-
ræmdar eru reglur um val á
landsliði og val keppenda í
landsliðsflokk og auk þess eru
felld út ákvæði, sem tilgreina
þann tíma, sem tefla skuli mód
á. Þessar tillögur voru allar sam-
þykktar samhljóða.
Einnig lágu fyrir fundinum til-
lögur nefndar um Islandsmót
skákfélaga, sem stjórn SI setti á
fót á síðasta starfsári. Samþyklít-
ar voru tillögur um, að tvö lið
færu á milli deilda og að einn
vinningur verði dreginn af sveit,
sem stillir upp ólöglegum skák-
manni, óháð úrslitum.
Tillögu nefndarinnar þess efnis,
að hvert lið í 1. deild skili lista
yfir 15 skákmenn, fyrir hvert
mót, var vísað frá, með miklum
atkvæðamun. Söma afgreiðslu
fékk tillaga um að fella niður hið
umdeild ákvæði, sem kveður á
um lágmarksfjölda íslenskra rík-
isborgara, eða þeirra, sem dvalið
hafa á Islandi undanfarið ár,
í hverri sveit. Þetta umdeilda
lagaákvæði, sem takmarkar
fjölda útlendinga í hverri sveit,
er þannig áfram í gildi.
Loks lágu fyrir fundinum tillög-
ur Júlíusar Friðjónssonar um
niðurröðun á milli liða. Þær
voru samþykktar, nokkuð
breyttar. Atvæði féllu 16-9. Þar
sem ekki er auðvelt í stuttu máli
að gera grein fyrir tillögunni í
heild og afgreiðslu hennar á
fundinum er einfaldast að láta
hana fylgja hér á eftir
19. gr. Skáklaga SÍ, eins og hún
hljóBar, eftir breytingar:
„Keppendur skulu vera fullgildir
félagsmenn þeirra taflfélaga sem
þeir tefla fyrir. Raða skal kepp-
endum í sveitir og á borð eftir
skákstyrkleika. Ekki er leyfilegt
að breyta röð keppenda eftir að
keppni hefst. Keppandi getur
flust upp eða niður um sveit
hvenær sem er keppninnar en
heildarröð keppenda verður að
haldast.
Komi lið ekki til keppni án or-
saka tapar það skákum á öllum
borðum. Komi slíkt fyrir tvisvar
skal liðið dæmt úr keppninni. I
hverri viðureign skal a.m.k.
helmingur liðsmanna hverrar
sveitar vera íslenskir ríkisborgar-
ar eða hafa verið með lögheimili
sitt á Islandi undanfarið ár.“
Eftir að búið var að afgreiða
lagabreytingar var kominn
nokkur óróleiki í ýmsa fundar-
menn, enda var farið að styttast í
knattspyrnulandsleik Islands og
Englands, sem fram fór síðar
þennan dag. Nýkjörinn forseti
sambandsins sleit því fundinum,
án þess að fleira markvert gerð-
ist.
Að lokum óskar undirritaður
Lilju til hamingju með forseta-
embættið og vonar, að nýkjör-
inni stjórn hennar, samsteypu-
stjórn gömlu og nýju skákhreyf-
ingarinnar, farnist vel við úr-
vinnslu erfiðra verkefna.
Bragi Kristjánsson
m m m m
S K A K
141