Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 35
nokkrum sinnum, svo og Skosk-
an leik. Jafnvel gegn Caro-kann,
Pirc og Aljekín var óhefSbundn-
um eða sjaldséðari afbrigðum
beitt. Gegn franskri vörn sáust
ýmiskonar frumleg viðbrögð, en
til dæmis lék Róbert 3. exd5 og
hið sama gerir einnig Ingvar As-
mundsson að staðaldri, en báðir
þessir skákmenn reyna að þræða
ótroðnar slóðir í skákum sínum
með hvítt, elcki síst gegn franskri
vörn, sem reynist mörgum skák-
manninum erfið. Þröstur Þór-
hallsson hefur löngum teflt lítt
þekkt afbrigði gegn franskri
vörn og hefur eftirfarandi byrjun
því varla komið Ingvari Þór, sem
hafði svart, mjög á óvart:
l.e4 e6 2.d4 d5 3.Rc3 Bb4
4.Rge2
I raun og veru má segja, að nær
allar skákir mótsins hafi verið
tefldar effir lítt troðnum slóðum
hliðarvaríanta. Gárungar geta því
sagt, svona eftirá að hyggja, að Is-
landsmótið 2003 hafi verið
minningarmót um Benóný Bene-
diktsson. Undantekningar voru
þó nokkrar, til dæmis skák Hann-
esar Hlífars gegn Stefáni, þar sem
upp kom hefðbundin staða í
Drottningarindverskri vörn.
I.d4 Rf6 2.c4 e6 3.Rf3 b6 4.g3
Ba6 5.b3 Bb4+ 6.Bd2 Be7
7.Bg2 c6 8.0-0 d5 9.Dc2 0-0
lO.Hdl Rbd7
Keppendur á Skákþinginu voru
þó ekki alveg fastir í teoríufælni,
því Jón Viktor vann heimavinnu
sína vel og tók Björn Þorfmns-
son, hinn baráttuglaða fram-
sóknarmann að norðan, í
kennslustund í fræðunum.
Skákin tefldist svo, og hafði Jón
hvítt:
l.e4 e5 2.RÍ3 Rc6 3.Rc3 Rf6
4.d4 Bb4 5.Rxe5 Rxe4 6.Dg4
Rxc3 7.Dxg7 Hf8 8.a3 Rxd4
9.axb4
Hér lék Björn nýjum leik, 9. -
Rf5, og tapaði. Eðlilegast hefði
verið að leika 9. - Rxc2, en grun-
aði menn, að Jón Viktor myndi
þá luma á einhverju góðgæti af
eldhúsborðinu. Heimavinnan
skilaði árangri, en hvers vegna?
Jú, vegna þess að svartur teflir
nánast alltaf sömu byrjanirnar
og er því afar fyrirsjáanlegur.
Þrátt fyrir það sá hann enga
ástæðu til að koma á óvart og
forðast undirbúning andstæð-
ings síns, heldur lagðist flatur á
eldhúsborðið.
Kannski er byrjanaval á Skák-
þingi íslands dæmi um það, að
íslenskir skákmenn með um og
yfir 2200 þekkjast orðið það vel,
að mikil ástundun við skákrann-
sóknir er nauðsynleg, ef menn
ætla á annað borð að hefja ein-
hverja fræðilega umræðu á reit-
unum 64. Fjölmargir skákmenn
hafa hætt taflmennsku og því er
hópurinn, sem eftir stendur,
frekar rýr. Það sást meðal annars
á því, að erfitt reyndist að
manna sætin 12, eins og oft hef-
ur verið raunin á síðustu 10-15
árum. Vonandi nær skákforystan
að hrinda af stað einhverri upp-
stokkun á mótinu og helst sem
fyrst, áður en vafasamir leikir
eins og 1. a3!? og 1. f4!? verða al-
gengustu upphafsleikir skák-
manna í landsliðsflokki Skák-
þings Islands.
■ ■ ■ ■
S K A K
149