Skák


Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 26

Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 26
r TQKSaíTltXlft j r j _jJ r m 7 /, -j Aðalfundur Skáksambands Islands 2004 var haldinn hinn 5- júní sl. í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12, Reykjavík. Fundurinn var að þessu sinni með fámennasta og ró- legasta móti, enda stóð hann aðeins í rúmar þrjár klukkustundir. Stefán Baldursson, forseti sam- bandsins, setti fundinn og var Helgi Áss Grétarsson kosinn fundarstjóri og Ríkharður Sveinsson fundarritari. Torfi Le- ósson tók við fundarritun, þegar á fundinn leið. Fráfarandi forseti fór yfir skýrslu stjórnar og minntist látins stjórnarmanns, Haraldar Blön- dal. Risu fundarmenn úr sætum og vottuðu hinum látna virð- ingu sína með einnar mínútu þögn. I ræðu sinni kom Stefán inn á þau glæsilegu alþjóðlegu skákmót, sem sambandið stóð íyrir á síðasta starfsári, Reykja- víkurskákmótið og Reykjavik Rapid. Hann ræddi einnig um þær deilur og málaferli, sem stóðu íyrir dómstóli SI á síðasta starfsári. Af öðrum málum, sem hann kom að, má nefna agamál skákmanna og félaga, en þau taldi hann mega vera í betra samræmi við stöðu þeirra mála hjá öðrum íþróttagreinum. Bragi Kristjánsson, gjaldkeri, fór yfir reikninga sambandsins fyrir almanaksárið 2003. Tap var á rekstri sambandsins um 1,3 millj- ónir og staðan versnaði enn á fimm fyrstu mánuðum þessa árs, um upp undir 2 milljónir króna, vegna Reykjavíkurskákmótsins og Reykjavik Rapid. Bragi benti á, eins og Stefán, forseti, hafði einnig gert í sinni ræðu, að á und- anförnum árum hafi fjárhagsáætl- un verið afgreidd á aðalfúndum með gati upp á nokkrar milljónir króna, síðast tæpar 5 milljónir, og hafi fjáröflun eldd náð að stoppa í það gat. Hann sagði fjárhagsá- ætlun þessa fundar ekki verða með sama hætti. Einnnig kom fram, að tap varð á Tímaritinu Skákum 600þús. krónur, sem stafaði af lægri tekjum af auglýs- ingasöfnun á síðasta ári. Umræður um störf stjórnar og reikninga voru litlar og reikning- ar samþykktir. Þrjú ný taflfélög gengu í sam- bandið. Taflfélag Snæfellsbæjar (hefur teflt í Islandsmóti skákfé- laga), Kátu biskuparnir í Hafn- arfirði, og Skákdeild Fjölnis í Reykjavík. Fjárhagsáætlun var lögð fram og bar hún þess merki, að ekki yrði haldið áfram á braut undanfar- inna ára, að áætla fjársöfnun upp á milljónir króna. Var hún sam- þykkt, eftir litla umræðu. Þá var komið að stjórnarkjöri. Stefán Baldursson, forseti sam- bandsins, gaf ekki kost á sér til endurkjörs, því að hann er að flytjast til útlanda, vegna vinnu sinnar. Guðfríður Lilja Grétars- dóttir bauð sig fram til forseta- embættisins og flutti stutta ræðu, þar sem hún kom inn á helstu stefnumál sín. Fjármál sambandsins verði að styrkja, sambandið verði sýnilegra og bæta þurfi samskiptin við fjöl- miðla, skoða þurfi þjálfun ís- lenskra skákmanna og efla þurfi Skákskóla Islands, Tímaritið Skák þurfi að styrkja og efla og treysta þurfi samskipti sam- bandsfélaganna. 140 S K A K

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.