Freyja - 01.12.1908, Qupperneq 23

Freyja - 01.12.1908, Qupperneq 23
XI. 5 FREYJA 119 Hann sva aði sér með gegnumgangandi veini, hann hugsaíi um ást hennar og bliðu, um alla henar sjálfsafneitun og livem- ig hún hafði hvatt hann til framgöngu gegn önbyrgð og ervið- Jeika á fyrstu frumbý'.ingsárunum. Það var hennar vegna, að guð l afði blessað viðleitni þeirra og starfsemi, svo þau voru nú komin i góð efni, en hvers virði voru efnin, ef hennar missti við? Sú tilihugsun var honum óbærileg. Síðnstu orðin, sem hún talaði áður en hann lagði af stað i þessa ferð, hljómuðu nú r huga hans. Það var sama sjálfsaf- neitunin. Hún hafði sagt: “Æ, farðu ekki þes-a hættuferð mín vegna, ég skal heldur deyja, ef það er guðs vilji, með þá meðvitund að þú sért hjá mér, heldur en þú hættir lífi þinu uin hávetur, hvað verður líka uni börnin okkar, ef við skyldum bæði deyja? Þú verður að ganga þeim i móðarstað, ef drottni þókn- -ast að kalla mig héðan.“ Það voru fá augnablik, sem honum kom til hugar að fylgja ráðum hennar og fara hvergi, — en var ,það ekki að vanrækja heilaga skyldu? Jú, um það gat honum ekki blandast hugur, hann laut því ofan að henni og kyssti hana um leið og hann innst í sálu sinni bað guð að geyma hana -og varðveita. Hann var nú kominn heim á túnið. Það hlaut að vera komið miðnætti, því síðari partur leiðarinnar hafði sókzt svo . seint vegna þreytu og náttmyrkurs. Snjórinn féll í stórum flyksum til jarðar, því logn var enn að kalla mátti, en frá fjöl!- •unum heyrðust stunur eins og þau væru að kvarta undan hin- um vægðarlausu miðsvetrar illviðrum, sem veltu sér yfir þa.i með þungum öldum snjós og grimmdar. En í litla bænum hans var aHt hljótt. Hin mjallhvíta snjóiblæja lá yfir landinu eins og flekklaus líndúkur. Hinar nær því óaðgreinanlegu ljósöldur titruðu með veikum sveiflum og- stöðvuðust við hið lágreista bæjarþorp, sem var mjallhvítt hið efra en veggir og standþil dökkt. Þar virtust þær ummyndast í hvítar vofur eða svipi, er hneigðu sig og tbeygðu fyrir hinum þreytta manni, en hann varð ækki hræddur. Hann skildi þetta einfalda náttúrulögmál. En svo var hann allt annað að hugsa en um faðmlög þessarra skuggamynda. ,

x

Freyja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.