Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 20
Kostenjúk Evrópumeist-
ari kvenna 2004
Evrópumeistaramót kvenna var
haldið I Dresden í Þýskalandi,
dagana 21. mars - 2. apríl s.l.
108 keppendur tefldu 12 um-
ferðir, skv. Svissneska kerfinu.
Jafnar í efsta sætinu urðu Al-
exandra Kostenjúk (Rússlandi)
og Peng Zhaoquin (Hollandi),
hlutu 9i/2 v. afl2.Sú fyrrnefnda
vann aukakeppni, 11/2 - 1/2.
Antoaneta Stefanova (Búlgar-
íu) varð þriðja, eftir aukakeppni.
Mamedyarov sigraði á
opna skákmótinu í Dubai
2004
Hið árlega opna skákmót í
Dubai í Arabísku Furstadæmun-
um var haldið í sjötta skiptið,
dagana 19.-28. apríl s.l. 138
keppendur tefldu 9 umferðir,
eftir Svissneska kerfinu.
Sigurvegari varð hinn bráðefni-
legi stórmeistari, Shakriyar
Mamedyarov, frá Azerbajsjan,
hlaut 7 vinninga, af 9. Annar
efnilegur skámeistari stóð sig
frábærlega á mótinu, en það er
Magnus Carlsen, sem þarna náði
síðasta áfanganum að stórmeist-
aratitli, eftir vonbrigðin í
Reykjavík. Carlsen er yngsti
stórmeistari í heimi í dag, en að-
eins annar yngsti frá upphafi, á
eftir Karjakin frá Ukraínu, sem
náði titlinum 12 ára að aldri.
Efstu menn í Dubai urðu:
1. Mamedyarov, sm (2657), Az-
erbajsjan, 7 v; 2.-13. Nisipeanu,
sm (2692), Rúmeníu; Sasikiran,
sm (2659), Indlandi; Ior-
dachescu, sm (2627), Moldavíu;
Vladimirov, sm (2621),
Khazakstan; Harikrishna, sm
(2599), Indlandi; Miros-
hnisjenkó, sm (2599), Ukraínu;
Eljanov, sm (2592), Ukraínu;
Minasjan, sm (2585), Armeníu;
Al-Modiahki, sm (2579), Qvat-
ar; Goloshsjabov, sm (2569),
Ukraínu; Magnus Carlsen, am
(2552), Noregi; Mamedov, am
(2494), Azerbajsjan, 61/2 vinn-
ing hver.
Nielsen og Hansen deildu
efsta sætinu á Sigeman
mótinu 2004
Hið árlega Sigeman skákmót var
haldið í Malmö og Kaupmanna-
höfn, dagana 30. apríl til 9. maí
s.l.
8 stórmeistarar og 2 alþjóð-
legur meistarar tefldu á mótinu,
sem var í 13. styrkleikaflokki
FIDE, meðalstig 2567.
Peter-Heine Nielsen náði
landa sínum, Curt Hansen, með
því að sigra hann í síðustu um-
ferð. Enn einu sinni „brilljer-
aði“ Magnus Carlsen, vann m.a.
Nielsen.
Urslitin urðu:
1.-2. Peter-Heine Nielsen, sm
(2628), Curt Hansen, sm
(2635), báðir Danmörku, 6
vinninga hvor, af 9; 3. Magnus
Carlsen, am (2552), Noregi, 5Ú2
v; 4. Alexander Beljavskíj, sm
(2667), Slóveníu. 5 v; 5. -6.
Eduardas Rozentalis, sm (2619),
Lítháen, Jonny Hector, sm
(2512), Svíþjóð, 4i/2 v. hvor; 7.
Evgeníj Agrest, sm (2601), Sví-
þjóð, 4 v; 8. Tiger Hillarp Pers-
son, sm (2513), Svíþjóð, 3>/2 v;
9.-10. Jacob Aagaard, am
(2400), Danmörku, Nick de
Firmian, sm (2542), Bandaríkj-
unum, 3 v. hvor.
Bragi Kristjánsson
m m m m
t
Stuðlahálsi 2, Reykjavík,
sími 560 7700
\h
Haraldur r
Böðytirsson hf.
r 7/kranesi
Haraldur
Böðvarsson
Bárugötu 8-10,
300 Akranesi, sími 430 1800
Olíufélagið hf. Esso,
Suðurlandsbraut 18, Reykjavík,
sími 560 3300
134
S K A K