Freyja - 01.12.1908, Blaðsíða 21

Freyja - 01.12.1908, Blaðsíða 21
XI. 5 FREYJA 117 bráðan bata ef hann yröi ekki of seinn. Hann þreifaöi nm vinstra ibrjóstiö — já, þar var meðalaíböggullinn, en um letö þrengdu sér gegn um ihuga hans orð læknisins: “Henni batuar vafalaust af þess.im meiölum, ef hún verð.,r lifandi þega.- þú nærð heirn.” Hann stanzaði, strauk svitann af andlitinu og uni leið hraut hrím af vörum hans og skeggi. Það var freðinn sviti, í líkri merking og frosnu tárin, sem skáldin hjala svo mik- ið um i hinum norðlægu löndum. Sorgþrungin stuna steig upp frá brjósti hans, og ef næmt eyra hefði verið boriö aö vitum lians, þá hefði það heyrt þessi orð: “Guð minn góður, hjálpa mér og gef mér út .ald og þrek að riá heim í nótt.” Hann leit í kringum sig; allt var þögult og hljótt. Hvassafell var 11 hægn handar; kletta'beltin neðan við fellstindinn voru svört, al'.t annað var hvítt. Hann leit til himins, sem var falinn dökkgrá- um skýflókum, er sálduðu yfir jörðina smágjörvum, hnittóttum snjókornum. Tár skýjaivna voru frosin. Það leit út fyrir að það væri að bresta á, og aftur varp hann öndinni mæðilega, hann fann til þess, hvað hann var illa fyrir það kallaður, að lenda í illviðri, því hann var illa klæddur, votur í fætur, svang- ur og aðifram korninn af þreytu. Enn aftur leit hann til him- ins, það virtist rofa til í háhvelinu, tvær stjörnur litu til hans rneð tindrandi geislaöldum og ofur lítil rák af norðurljósi titr- aði með angurblíðum hægfara ljóssveiflum; og svo varð allt rayrkt, himininn fól ásjónu sína að foaki snjókólgunnar. Hann hélt áfram allt hvað hann megnaði. En svo varð liann að fara gætilega og aðgæta, hvert kenni leiti, svo hann færi ekki af réttri leið. Raunar var hann ekki hræddur um að villast, en það mátti svo litlu muna, því ef út af leiðinni bar t i hægri, þá lá Dimmagil fyrir, sem mörgum hafði að bana orðið, ■er vilzt hafði á heiðinni; en hallaði maður of mikið til vinstri, hliðar, ,þá var svo hætt við, að maður færi fram hjá bænum. Leiðin smá-styttist, en jafnframt þvarr þrek göngumánnsins; hann gekk aö eins 'hægan seingang, eða má vera, að réttara sé að segja, að hann drægi sig áfram meir af vilja en mætti. Svit- inn var fyrir löngu þornaður á honum, en hann var gagntekinn af kulda. Það var eins og kaklir fingur hefðu snortið hjarta

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.