Helgarpósturinn - 16.11.1979, Blaðsíða 1

Helgarpósturinn - 16.11.1979, Blaðsíða 1
Nývirkin frá Fleetwood Mac og Stevie Wonder 1.árgangur Sími 81866 og 14900 Þögli minnihlutinn kveður sér hljóðs: Fatlaðir búa við skert mannréttindi Talið er að um 15% þjóðarinnar eigi viðeinhverja fötlun að striða, og er þá meðtalið mjög aldrað fóik og börn innan þriggja ára aldurs, sem ekki eru sjálfbjarga gagnvart umheiminum. bö fjöldi fatlaðra sé eins mikill og raun ber vitni, hefur þessi hópur, sem vissulega býr við skert mannréttindi, verið furðu- lega þögull og hógvær I slnum kröfum. Þó hafa samtök fatlaðra bætt þar um á siðustu vikum, en miklar umræður hafa farið fram i Qölmiðlum um málefni fatlaðra, kannski ekki sist vegna þess að kosningar fara I hönd og fatlaðir vilja ekki að þeir gleymist i öllu talinu um efnahagsmálin. Þegar aðbúnaður fatlaðra á Islandi er athugaöur, kemur I ljós, að hann er mismunandi, eftir þvi hver fötlunin er. En eitt er þó sameiginlegt öllum þessum hóp- um: allur aðbúnaður þeirra hér er I flestum tilvikum lakari en á hinum Norðurlöndunum. T.d. kemur I ljós að hæstu bætur, sem fatlaður maður getur fengið Ur Tryggingastofnun rikisins, eru rúmlega 150 þúsund krónur á mánuði. Þetta og ýmislegt fleira kemur fram i samantekt Helgarpóstsins um aöbúnaö fatlaðs fólks á islandi I dag. Dulnefnið Geir Hansson: Er gátan leyst? HARDRÆÐILÖGREGL- UNNAR ORDUM AUKID? Samskipti lögreglu og borgara eru jafnan viðkvæmnismál. Lög- regla hvers lands er undir smásjá borgaranna, og borgararnir eðli málsins samkvæmt undir smásjá lögreglunnar. Arekstrar eru þvl nánast óhjákvæmilegir. Starfshættir Islensku lögregl- unnar hafa verið mikiö umræddir að undanförnu, vegna kærumála þar semhúnhefurveriösökuðum bæði harðræöi og ólöglegar að- ferðir við handtökur. Helgarpósturinn kannaöi einn þátt i samskiptum lögreglu og borgara — þ.e. hvort mikiö væri um aö lögreglan beitti harðræöi, og hvernig brugðist væri viö of- beldi, bæði af lögreglunni, og þegar a lmennir borgarar telj a s ig verða fyrir ofbeldi af hálfu hennar. TRYGGVISKRIFAR UM ÁRIN „FYRIR SUNNAN” Helgarpósturinn birtir kafla úr nýrri bók Tryggva Emilssonar Guðbergur Bergsson, rithöfundur i Helgarpóstsviðtali „Ég kann ekki að smjaöra fyrir alþýdunni ” © Grasrótarpólitík í leiftursókn Kosningabaráttan hefur til þessa veriö fremur kyrrlát á yf- irborðinu, en nú er senn komiö að þvi að endaspretturinn hefj- ist og þá má biiast við að hitni i kolunum. 1 innlendri yfirsýn I dag er vikið að tvennu sem einkum hefur einkennt kosn- ingabaráttuna hingað til — grasrótarpólitlkinni eða vinnu- staðaf undunum , sem allir flokkar hafa lagt mikið kapp á undanfarið og kosningapla ggi Sjálfstæðisflokksins — Leiftur- sókn gegn verðbólgunni, sem verið hefur mjög til umræðu I kosningabaráttunni. Spennandi slagur á Vestf jörðum

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.