Freyja - 01.12.1908, Síða 15
XI. 5
111
F REYJA
sjá, en ég hélt viöstöSulaust áfram til Berlínar. Hér á Þýzka-
landi eru flestar járnlbrautir ríkiseign. AS mörgu leyti eru þær
betri en járnbrautir í Ameríku. Allt eftirlit á þeim er ágætt, og
járnbrautarslys þar af leiöandi mjög sjaldgæf. Vagnarnir eru
af fjórum teguridum, fyrsta og annars flokks eru svipaðir aS
gæöum og fyrstaflokksvagnar á amerískum brautum, en þriöja
og fjórða líkir innflytjendavögnunum. Fargjald er miklu
lægra heldur en á canadiskum brautum, svo lágt, aö flestum
mun vera kleyft a ö ferðast nokkuö með þeim.
Berldn er fagur og vel prýddtir bær, ekki einungis á fáum
•stöðum, eins og t. d. í kring um keisarahöllina og ríkisdagshús-
fð, 'heldur allsstaöar, jafnvel í úthverfunum líka. Keisarinn sem
nú er, kvaö hafa látið sér mjög annt um aö skreyta bæinn meö
listaverkum, og þykir sumum útlendingum of mikið í boriö, en
Berhnartbúar sjálfir eru stoltir af því, aö sinn bær gefi öðrum
höfuötetöðum í Noröurálfunni ekki eftir í neinu. Berlín hefir
einn hinn fegursta skemmtigarö, sem til er í Norðurálfunm,
hinn nafnkennda “Thiergarten”. Hann liggur inn í bænum,
svo bæjarbúum er innan handar aö draga sig út úr strætaskark-
alanum. í garðinum er Sigurstrætið fSieges AlleeJ svonefnda.
Viö þaö standa til beggja hliða marmara-standmyndir af stjórn-
•endum Brandenborgar og Prússlands frá 12 öld niður til Vil-
hjálms keisara fyrsta, sem dó 1888. Með mynd hvers stjórn-
anda fylgja myndir af tveimur nafnkenndum mönnum frá
stjórnartíö lians. Viö enda strætisins stendur Sigurturninn
('Sieges SönleJ, sem var byggður eftir stríöið við Frakka 1870-
71, til minningar um sigur þýzka hersins. Turninn er um 180
fet á hæð, með risavaxinni gulllagöri sigurgyðjumynd efst.
Hann er skreyttur með 60 gylltum fallbyssum, sem voru teknar
í stríöunum við Danmörku, Austurríki og Frakkland, og á
grunninum eru upphleyptar koparmyndir, sem eiga aö tákna
þessi stráö. Skammt frá turninum er Brandenborgarhliöið og
inn um það er gerigið inn i .hið fegursta stræti bæjarins “Unter
den Linden”. Við austurenda þess eru keisarahöllin, dómkirkj-
an, tvö listaverkasöfn og fleiri stór.byggingaY. Nokkru neðar á