Skák


Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 10

Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 10
Við gömlu mennirnir í skákinni ólumst flestir upp við það, að Landsliðsflokkur Skákþings Is- lands væri haldinn á páskum, jafnhliða öðrum flokkum skák- þingsins. Hin síðari ár hafa þó orðið breytingar og sterkustu skákmenn landsins hafa jafnan sest að tafli þegar líða tekur að hausti, en að þessu sinni var á- kveðið, af æðstu ráðamönnum skákhreyfingarinnar, að forða þeim frá fermingarveislum og páskaeggjaofáti, því mótið var nú háð á gamla tímanum. Fengu þeir Orkuveituna til liðs við sig og gengu menn á þeim bænum fram af rausnarskap, eins og ætla mátti. Aðstæður á skákstað voru mjög góðar, bæði fyrir keppend- ur og áhorfendur. Samhliða Landsliðsflokki fóru fram hin ýmsu mót önnur, þar á meðal Kvennaflokkur Skák- þingsins. Áskorenda- og opinn flokkur var haldinn á sama tíma, en innan hans fór fram Ung- lingameistaramót Islands og Is- landsmót öldunga. En byrjum á Landsliðsflokki. Landsliðsflokkur Landsliðsflokltur var að þessu sinni háður með útsláttarfyrir- komulagi sem menn voru reyndar ekki á eitt sáttir við. Fyr- irkomulagið kemur frá Róm, eins og svo margt annað, þar sem skylmingaþrælar keisarans börðust einn gegn einum uns aðeins einn stóð eftir. Hannes Hlífar Stefánsson var vitaskuld sigurstranglegasti keppandinn, en hann hefur nánast verið áskrifandi að Islandsmeistaratitl- inum hin síðari ár. Að þessu sinni mætti honum þó úrvalslið íslenskra skákmanna, með stór- meistarana Helga Áss Grétarsson og Þröst Þórhallsson í broddi fylkingar, auk fjögurra alþjóð- iegra meistara, átta Fide-meist- ara og eins titillauss skákmanns. En til að gefa keppendum betri möguleika á að hrifsa titilinn úr höndum meistarans, settu skák- yfirvöld á fót fjórtefli til að þreyta kappann og var „einvígi“ Hannesar Hlífars og Jóhanns Hjartarsonar, tveggja sterkustu skákmanna Islendinga hin síðari ár, hluti af setningarathöfn mótsins. Annars voru keppend- ur eftirfarandi: 1. Hannes Hlífar Stefánsson SM 2600 9. Sigurður Daði Sigfússon FM 2330 2. Helgi Ass Grétarsson SM 2525 10. Sigurbjörn Björnsson FM 2315 3. Þröstur Þórhallsson SM 2470 11. Ingvar Þór Jóhannesson FM 2290 4. Bragi Þorfmnsson AM 2420 12. Ingvar Ásmundsson FM 2280 5. Stefán Kristjánsson AM 2410 13. Davíð Kjartansson FM 2275 6. Jón Garðar Viðarsson AM 2375 14. Snorri G. Bergsson FM 2275 7. Sævar Bjarnason AM 2345 15. Þorsteinn Þorsteinsson FM 2255 8. Björn Þorfmnsson FM 2340 16. Kristján Eðvarðsson 2230 124 S K A K

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.