Helgarpósturinn - 11.04.1979, Qupperneq 14
14
Miðvikudagur 11. apríl 1979 —fiQ/garpústurinrL_
Óli Laufdal, eigandi Hollywood, og Steve Turtle, tæknimaðurinn frá
Bandarikjunum, á nýja gólfinu f Hollywood.
Þetta er sko ekta”, sagði óli Laufdal, eigandi Hollywood, þegar
Helgarpósturinn spurðist fyrir um breytingar sem geröar hafa ver-
ið á dansgólfi hússins.
„Breytingarnar eru i stuttu máli þær, að sett hefur verið upp al-
veg nýtt gólf, með undirlýsingu, og ljósakerfi í loftið fyrir ofan,
þannig að nú gefur þetta ekkert eftir bestu diskótekunum, t.d. i New
York.”
„Það er Bandarlkjamaður
hérna hjá okkur sem hefur leið-
beint við uppsetninguna á
þessu, en hann vinnur hjá fyrir-
tæki sem m.a. gerði dansgólfið I
Saturday Night Fever.”
Óli Laufdal var spurður hvort
hann væri með fleiri breytingar
á döfinni. „Við höfum verið að
breyta alveg frá þvi að ég byrj-
ætlar þú út
í kvöld?
Þaó má njóta lífsins á ýmsan hátt. Rabba yiir glasi, dansa,
fá sér í gogginn, hlusta á tónlist eða horfa alífið I Kiúbbnum
er aö finna marga sali með ólikum brag. Bar með klúbb
stemmringu og lágvæm músík, fjörugt Diskótek, danssal með
hljómsveit og annan þar sem veitmgar eru framreiddar
Par er hægt £id vera í næði eða hringiðu fiörsins eftír
smekk.-eðasitt á hvað eftir þvi sem andinn blæs í brjóst
Þú getur átt ánægjulegt kvöld í klúbbnum
aði og það er ennþá ýmislegt á
döfinni. Núna hyggjumst við t.d.
herða á kröfum um klæðaburð,
— að fólki komi snyrtilega klætt,
og áberandi drukknu fólki mun-
um við ekki hleypa inn. Þetta er
svona liður i að gera þetta að
svolitlum „klassa-stað”, sagði
Óli Laufdal.
-GA
Jazzað
á næstu
grösum
Það var notalegt á veitingahúsinu, A næstu grösum, þegar þar var boö-
ið upp á jazzkvöld i vikunni sem leiö.
Blaðamaður Helgarpóstsins
heyrði einhvern ávæning af jass-
kvöldi hjá matstofunni „A næstu
grösum” á fimmtudagskvöldið.
Hann fór þvi á kreik. Og svei mér
þá, ef að eigendum staðarins
ætlar ekki að verða úr áætlunar-
verki sinu. Nefnilega það, aö fá
fólk til að tala saman, brosa,
gleyma striti og streitu og ganga
á vit tónlistarinnar.
Ég bjóst við að sjá hjónakorn
sitja hver á sinum bás, glápandi á
allt annað en hvort annað i þunnri
þögninni. En staðurinn er bara
svo litill, að fólk af aiiskyns
sauðahúsi varð að troða sér niður
viðsama borð, ef sæti átti að fást.
Og sjá! Lifandi augu, varir á út-
opnu og svo lagt við hlustir.
Hérna gerði sig enginn að fifli
þótt hann áræddi að fitja upp á
umræðum við ókunnuga. Hann
spurði: Hverjir spila? Hann var
upplýstur um að það væru þeir
Helgi Guðmundsson (bassi),
Guðmundur Ingólfsson (pianó) og
Guðmundur Steingrimsson
(trommur). Ég skrifaði það á
minnisblað. Asskoti, átti ég að
skrifa eitthvað um hann? Ég
spurði hvort einhver við borðið
hefði vit á jassi. „Sko, það er ekki
sama hvort þú spilar: da-dada-
da-da, eða dadada-dada. Skil-
urðu?
Jú, jú, ég þóttist skilja. 1 þvi
kom afgreiðsludaman og spurði
hvað við vildum matarkyns. Ég
bað um brauðog kaffi. (Og ég var
ekki látin borga strax.)
Einhver var að hugsa um að
taka lagið, sagði bara sá hænginn
á að hann kynni ekki textann. Sá
hinn sami var upplýstur um það,
að ef hann hefði eitthvað gott i
pokahorninu, þá mætti hann
koma fram. „Þetta á nefnilega að
vera staður fólksins. Þú mátt
gera hvað sem er, syngja, dansa,
leika, lesa ljóð, spila. Hvað sem
er.” — Og þá vitið þið það.
—AB
3
•o
•»—»
A
Afgreiðslumaður I einni af útsölum ATVR með nokkrar flöskur af nýja
tiskudrykknum.
Tískudrykkurinn „Twenty one”:
SELST HELMINGI MEIRA
EN NÆSTU VÍNTEGUNDIR
Miðvikudagskvöld:
verður opið í Stjörnusal
og á Mímisbar.
Föstud. langa: Opið
fyrir mat uppí grilli.
Laugard. kvöld: verður
eingöngu opið í Stjörnu-
sal og á Mímisbar.
2. páskadag kl. 14.00
verður unglinga-
skemmtun á vegum Ot-
sýnar og kvöldskemmt-
un frá kl. 19.00 einnig í
umsjá Útsýnar.
Þaðer vist varla spurning um
það hver sé tlskudrykkurinn I
dag. „Twenty-one” heitir sá, og
er finnskur. „Twenty-one” er,
eins og nafnið bendir til, 21
prósent að styrkleika, og er
blanda af Vodka og sítrónusafa.
Það er Arni Gestsson i Glóbus
sem hefúr umboð fyrir þessum
drykk, en fyrsta sendingin af
honum kom I Rikið i janúar. Að
sögn Svövu Bernhöf t hjá
Afengisversluninni hefúr salan
verið stöðug siðan.
I febrú'ar seldust 6000 flöskur
af miðinum eða pöntunin eins og
hún lagði sig. Um miðjan mars
kom svosendinguppá 40þúsund
flöskur, og núna eftir helgina
voru 24 þúsund af þeim seldar.
Sú víntegund sem kemst næst
„Twenty-one” I sölu er Bianco,
sem selst í um 12 þúsund flösk-
um á mánuði.
Það er ekki auðvelt að geta
sér til um hvaö valdi þessum
vinsældum. Islendingar virðast
þó alltaf hafa verið hrifnir af
sterkum, bragðlitlum vinum, og
að sögn Svövu hafa margir
hringt og spurt um „létta vodk-
ann”, og átt þá við „Twenty-
one”. Flaskann kostar 3.400 kr.
og þvi eru kaupin nokkuð hag-
stæð miðað við áfengismagn.
—GA
HP-mynd Friöþjófur