Freyja - 01.12.1907, Blaðsíða 40

Freyja - 01.12.1907, Blaðsíða 40
136 FREYJA X. 5- Kvennfólkiö var í eldhúsinu að baka jólabrauöiö, kleinur, lummur og laufabrauð. Við fengum fyrir náð að skera út laufabrauðiö, en vorum nú búin aðþví. og þess vegna langaði okkur til að vera í eldhúsinu, enda var þar ljós en allstaöar annarstaðar dimmt, þó var klukkan enn þá ekki fjögur. Eg býst við að ykkur þyki það skrítið, að það skyldi vera komið myrkur svo snemma dags, en svo var það þó. Myrkriö er æfinlega. langt í skammdeginu um jólaieytið á Islandi, þó bæri- iegt sé veður, en svo mikið lengra þegar það er siasmt. Og í þetta sinn var útsynnings bleytu hríð. Stundum rofaði til í lofti og birti þá ögn inni. En þegar élin dundu yfir varð þreif- andi myrkur, enda klesstist snjóbleytan á gluggana og fylltiþá. Okkur börnin langaði til að vera í eldhúsinu kringum ljósið og stúlkurnar, en okkur var gefin sfn kleinan hverju og sagt að fara upp á loft svo við vœrum ekki íyrir. —I þá daga vorurn við svo oft fyrir. Jœja, við fórum þó inn. Eti hvað við hlupum inn svörtu, löngugöngin, því nú var allt fullt af grýlum og jólasveinum, og allt það hyski sat um að ná í börn- in, eða svo var okkur sagt. Reyndar var erindi jólasveinanna mest að kraékja íhangikjötið upp úr pottunum á Þorl.messu- kvöld. Samt vorum við hrædd á þeim og hrœðslan greip okk- ur œfinlega þegar við fórum inn göngin í myrkrinu. Þess vegna var um að gjöra að vera á undán, að þessi óaldarlýður var œfinlega á eftir okkur, eða svo fannst okkur það. I þetta skifti var ég seinust, eins og reyndar oftar, enda var ég yngst. Eg var ekkert að ásaka þau systkini mín fyrir að fara á undan mér, ég hefði þá gjört hið sama hefði ég get- að, En mér leið illa þennan litla sjöl, því mér fannst ótal krumlurá lofti til að grípa mig við hvert fótmál. En þegar við vorum komin upp áloftið, var okkur borgið, þar drógum við okkur út í horn og sögðum hvort öðru sögur um grýlur og jólasveina. Það var eðlilega umtalsefnið. (Framh.) Borgunarlisti þessa mána'öar kemur í næsta biaði.

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.