Skák - 01.05.2004, Qupperneq 10
Við gömlu mennirnir í skákinni
ólumst flestir upp við það, að
Landsliðsflokkur Skákþings Is-
lands væri haldinn á páskum,
jafnhliða öðrum flokkum skák-
þingsins. Hin síðari ár hafa þó
orðið breytingar og sterkustu
skákmenn landsins hafa jafnan
sest að tafli þegar líða tekur að
hausti, en að þessu sinni var á-
kveðið, af æðstu ráðamönnum
skákhreyfingarinnar, að forða
þeim frá fermingarveislum og
páskaeggjaofáti, því mótið var
nú háð á gamla tímanum. Fengu
þeir Orkuveituna til liðs við sig
og gengu menn á þeim bænum
fram af rausnarskap, eins og ætla
mátti. Aðstæður á skákstað voru
mjög góðar, bæði fyrir keppend-
ur og áhorfendur.
Samhliða Landsliðsflokki fóru
fram hin ýmsu mót önnur, þar á
meðal Kvennaflokkur Skák-
þingsins. Áskorenda- og opinn
flokkur var haldinn á sama tíma,
en innan hans fór fram Ung-
lingameistaramót Islands og Is-
landsmót öldunga. En byrjum á
Landsliðsflokki.
Landsliðsflokkur
Landsliðsflokltur var að þessu
sinni háður með útsláttarfyrir-
komulagi sem menn voru
reyndar ekki á eitt sáttir við. Fyr-
irkomulagið kemur frá Róm,
eins og svo margt annað, þar
sem skylmingaþrælar keisarans
börðust einn gegn einum uns
aðeins einn stóð eftir. Hannes
Hlífar Stefánsson var vitaskuld
sigurstranglegasti keppandinn,
en hann hefur nánast verið
áskrifandi að Islandsmeistaratitl-
inum hin síðari ár. Að þessu
sinni mætti honum þó úrvalslið
íslenskra skákmanna, með stór-
meistarana Helga Áss Grétarsson
og Þröst Þórhallsson í broddi
fylkingar, auk fjögurra alþjóð-
iegra meistara, átta Fide-meist-
ara og eins titillauss skákmanns.
En til að gefa keppendum betri
möguleika á að hrifsa titilinn úr
höndum meistarans, settu skák-
yfirvöld á fót fjórtefli til að
þreyta kappann og var „einvígi“
Hannesar Hlífars og Jóhanns
Hjartarsonar, tveggja sterkustu
skákmanna Islendinga hin síðari
ár, hluti af setningarathöfn
mótsins. Annars voru keppend-
ur eftirfarandi:
1. Hannes Hlífar Stefánsson SM 2600 9. Sigurður Daði Sigfússon FM 2330
2. Helgi Ass Grétarsson SM 2525 10. Sigurbjörn Björnsson FM 2315
3. Þröstur Þórhallsson SM 2470 11. Ingvar Þór Jóhannesson FM 2290
4. Bragi Þorfmnsson AM 2420 12. Ingvar Ásmundsson FM 2280
5. Stefán Kristjánsson AM 2410 13. Davíð Kjartansson FM 2275
6. Jón Garðar Viðarsson AM 2375 14. Snorri G. Bergsson FM 2275
7. Sævar Bjarnason AM 2345 15. Þorsteinn Þorsteinsson FM 2255
8. Björn Þorfmnsson FM 2340 16. Kristján Eðvarðsson 2230
124
S K A K