Helgarpósturinn - 26.10.1979, Síða 7

Helgarpósturinn - 26.10.1979, Síða 7
7 -JielqarpósturinrL. Föstudagur 26. október 1979 8TÍKLCD í JÓLQBÓKQFLCDinu tekið frá þér allt sem þú átt, þvi þú átt ekkert. Ég á ibúöina, ég á húsgöenin. ée á börnin, þú átt aðeins hluta i öðru þeirra og hann þekkir þig varla. En ég ætla að leyfa þér að halda fötunum sem ég keypti á þig. „Þú getur ekki tekiö frá mér allt sem mér þykir vænt um...” „Þér hefur aldrei þött vænt um neitt nema flöskuna, þvi hefði þér þótt vænt um okkur þá hefðirðu sýnt það á einhvern hátt. Og þú flaskaðir á þvi að skilja aldrei að þaö er með kærleik eins og bankabók, það er ekki hægt að taka stanzlaust út af henni án þess að leggja inn. Þess vegna er enginn að taka neitt frá þér, þú hefur sjálfur fleygt þvi frá þér.” Niðurlútur hringdi hann og fór síðan og talaði við þá. Hann var engu roggnari þegar hann kom heim og sagðist myndu fara þegar hann fyndi herbergi. Ég neitaði að biða eftir þvi, þannig héngi hann yfir mér endalaust, og þegar ég segöi núna þá ætti ég við NÚNA. Þá vildi hann vita hvert hann gæti farið og ég sagði það ekki I minum verkahring að skaffa honum herbergi. Hann pillaði sig. Settist að á Hótel Sögu, drakk og hætti smáborgarahætti eins og að þvo nærföt, fleygði bara þessum skitugu og keypti ný. Allt fyrir litla miöa sem löggan rakti og hirti hann fyrir á endanum. Kominn i tugthúsið hringdu þeir til min, hann hafði pantað viðtal. Fyrir þaulbænir fangavarðanna lét ég tilleiðast að koma. En ég hafði ekkert að segja, hann ekkert nema fróma ósk um að ég sæi honum fyrir viðeigandi munaði meðan á dvölinni stæði. Ég sagðist vera hætt i fanga- hjálpinni. Sennilega var þögnin og flökt- andi biðjandi augnaráðið, bón um það sem hann aldrei lærði að orða, bæn um hjálp sem ekki er hægt að veita án þess að hjálparþurfandinn kunni og vilji þiggja hana. , En þaö var ekkert eftir i mér sem hann gat höfðað til. öll væntumþykja hafði verið verkuð úr mér, og þar sem kær- leiknum sleppir tekur ekki við hatur heldur algjört áhugaleysi og fullkomið kæruleysi. Hann gat ekki einu sinni vakið samúð mina eða vorkunn, þaö er ekki hægt að finna til með fólki sem visvitandi með lokuð augu stýrir beint til helvitis og ber sig ekki eftir að beygja af leið. Sizt af öllu þegar maður hefur naumlega komist lifs af af feigðarskútunni. Og þannig varð ég einstæð móðir tveggja barna. * ' Ég kom út úr sambúðinni staðráðin I að enginn skyldi framar troða á bringunni á mér með skitugum fjósbússunum. Allar draumsýnir minar um gagnkvæm kærleikaskipti voru illa sviönar, eins og hrakið dýr stóð ég og stend enn: Sýndu mér óréttlæti og ég sýni þér ómannlega grimd. ef ég rétti þér litla fingurinn ætlast ég til að fá þinn lillaputta, ekki meira og ekki minna. Sýndu mér mannúð og ég skal veifa til þin hjartanu, það minnsta sem við brauð- þrælarnir ættum að gera hver fyrir annan, er að gefa þvi mannlega i okkur vaxtarskilyrði. Upp frá þessu varð ég frekjan, skassið, brjálæðingurinn, þessi kjaftfora, þessi sem kunni ekki að skammast sin, og allt sem ég var að biðja um var frelsi, jafn- rétti og bræðralag. í hvert sinn sem ég kný eitthvað fram með fyrrtöldum lyndiseinkunnum hef ég unnið sigur fyrir réttlætið. Ekki aðeins fyrir mig og mina, við erum svo ofboð litil tannhjól i spilverki heimsins, heldur fyrir alla sem risa ekki undan stigvélinu sem stendur á brjóstkassanum á þeim. Ég hafði endurheimt sjálfsviröinguna i stækkaöri og bættri mynd. Sjálf skil ég ekki hvað fékk mig að lafa við vonlausan drykkjumann i þrjú ár og get ekki gefið neina allsherjar útskýringu á þeim konum sem láta sauma sig saman og draga úr sér tannbrot einu sinni i viku alla ævi meöan þær umla milli bólginna var- anna að þær hafi dottið niður stiga. I okkar augum hafa þær gefist upp og fyrirgert sjálfsvirðingu sinni, en undir niðri hijóta þær að hafa óhemju uppsprettu þrehs og þolgæðis og geta endalaust tekist á við þetta og fyrirgefið þeim sem vita ekki hvað þeir gjöra.” ,Skrifuð í árásarstöðu’ — segir Auöur Haralds um „Hvunndagshetju” Innan skamms kemur á markaðinn fyrsta bók Auðar Haraids — Hvunn- dagshetja, þrjár öruggar aðferðir til að eignast óskilgetin börn. Bókin fjall- ar um lif einstæðrar þriggja barna móður, en Auður er einmitt einstæð þriggja barna móðir. Helgarpósturinn hringdi i Auði. — Af hverju er þessi bók skrifuð? „Til þess að hrista upp i fólki. Það eru nokkuð útbreidd trúarbrögð hér á landi að einstæðir foreldrar lifi i lysti- semdum og noti tryggingabæturnar til sólarlandaferða þegar þeir verða leið- ir á að liggja i sóffanum heima hjá sér. Eiginlega hefði ég átt að tileinka bókina þingmönnum Sjálfstæðis- flokksins, en ein þingkvenna þeirra sagði eitt sinn á fundi hjá Félagi ein- stæðra foreldra „að það mætti nú ekki hækka þessar bætur svo að þetta yrði eftirsóknarverð staða. i þjóðfélaginu”. Þegar hún var úuð niður, þvi þarna sat enginn sem hafði átt börn i gróða- skyni, þá reyndi hún að draga i land með að segja að hún vissi sjálf til þess aðgóð hjóna böndhefðu leystst upp þvi bæturr.ar hefðu lokkað. Aðeins ö'ngviti léti sér tíl hugar koma að ganga úr góðu hjónabandi yfir I tryggingakerf-. ið; flélagsmálastofnun og almennar tryggingar eru ekkert gnægtarhorn. En þetta getur sossum hafa gerzt I fjölskyldu frúarinnar.” — Hvers konar bók er þetta? „Bókin hlýtur að vera félagsleg á- deila þó það fagorð fari i mig. Ein- stæðar mæður hafa á yfirborðinu hlot- ið viðurkenningu siðferðilega og ættu þannig að vera komnar yfir þann hjalla að vera félagslegt vandamál. En við verðum að vandamáli þegar tryggingabætur eru of lágar, þegar 90% hópsins er láglaunafólk, þegar við erum siðasta fólkið sem fær leiguhús- næði, þegar endar ná ekki saman og ein menneskja verður að fylla mörg hlutverk. Ef við bætum ofaná það nei- kvæðri afstöðu i óteljandi myndum þá er enginn vandi að búa til 17. flokks þegn með þvi að brjóta niður einstakl- inginn. Þetta eru stór orð og ég er ekki að segja að þetta sé gegnumgangandi, en þetta gerist.” — Eru samborgararnir eins vont fólk og þú lýsir i bókinni? „Nei, samborgararnir eru ekki vondir við mig. Þ.e.a.s., auðvitað gæti ég ekki skrifað um allt þetta vonda fólk án þess að hafa hitt það i fjöl- mörgum myndum. Bókin er skrifuð I árásarstöðu og þess vegna er því mið- ur mest litið minnst á allt góöa fólkið og alla þá jákvæðu afstööu sem maður hittir fyrir. — Hvað ertu að gera núna fyrir utan að auglýsa þessa bók? „Skrifa aðra. Heldurðu að ég vinni ekki fyrir mér? Um hvað? Um það sem er ekki i þessari. „Hvunndags- hetjan” er opinská og berorð og klippir ekkert utan af, en það er hægt að vera enn opnari og segja ennþá meira. G Sýnishornið úr Hvunndagshetjan, þrjár öruggar aðferðir til að eignast óskilgetin börn, er úr 9. kafla bókar- innar, ogsegirfrá lyktum sambúðar Auðar og barnsföður númer tvö, drykkju- og smáafbrotamannsins Gunnars. BILAKAUPA GEFST EKKI Á NÆSTU ÁRUM Viö bjóðum meðalstóran japanskan gæðabíl , DAIHATSU CHARMANTyá kr. 3.835.000 kominn á götuna með RYÐVÖRN OG UTVARPI til afgreiðslu á næstu dögum. Nálægt 500 Islendingar hafa nú þegar tryggt sér bíla á þessu ’ÖTRÚLEGA ÚTSÖLUVERÐI og við getum enn boðið nokkurt magn af fólksbilum# en stationbilar eru uppseldir. DaihcrtMi- umboSÍS Ármúla 23 - Sími 85870 ÖRYGGIOG ORKUSPARNAÐUR öryggi ökumanns og farþega og orkusparnaður var lagt til grundvallar hönnunar DAIHATSU CHARMANT. Jafn- framt var lögð áherzla á að smiða fallegan bfl með vönduð- um innréttingum. Vélin er 80 hö. 1400 cc, fjögurra gira skipting og dyrnar 4. Benzineyðzla 7-8 úti á vegum,8-l0 innanbæjar. HVERS VEGNAAUGLÝS/ KEPPINAUTARNIR EKKI VERÐ? Um leiö og við bjóðum við- skiptavinum að skoða bilana, kynna sér kjör, varahluta og verkstæðisþjónustu okkar bend- um við þeim á aö ihuga hvers vegna keppinautar okkar, sem sifeilt auglýsa útsölu á 1979 ár- gerö, auglýsa ekki verð. Ætli það sé ekki vegna þess að þeir eru alls ekki samkeppnisfærir. Við erum lika sannfærðir um aö annaö eins tækifæri til að eign- ast góðan bfl á ótrúlega lágu verði muni ekki gefast á næstu árum. ef bá nokkru sinni aftur.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.