Helgarpósturinn - 31.08.1979, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 31.08.1979, Blaðsíða 14
14 Föstudagur 31. ágúst 1979 hQlgdrpOSturinrL. ---------- L\ Norðurljósaýsa Helgarpóstsrétturinn er að þessu sinni frá Kolbrúnu Jóns- dóttur, Hótel Norðurljósi, Raufarhöfn. 2 stk. ýsuflök roðflett 2-3 matsk. islenskt smjör örlitið hvitlaukskrydd (garlik) 1/2 tesk. pipar 1/2 tesk salt 1/2 dl. rjómi 1 litil dós sveppir álpappir Fyrst er annað flakiö lagt á álpappirinn, smjörið, kryddið piparinn og saltið sett á það og siðan hitt flakið lagt ofan á. Alpappirnum lokað einsog verið væri að loka fyrir rjómaköku. Bakað vel i heitum ofni i 15-20 minútur. Síöan er álpappirinn opnaður, soðinu sem myndaðist við baksturinn hellt i litinn pott, bragðbætt með rjómanum og ^veppunum. Með þessum rétti eru soðnar kartöflur. Þá má einnig matreiða silung á þennan hátt. Silungurinn er þá hafður i heilu lagi og kryddiö sett inni hann. Bakist i 20 min. Þannig tilreiddur silungur var mjög vinsæll meðal Frakka sem heimsóttu Noröurljósið i sumar. Verði ykkur að góðu. „Skapar góða stemmningu” Það hefur sennilega komiö gestum Hollywood siðastliðna helgi á óvart, að búið var að setja upp gang úr súlum og flauelstágum á tröppum diskóteksins, og stóðu dyraverðir niðrá stéttinni og stjórn- uöu þaöan inngöngu gestanna, vinsuðu úr hæfa, en vfsuðu hinum frá. En það má geta þess, aö slikt fyrirkomulag tiðkast i hinu fræga diskóteki, Studio 54, i New York. Til að forvitnast nánar um þetta höfðum við samband við eigandann Ola Laufdal: „Já, það er rétt. Við vorum með smátilraun um siðustu helgi. Þetta kom helviti smart út Tilgangurinn með þessu er að útiloka að þvaga myndist við dyrnar og gestir okkar eigi greiðari aðgang aö staðnum.” — Er það satt, að þarna hafi þið verið hreinlega að velja fólk sem þið vilduð fá inn? ,,Ja, það væri auövitaö gaman að velja það fólk sem maður vill fá i húsið, en visa hinum frá. Og við gerðum það. Allir sem voru smekklega klæddir komust náttúrulega inn, en þeim sem voru klæddir einsog bifvéla- virkjar, beint úr djobbinu og svo blindfullu fólki var visað frá. Það er bara einsog venjulega.” — Ætlið þið að halda þessu áfram? ,,Ég veit nú ekki um framtið- ina. Þetta er erfitt viðfangs og útheimtir meiri mannskap og er þal. dýrara. En þetta setur skemmtilegan svip á staðinn og skapar góða stemmningu.” — pp LLTER NÚ TIL! Heimilistölva sem leysir flest vandamál „Pet” heitir hún og er heimilis- tölva og er komin til íslands. „Tölvan eykur afkastagetu manns á öllum sviðum”, sagði Reynir Hugason rafmagnsverk- fræöingur, og endursöluaðili tölv- unnar, i samtali. „Það er ekki erfitt fyrir almenning að læra á tölvuna”, sagði Reynir, en hann hyggur á sex vikna námskeið I haust, eitt kvöld i viku þrjá tima i senn, fyrir þá sem áhuga hafa á að læra á tölvuna. A Heimilis- sýningunni I Laugardalshöll sem nú stendur yfir, verður tölvan svo kynnt. „Almenningur er yfirleitt hræddur við tölvur”, sagði hann. „Við sjáum þær yfirleitt sem risastór tæki sem taka heilu her- bergin og i kringum eru menn i hvitum sloppum. Eins og þær séu aðeins fyrir sérfræðinga. En það er mesti misskilningur og heim- ilistölvan sannar það”. Auk þess sem „Pet” getur gert skattaskýrsluna, getur hún annast heimilisbókhald, og ýmiss konar útreikninga. Hafi einhver hugsað sér að bjóða átta, tiu eða tólf manns, — ja eða fleiri, —• i kjúkling eitthvert kvöldið, getur tölvan reiknað út nákvæmlega hversu mikið þarf af hverju, svo allir fái nú nóg. En afþreyingin er i fyrirrúmi og það má leika sér talsvert við tölvuna. Með þvi að fylgjast með mynd sem birtist á skermi tölv- Reynir Hugason raf- magnsverkfræðingur kynnir nýtt undratæki Hún er mjög góður félagi. Svikur þig hvorki né blekkir og er tilbúin til að gera allt sem hún getur fyrir þig. Leikur við þig og reiknar fyrir þig, og gerir skatta- skýrsluna, svo þú þarft ekki annað en að undirrita hana. unnar má reyna við þá þraut að fá eldflaug til að lenda á tunglinu, flugvél sem er eldsneytislaus til að lenda á flugvelli án þess að óhapp komi fyrir, og fleira. Tölvan yrkir jafnvel ljóð og eigi maður i erfiðleikum andlega, er hún reiðubúin til hjálpar. Að visu reyndi hún aðeins að snúa út úr þegar blaðamaöur reyndi hana: „Elskhugi minn hefur yfirgefið mig”, sagði blaðamaður, „og ég get ekki verið ein”. „Hvers vegna ekki?” spurði tölvan á móti. „Ég get ekki sofið og ekki borð- að”, sagði blaðamaður. Hefurðu reynt?” spuröi tölvan. „Já”, sagði blaðamaður. lí’rr elril" eirúro^i hé tnliron JUWÍilllÍfl :tum öll í sjóræningjagöllutn »efum hvergi eftir! Sjóræningjadansleikur nk. laugardagskvöld kl. 23.00 03.00 um borð í Akraborginni. Falinn fjársjóður um borð - góður úttektarseðill í Óðali handa þeim sem fundvísastur reynist. Miðar seldir í skrifstofunni, sími 11630, eða í Óðali á kvöldin. Kvennabúrið sneisafullt (ath. að Arabíski prinsinn og geldingarnir verða ekki með í ferðinni !!) - notið þetta einstaka tækifæri. Ýmislegt gert til skemmtunar og frábærar uppákomur fyrirhugaðar. Koddaslagur og skylmingar ef vel tekst til. HELLO' l'M HERE T0 K£LP VOU. PLEASE FEEl FREE TO SKV WHATEVER'S 0N V0UR HIND. í WILL KEEP OUR CONVERSftTION IN STRICT CONFIDENCE. MV LOVER LEFT ME «0 0N,<30 ON ANO I CAN'T LIVE AL0NE HOW DO VOU KN0W VOU CflN'T LIVE fiLONE - i CftN'T SLEEP AND I CAN' T EftT have VOU tried? Þétta var nú kannski ekki besta aðstoðin, en sjálfsagtgetur tölvan betur, og þess má geta að textinn, eða það sem hún segir, birtist á skermi hennar. Fleira getur tölvan gert, og sé keyptur sérstakur búnaður má stilla tölvuna þannig að hún geti skrúfað frá krana á einhverjum vissum tima, hellt upp á könnuna á öðrum tima og fleira ótrúlegt. An þess að kaupa sérstakan út- búnað, má fá tölvuna til að vekja fólk og hægt er að spila á hana næstum eins og orgel, og hún getur leikið músik vilji maður þaö, en til þess að hægt sé aö nota tölvuna þarf aö kaupa sérstakar kasettur. Tölvan kostar 580 þúsund krónur hér á islandi. Margt virð- ist benda til þess að tölvan ætli að verða jafn vinsælt heimilistæki og isskápurinn varö þegar hann kom á markaðinn. I Bandarikjunum er gert ráð fyrir að 40 milljónir heimilistölva verði i notkun á heimilum árið 1985. Reynir Huga- son kvaðst ekki i nokkrum vafa um að heimilistölvan ætti einnig eftiraðnjóta mikilla vinsælda hér á landi. —EA.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.