Skák


Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 22

Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 22
I Moskvu árið 1925 var hér leik- ið lö.Hfdl Hfd8 17.Rel Bxe2 18.Dxe2 og eftir nokkra liðs- flutninga náði hvítur kóngssókn með De2-g4 og h2-h4-h5. Hvíta staðan virðist afar mein- laus og keppendur höfðu það gjarnan á orði að hún byði ekki upp á mikil færi. Réti gamli var hinsvegar seigur í þessum töflum og náði að landa sigri. STAÐA 2 Þessi var tefld í London árið 1982 og hér sýnir kóngsind- verska vörnin sínar bestu hliðar; svartur á fyrirtaks stökkpall á e5 og getur fremur bætt stöðu sína en hvítur, sem er með áberandi veikleika á e4. Portisch lék hin- um sjálfsagða leik 22.BÖ og lenti í vörn eftir 22 - De7 23.Bg5 h6 24.Bh4 g5 25.Bel Hf8. Nunn skipti upp á hrókum, vann peðið á e4 og skákina í framhaldinu. Margir teflenda í MH lentu í svipuðum hremmingum, en Hannes Hlífar Stefánsson kom með athyglisverða nýjung í stöð- unni; 22.e5!?. Hann komst sum- sé að þeirri niðurstöðu að peðið væri hvort sem er dauðadæmt og ákvað að gefa það strax. Allt fútt Minningarmótið skemmtilega í algleymingi! er úr svörtu stöðunni ef hann drepur með peði og eftir 22 - Hxe5 23.Bf4 hefur hvítur eitt- hvað frumkvæði fyrir peðið. Svidler-Ilincic, Halkidiki 2002 Nýleg skák og e.t.v. hafa ein- hverjir vel lesnir keppendur kannast við hana, hvort sem það hefur hjálpað eitthvað. I það minnsta fer það varla framhjá kunnáttumönnum að staðan kemur upp úr „ensku árásinni“ í Najdorf. Kannski hefur eitthvað farið tirskeiðis hjá hvítum úr því hann treysti sér ekki til þess að hróka langt. Mörgum varð star- sýnt á landvinninga svarts á drottningarvæng og reyndu að finna leiðir til að sporna við þeim. Einhverjir fetuðu í fórspor Svidlers og léku l.c3 bxc3 2.Hacl! og náðu þar með að koma hrók á opna c-línu. I reyndinni tókst Júgóslavanum þó að halda jöfnu þrátt fyrir ákafar vinningstilraunir Svidlers í 60 leiki. STAÐA 4 136 S K A K J7L

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.