Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 21
Áskell Örn Kárason:
MinnisvQ t mtit
Minningarmót um Jón Þorsteinsson (1924-1994),
haldið í Menntaskólanum við Hamrahlíð 28-29. febrúar 2004
Það voru synir Jóns með þá Jón
Gunnar og Jóhannes Gísla í fara-
rbroddi sem stóðu fyrir þessu
móti í minningu föður síns, sem
hefði orðið áttræður á þessu ári.
Jón var virkur í hópi okkar
sterkustu meistara um áratuga
skeið og öllum skákáhugamönn-
um minnistæður. Agætt yftrlit er
um skákferil hans í þættinum
„Islenskir skdkmeistarar' í 1. tbl.
Tímaritsins SKAKar í ár.
Hugmyndin um að hefja taf-
lið í fyrirfram uppstilltum stöð-
um er frumleg og skemmtileg og
er svipuð því sem tíðkast hefur í
sk. „temamótum“, þar sem
keppendur eru skyldugir til að
tefla ákveðna byrjun. Það mun
hafa verið Jóhannes Gísli sem
valdi stöðurnar, og leitaði víða
fanga. Hann leitaði í smiðju
stómeistara taflborðsins fyrr og ;
nú, oft til þeirra sem hafa borið j
heimsmeistaratign eða verið j
mjög nálægt því. Af skiljanleg-
um ástæðum eru engir Islend- !
ingar meðal skákahöfunda og
flest dæmin eldri en 20 ára. Það
elsta er raunar frá 1873!
Þessi háttur gerði mótið j
óneitanlega eftirminnilegt; að
minnisverðu minningarmóti
sem skilur sig frá öðrum mót-
^ Jp
Jón Þorsteinsson.
um, þar sem taflið hefst ætíð
með sömu upphafsstöðu. Þá er
það óneitanlega vel við hæfi að
tefla fram stöðum frá mismun-
andi tímum þegar minnst er
skákmanns sem var kominn á
svo virðulegan aldur eftir stríð
að hann kallaði Friðrik Olafsson
„krakkann“ og atti kappi við
menn sem voru fæddir fyrir
1900 og síðar aðra sem komu í
heiminn um 1970. Sjaldnar hef-
ur það verið betur við hæfi að
minna á hið sígilda í skákinni; !
sérhver staða er ný þótt hún sé J
gömul. Þessa daga í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð sett-
umst við í sæti Retis og Bogolju-
bovs, Laskers og Steinitz. Það er
heillandi hugsun.
Framkvæmdin gekk prýði-
lega. Við upphaf hverrar um-
ferðar birtist viðkomandi upp-
hafsstaða á tjaldi. Eftir að kepp-
endur höfðu raðað upp hófst
taflið; þegar fyrri skák var lokið
tefldu menn að nýju með skipt-
um litum. Þannig fékk hver að
spreyta sig á hverri stöðu bæði
með hvítt og svart.
Það var Jóhannes Gísli sem
valdi stöðurnar og þær komu fyr-
ir sjónir keppenda í þessari röð:
STAÐA I
S K A K
135