Freyja - 01.12.1908, Qupperneq 16

Freyja - 01.12.1908, Qupperneq 16
112 XI, 5 FREYJA sama stræti eru konunglegi söng'e'kliúsiS, konunglega bóka- lilaban og háskólinn. í “Unter der Linden” eru einnig öll stærstu hótel bæjarins og veitingaskálar fCafesJ, þar sem Ber- línarbúar eyða kvöldunum viS kaffi og bjórdrykkju. Berlínar háskóli er meS stærstu stofnunum sinnar tegund- ar. Hann var stofnaSur áriS 1810 af Vilhjálmi þriSja Prússa- konungi. Þýzkaland var ])á í pólitískri niSurlægingu, en stóS öllum löndum framar aS andlegum yfirburSum. Þá var blóma- öld ídelaismans í heimspeki og þá voru surnir hinna mestu and- ans skörunga ÞjóSverja uppi. Árlega eru um 8,000 stúdenta innskrifaSir viS báskólann, og þar fyrir utan hafa 6,000 rétt til aS hlusta á fyrirlestra. Frá byrjun þessa árs hafa konur öll hin sömu réttindi og karlmenn, og geta innskrifazt sem reglu- legir stúdentar og gengiS undir doktorspróf. ÁSur gátu þær aS eins hlustað á fyrirlestra meS sérstöku leyfi skólastjórnar- innar. Skólafyrirkomulaginui þýzka er viSbrugSiS fyrir hvaS frjálslegt þaS er. í íháskólunum eru engar fyrirskipanir um, hvað nemendurnir skuli læra, heldur velur hver og einn þá kenn- ara og þær kennslugreinar, sem honum falla bezt í geS. Engin próf eru haldin í flestum greinum unz skólatíminn—þrjú tii fimm ár eftir þvi hvaSa nám er stundaS—er úti. Þá ganga nemendur undir doktorspróf og ljúka um leiS viS skólanám sitt. Þó stúdentunum sé þannig gefiS algjört frelsi allan þann tíma, sem þeir eru í háskólanum, eru þeir þó yfirleitt ekki eftirbátar stúdenta þar sem strangara eftirlit er haft, eins og t. d. á Eng- landi, hvaS námsdugnaS og ástundun snertir. AuSvitaS mætti margt fleira segja um Berlín, ef rúm leyfSi. AS eins eitt vil ég taka fram enn þá viSvíkjandi lífs- háttum hér, sem nokkuS er frábrugSiS þvi, sem almennt á sér staS vestan liafs, og þaS er verkahringur kvenna. MaSur þarf ekki aS dvelja hér lengi til aS sjá, aS kvennfólk vinnur hér víS mörg störf, sem eingöngu karlmenn vinna í Ameriku. ÞaS er t. d. algengt, aS sjá konur vinna á fiutningabátum á ánni Spree ásamt mönnum sínum. Ég hefi séS þær bera múrstein og sópa snjóinn af gangstéttunum. Vinnukonur bera heim úr búSum,.

x

Freyja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.