Freyja - 01.09.1905, Qupperneq 2
26.
FREYJA
VIII. 2-
aö fullu mér kendi,
samtíðin von minni vaggar
og vekur upp trúna,
sál mína sœttir við lífiö
og. sárin mín grœöir,
lætur mér fylgd þína fala
til framtíðar landsins.
Mundu þaö vel aö ég vaki
án væröar og drauma,
faðma þig allt af í anda
og endalaust kyssi.
Andvökunæturnar allar
ég yrki og hjala
ljóö um þig yndið mitt eina
og elskan mín góöa.
Skammdegis-sólin má síga
og svartnœttiö koma,
nú eru kinnhestar kuldans
mér kærkomnir gestir,
heitast er hjarta mitt þegar
sem harðast er frostiö,
sál mín er sólgeislum bööuð
og sumrinu vafin.
Þú átt þá sól og það sumar,
þá suðrœnu blíðu,
þú átt þá guðsríkis geisla,
þann grunn sem eg byggöi’ á
ást mína, velferö og virðing
og vonirnar allar,
helgasta eignin mín hrapar
ef hann er á sandi.
II.
Frá austri til vesturs.
Elskan mín, elskan mín góöa
og yndiö mitt bezta,—
hugur minn enn þá um aftna
úr austrinu líöur
vestur í fjarlœgð og finnur
í faðmi þér yhnn,
uppsprettu lífsins og ljóssins
og langdegi sumars.
Elskan mín, elskan nfín góöa
og yndið mitt bezta,
lampi á lofsvegi mínum
og ljós minna fóta,—
hvenœr sem röðullinn rennur
og rökkvar af kvöldi
arnfleygur andi minn svífur
frá austri til vesturs,
(Framhald.)
Bréf frá Tokio höfuöborg Japa.
Eftir George C. Bartlett.
Þýtt úr Liberal Review af M. J. B, /
Stuttan tíma dvöldum við í höfuðborg Japa, Tokio. Húit
telur 1,500,000 íbúa. Utlendingar eru þar miklu fœrri en í Yoko-