Freyja - 01.12.1907, Page 5

Freyja - 01.12.1907, Page 5
X. 5. FREYJA IOI vanrækja ekki köllun sína, og ungfrú Lynetta Cole bað tiana að rauna eftir ekkjunni, sem hefði lagt sinn síðasta pening í guðs- kistuna. Eftir því sem trúboðs-betlidagurinn nálgaðist, varð áhuginn meiri fyrir öllum. börnin voru á þönum, öll nema Angela, og þeg- ar hann toksins kom, var presturinn úti á landi að jarðsyngja ein- hvern. Engu að síður var kyrkjan troðfull. Börnin komu tvö og tvö í senn og afhentu tunnurnar sínar, öll nema Angela. Ilún kom tómhent. Það var átakanlegt að sjá blessuð börnin, sum svo lítil, að þau gátu varla gcngið, afhenda gáfur sínar, og skýra frá,hversu þeirra var aflað. Bloomer gamli meðhjálpari, hálf blindur og heyrn- arlaus þuldi biblíugreinar á milli, eða í hvert skifti ogeitthvert hlé varð á, tii að gjöra hátíðahaldið enn þá hátíðlegra. Síðust allra kom Angela. Hún var undursamlega falleg í fannhvítum kjól, með kappa á höfðinu skreyttan „gleym múr ei“. Engum datt í hug að hún hefði neitt að bjóða. Samt fór hún aft- ur fyrir orgelið og kom þaðan með miðlungi stóran kassa, tók upp úr honum gerdufts-bauk og sagði: ,,Eg merktialla þessa bauka og kassa til þess að ruglast ekki í sögum þeirra hvers ura Sig. í þessum bauk eru 10 eirpeningar. Stendur svo á þeira, að sama sunnudaginn og ég tók við pappa- bankanum minum áleit ég bezt að byrja á fjársöfnuninni, fórum við þá út undir kyrkjuveggog köstuðum teningum um eirpening- ana sem forsetinn lét í bankana okkar. Eg vann 10 og hér eru þeir.“ Hún lét peningana falla í samskotasjóðinn en við söguna kom dálítil ókyrð áfólkið og mæður krakkannasem töpuðu eirpening- unum sínum, litu hver framan í aðra. ,,I pillubauknum þeim arna eru 5 cent. Eg fékk þau fyrir pappabankann mmn hjá dreng úr öðrum söfnuði," sagði Angela. „Amen,“ tautaði /íloomer. „Eins og allir v'ita, er blórnagarðurinn hennar frú Spencer sá langfallegasti í bænum. Einusinni þegar ég kom þangað var hani nágrannans nýbúinn aðstór skemma garðinn hennar. reyndar var það ekki í fyrsta sinn sem það hafði komið fyrir. En nú var þolin- mæði hennar þrotin, og ég heyrði hana segja, að nú skyldi hún gefa dollar hverjum sem sneri hanann úr hálsliðnum. Eg vann veikið og her er dalurinn," sagði Angela og lét nú stórann silfur- dal smella ofan í samskotaféð. Frú Spencesat í kyrkjunni og ná- fölnaði, enda var nú allt orðið hljótt eins og í grafhýsi.

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.