Skák - 01.05.2004, Blaðsíða 29
Bronstein var í allra fremstu röð,
árin eftir heimsmeistaraeinvígið
og tefldi oft frábærlega vel. Lík-
lega hefur millisvæðamótið í
Gautaborg 1955 verið annar
tindur á ferli hans og væri öllum
skákáhugamönnum hollt að
skoða skákir hans á því móti.
Mjög óvænt tap hans fyrir Car-
doso (Filipseyjum) í síðustu um-
ferð á millisvæðamótinu í Por-
toroz 1958 (hans fyrsta á milli-
svæðamóti) batt í raun enda á
keppni hans um heimsmeistara-
titilinn. Tapið braut einnig blað
í skáksögu Islendinga, því að það
varð til þess, að Friðrik Ólafsson
vann sér sæti á áskorendamóti.
Bronstein tefldi á tveimur milli-
svæðamótum, eftir það, árin
1964 og 1973, en kornst ekki
áfram í áskorendamót.
Bronstein hefur lagt margar
merkilegar hugmyndir til byrj-
anafræðinnar og hann var m.a.
einn af þeim, sem mest lögðu til
rannsókna og þróunar á „fram-
úrstefnubyrjuninni“, Kóngsind-
verskri vörn.
Bronstein er vinsæll á meðal
skákmanna, alltaf vingjarnlegur,
brosandi og kurteis. Skilningur
hans á skák og snjallar hug-
myndir hafa skapað mörg lista-
verk á skákborðinu. Hann er
vafalaust einhver fremsti rithöf-
undur á skáksviðinu og bók
hans um áskorendamótið 1953
er rit, sem enginn skákmeistari
ætti að láta ólesið. Bókin hefur
komið út í íslenskri þýðingu
Braga Halldórssonar í tveimur
bindum, en annað þeirra er því
miður ófáanlegt í dag.
Bronstein að tafli.
Bronstein hefur oft komið til Is-
lands og hélt m.a. annars upp á
tvö stórafmæli hér á landi, 50 og
70 ára. Hann dvaldi hérlendis í
nokkra mánuði fyrir 10 árum og
var mjög fróðlegt að fylgjast með
honum útskýra leyndardóma
skáklistarinnar fyrir ungum og
efnilegum meisturum framtíðar-
innar. Höfundum þessa pistils
er sérlega minnisstæðar úrskýr-
ingar hans á stöðu, þar sem
svartur fórnaði skiptamun á e3.
Ungu mennirnir fylgdust opin-
mynntir með (og höfundar
pistilsins líka!). Staðan kom upp
í annarri af tveimur samráðs-
skákum í Skákskóla Islands.
Skipt var í tvö lið, yngri nem-
endur, styrktir af Bronstein,
voru í öðru liðinu, en eldri nem-
endur í hinu. Lið Bronsteins
vann með svörtu og byrjunin í
þeirri skák var þessi:
Hvítt: Eldri nemendur
Svart: Yngri nemendur
+ Bronstein
Pircvörn
Informator: B08
l.e4 d6 2.d4 Rf6 3.Rc3 g6
4.Rf3 Bg7 5.Be2 0-0 6.0-0 a6
7.a4 Rc6 8.d5 Rb8 9.h3 e6
10.Be3 exd5 ll.exd5 He8
12.a5
Yngri nemendurnir voru tregir
til að fórna á e3 í þessari stöðu.
Þá sagði Bronstein við þá „Þið
eruð kjarldausir, ef þið fórnið
ekki á e3. Þið ættuð ekki að tefla
skák, ef þið þorið ekki að fórna
skiptamun í svona stöðu“.
12. - Hxe3 13.fxe3 De7
l4.Dd2 Bh6 15.Rdl
Framhald skákarinnar er því
miður glatað.
Bronstein tefldi á 1. borði í b-
liði (!) Taflfélags Reykjavíkur í
seinni hluta Deildarkeppni
Skáksambands Islands, veturinn
1993-4. Hann tefldi þrjár skák-
ir og vann þær allar, með hvítu
gegn Guðmundi Gíslasyni og
Jóni Torfasyni, og nú skulum
við sjá skákina, þar sem hann
stýrði svörtu mönnunum:
S K A K
143