Helgarpósturinn - 11.07.1980, Síða 16
16
Fostudagur ii. w mo—Jie/garpústurinrL.
^f^ýningarsalir '
Arbæjarsafn:
Safniö er opið alla daga nema
mánudaga kl. 13.30—18. Strætis-
vagn no. 10 frá Hlemmi stoppar
viö safniö.
Höggmyndasafn
Asmundar Sveinssonar:
Opið þriðjudaga, fimmtudaga
og laugardaga kl. 13.30—16.00.
Listasafn
.Einars Jónssonar:
Frá og með 1. júni verður safnið
opið alla daga nema mánudaga
frá kl. 13.30-16.
Kirkjumunir:
1 gallerlinu Kirkjumunir, Kirkju-
stræti 10, stendur yfir sýning á
gluggaskreytingum, vefnaði, bat-
ik og kirkjulegum munum. Flest-
ir munanna eru unnir af Sigrúnu
Jónsdóttur. Sýningin er opin alla
virka daga frá kl. 9-6 og frá kl. 9-4
um helgar.
Galleri Nonni:
„Gallerl Nonni” heitir nýjasta
gallerl bæjarins og er það pönk-
listamaðurinn Nonni sem rekur
það. Galleríiö er þar sem áður
var reiðhjólaverkstæðið Baldur
við Vesturgötuna. Það mun vera
ætlun Nonna að sýna þar eigin
verk.
Ásgrímssafn:
Sumarsýning á verkum Asgrims.
Opið alla daga nema laugardaga,
kl. 13.30—16.
Galleri Langbrók:
Smámyndasýning fslenskra lista-
kvenna.
Kjarvalsstaðir:
Yfirlitssýning á verkum tveggja
mikilhæfra Islenskra lista-
kvenna, Gerðar Helgadóttur og
Kristinar Jónsdóttur.
Norræna húsið:
t aðalsýningarsal fer fram
Sumarsýning, þar sem Benedikt
GUnnarsson, Guðmundur Elias-
son, Jóhannes Geir og Sigurður
Þórir Sigurðsson sýna verk sin. 1
anddyri er sýning á verkum
tveggja danskra graflklista-
manna, og I bókasafni er sýning á
tslenska þjóðbúningnum og þvi
sem honum fylgir.
Mokka:
Daði Halldórsson frá Húsavik
sýnir verk I súrrealtskum stil.
Listasafn Islands:
Sýning á verkum úr eigu safnsins
og þá aðallega Islenskum verk-
um. Safnið er opið daglega kl..
13.30—16.
Djúpið:
Valdls Oskarsdóttir sýnir ljós-
myndir.
Háskóli islands:
1 aðalbyggingu skólans fer fram
sýning á málverkagjöf frá
hjónunum Ingibjörgu Guðmunds-
dótturog Sverri Sigurðssyni,
Þarna, ex einkum um
að ræða verk eftir Þorvald Skúla-
son, en einnig eru verk eftir aðra
málara
Listmunahúsið:
Sölusýning á yfir 40 verkum eftir
Jón Engilberts. Slðasta sýningar-
helgi.
Stúdentakjallarinn:
A föstudag opnar Kristjana Finn-
bogadóttir Arndal sýningu á
grafík og krltarmyndum. Opið
alla daga kl. 11-23.30.
FIM-salurinn:
A laugardag opnar sölusýning á
verkum 18 listamanna, þar af 4
utanfélagsmanna. Þessi sýning
er óvenjuleg að þvi leyti, að gestir
geta keypt myndir og farið með
þær strax heim til sln. Verður
siðan fyllt upp I skörðin eftir þvl
sem þarf. Sýningin er opin alia
daga kl. 19-22.
Ásmundarsalur:
A laugardag opnar ungur lista-
maður, Ingólfur Orn Arnarson
sýningu á verkum, sem byggð eru
á ljósmyndum og texta. Einnig
eru til sýnis nokkrar bækur. Ing-
ólfur lauk námi við Myndlista-
skólann árið 1979, en stundar nú
nám I Hollandi. Þetta er fyrsta
einkasýning hans, en hann hefur
áöur tekiö þátt I samsýningum.
r
Ferðafélag Islands:
Föstudagur, kl. 20: a) Þórsmörk,
b) Landmannalaugar, c) Hvera-
vellir.
Sunnudagur, kl. 9: Surtshellir
Sunnudagur kl. 13: Selatangar.
Útivist:
Föstudagur, kl. 20: Þórsmörk,
Emstrur og Torfajökull.
Sunnudagur, kl. 13: Þrihnjúkar
eða Strompahellar.
mVISIR HELGARINNAR
Útvarp
Föstudagur
11. júlí
7.25 Tónleikar.Þaðhefur vakiö
athygli, að undanfarna
morgna hefur morgunþulur
valið nokkur góð lög til aö
hjálpa manni að komast aftur
I þennan heim.
8.55 Mælt mál. Ég tek nú bara
undir það sem áður hefur
verið sagt á þessum vettvangi
um hitt og þetta.
9.05 Morgunstund barnanna:
Jón frá Pálmholti les enn um
Kela kött og læðuna hvað-
heitir-hún-nú-aftur?
10.25 „Mér eru fornu minnln
kær” Með tilvlsun I ummæli
frá prestastefnu.
11.00 Morguntónleikar. Alfred
Brendel leikur verk eftir
Beethoven, m.ö.o. tilbrigði
um vals eftir Diabelli. Verður
flutt I Lindarbæ slðar á árinu.
15.00 Popp. Vignir Sveinsson
tekur niður húfuna, svona
rétt eitt augnablik.
15.50 Tilkynningar.Það tilkynn-
ist hér með, að undirritaður
ætlar ekki að kjósa I haust.
17.20 Litli barnatlminn. Fyrir
félaga mina eftir erfiöan dag.
22.00 „Sumarmál”. Tónverk
fyrir flautu og sembal eftir
Leif Þórarinsson. Það eru
stöllurnar Manuela Wiesler
og Helga Ingólfsdóttir sem
leika þetta afburða vel og
vandlega.
23.00 Djass. Gérard Chinotti og
JórunnTómasdóttirsjá okkur
enn fyrir góðri tónlist. Lifi
Jazzvakning og önnur fyrir-
tæki.
Laugardagur
12. júlí
9.30 óskalög sjúklinga. Ennþá
brennir mér I munninn, er við
hittumst niör’viö brunninn.
11.20 Barnatlmi. Sigriöur
lónleikar ,
Norræna húsið:
Þóra Johansen semballeikari og
Wim Hoogewerf gitarleikari
halda tónleika, þriðjudaginn 15.
júli kh 20.30 A efnisskránni eru
verk eftir gamla meistara eins og
Bach, svo og nútimahöfunda,
m ,a. verður flutt verk eftir Þorkel
Sigurbjörnsson.
Klúbbur Félagsstofnunar
stúdenta:
Kristján Magnússon og félagar
leika jazz á föstudagskvöld. A
laugardag leika Gestur Guðnason
og félagar rokk af fingrum fram.
Guðmundur Steingrlmsson
kemur hins vegar á sunnudag og
leikur með sinu bandi. Klúbbur
F.S. er opinn kl. 20—01 og eru
veitingar á boðstólum.
B
íóin
I
4 stjörnur = framúrskarandi
3 stjörnur = ágæt
2 stjörnur = góö
f 1. stjarna = þolanieg
j) = aíleit
Austurbæjarbíó:
1 Bogmannsmerkinu (1 Skyttens
tegn). Dönsk, árgerð 1978. Hand-
rit: Werner Hedman, Edmondt
Jensen. Leikendur: Ole Sötoft,
Poul Bundgaard, Karl Stegger,
Kate Mundt, Anna Bergman og
masser andre söde piger. Leik-
stjóri: Werner Hedman.
Það ættu allir að þekkja
stjörnumerkjamyndirnar, en þær
virðast hafa tekið við af rúm-
stokknum. Agent 69 lendir aö
sjálfsögðu I ótrúlegustu ævin-
týrum, einkum með nöktum
stúlkum og verður væntanlega
æft sig I bogfimni og þar af leið-
andi stoiin sena frá Pasolini, en
lendir hann einhvern tlma I 69?
Við skulum vona það.
Háskólabíó:
Atökin um auöhringinn (Blood-
line). Bandarisk, árgerð 1979.
Handrit byggt á skáldsögu eftir
Sidney Sheldon. Leikendur:
Audrey Hepburn, Ben Gazzarra,
James Mason, Romy Schneider,
Omar Sharlf. Leikstjóri: Terence
Young.Margir munu kannast við
Sidney Sheldon og bókina, sem
þessi mynd er byggðá. Menn ættu
þvl að geta rifjað upp kynnin við
persónurnar, hvort sem það er I
blíðu eða stríðu.
Bæjarbió:
Hörkutólin (Boulevard Nights).
Bandarlsk sakamálamynd. A
sunnudag verða sýnlngar kl. 3 og
5 á Veiðiferðinni eftir þá Andrés
Indriðason og Gisla Gestsson.
Eru þetta síðustu forvöö að sjá
myndina á höfuðborgarsvæðinu
að sinni.
Eyþórsdóttir og fleiri fjalla
um hesta. Alveg satt.
14.00 1 víkulokin. Um-
sjónarmenn: Guðmundur
Arni Stefánsson, Guðjón
Friðriksson, Oskar Magnúson
og Þórunn Gestsdóttir. Þetta
er alveg eins og i hinum blöð-
unum.
16.20 Vissíröu það? Ef ekki, þá
veistu það núna.
16.50 Boston Pops og fieiri ieika
og syngja ýmis verk. Sumir
mundu nú segja ýmsa verki,
en ég ætla mér ekki að blanda
mér I það.
17.50 Endurtekiö efni: 1 minn-
ingu rithöfundar. Þeir hjá
útvarpinu hafa verið ansi
harðir I að endurtaka þætti
núna upp á siðkastið og lýsir
það kannski best uppgjöf
þeirra við að reyna að vinna
aftur hlustendur frá lélegu
sjónvarpi, þegar sjónvarpið
er I frii. Annars er mér
sama, hlusta sjaldan á þetta.
Nota tlmann til annars.
19.35 „Babbitt”. Saga eftir
Sinclair Lewis. GIsli Rúnar
fer enn á kostum og kynjum.
20.30 „Einhver hlær og einhver
reiðisfÞað eru orð að sönnu,
annars er þetta þáttur um
revlur.
22.00 1 kýrhausnum. Sigurður
Einarsson baular enn og
hleypur af sér hornin.
Sunnudagur
13. júlf
10:25 Villt dýr og heimkynni
þeirra. Páil Hersteinsson
flytur erindi um Isienska ref-
inn. Hvað skyldi Hið islenska
tófuvinafélag hafa um þennan
þátt að segja?
EINHVER
HLÆR OG
EINHVER
REIÐIST”
„Einhver hlær og einhver
reiðist” heitir þáttur sem er á
dagskrá útvarpsins á laugar-
dagskvöldið kl. 20.30. Það er
fyrsti þáttur af fjórum um
revlur og eru það ieikararnir
Randver Þorláksson og Sig-
urður Skúlason sem munu sjá
um þá alla.
„Fyrsti þátturinn fjaliarum
upphaf revlunnar, fyrst er-
lendis og siðan hér heima, en
fyrstu reviurnar voru settar
hér upp árið 1880. Onnur á Isa-
firði en hin I Reykjavlk”,
sagði Sigurður Skúlason i
samtali við Helgarpóstinn.
„Og svo munum við fikra okk-
ur áfram I sögu revtunnar, að-
allega hér I Reykjavik og taka
smá sýnishorn úr einstaka
verkum. Nafnið á fyrsta þætt-
inum „Einhver hlær og ein-
hver reiðist” er setning I loka-
söng revlunnar Allt I grænum
sjó, sem stúdentar sömdu og
sýndu árið 1913 I Reykjavlk.
Sú sýning olli miklu fjaðra-
floki og varö tilefni blaöa-
skrifa og fundahalda. Hún var
aðeins sýnd einu sinni og slðan
bönnuð”.
Revian velgdiýmsum brodd-
borgurum rækilega undir ugg-
um að sögn Sigurðar, þar sem
aðalefni hennar var ádeila á
Bræðinginn svokallaða og
Bræðingsmenn, en það voru
þeir menn sem viidu fara sér
hægt I sambandsslitunum við
Dani.
„Það var alveg greinilegt
hvoru megin stúdentarnir
voru”, sagði Sigurður. „Þeir
gerðu óspart grin að Bræð-
ingsmönnum. Og létu ekki þar
við sitja. Andatrúarmenn
fengu einnig sinn skerf. Um-
ræðan um spiritismann hafði
þá borist hingað til lands og 1
reviunnisettu stúdentar á svið
miðilsfund með séra Einari,
og ekkert fór á milli mála við
hvaða Einarvar átt. Þar létu
þeir fræga persónu koma
fram, en það var maður sem
farist hafði með Titanic áriö
áður. Frétt hafði birst I Isa-
fold þess efnis að maður þessi
hefði mætt á miðilsfund og
hefði hann allur verið bjartari
og stærri en hann var I lifanda
lifi. Stúdentar notfærðu sér
þetta I revlunni og létu mann-
inn koma fram á upphækkuð-
um skóm og i hvltum kufli.”
Sigurður sagði aö ýmislegt
hefði verið farið að kvisast Ut
um sýninguna áður en hún var
haldin I þetta fyrsta og siðasta
sinn. Menn hlupu til og keyptu
sér miða og bjuggust við að
skemmta sér konunglega á
kostnað meðborgara sinna.
En á lokaæfingu mætti lög-
reglustjóri og lét strika Ut úr
revíunni nokkur atriði. En
eins og fyrr segir þá dugði það
ekki til og sýningin var bönnuð
fyrir tilstuðlan Einars Hjör-
leifssonar Kvaran án þess að
hann sjálfur hefði nokkru
sinni séð hana.
FEDRÁNNA
Laugarásbió: ★ ★ ★
óöal feöranna. tslensk, árgerð
1980. Kvikmyndun: Snorri Þóris-
son. Hljóðupptaka: Jón Þór
Hannesson. Leikendur: Jakob
Þór Einarsson, Hólmfriður Þów
hallsdóttir, Sveinn M. Eiðsson.
Handrit og leikstjórn: Hrafn
Gunniaugsson. Það má segja, að
megin inntak myndarinnar sé til-
raun einstaklinganna að velja
sér sln eigin örlög, og ráða yfir
sinu eigin iifi. Það er ekki nýr
sannleikur, að maðurinn fær
sjaldan eða aldrei ráðið þeim.
Umhverfið hlýtur alltaf að grlpa
þar inn I að meira eða minna
leyti. Helstu galla myndarinnar
er að finna i handritinu, en öll
tæknileg vinna, leikstjórn og
leikur lyfta henni langt yfir
meðalmennskuna. Þótt menn séu
kannski ekki sammála þvi sem
kemur fram I myndinni, eru
menn hvattir til að láta hana ekki
fram hjá sér fara.
Háskólabíó. mánudags-
mynd:
Frændi minn (Mon oncle).
Frönsk gamanmynd með og eftir
hinn óborganlega Tati. Léttir
mönnum skapiö I þungbúna veðr-
inu.
Nýja bió:
Quintet. Bandarlsk, árgerð 1979.
Leikendur: Paul Newman, Bibi
Anderson, Vittorio Gassman,
Fernando Rey. Handrit og leik-
stjórn: Robert Altman.
Quintet var fremur fálega tekið af
gagnrýnendum þegar hún var
frumsýnd I fyrra. Það er alveg
rétt, að Altman getur verið ansi
mistækur, en það er óhætt að slá
þvi föstu, aö myndir hans eru
alltaf athyglisverðar, hvernig svo
sem útkoman er. Ættu þvi allir að
flykkjast I Nýja bló áður en það
veröur of seint.
Gamla bió: ★ ★
Þokan (The Fog).— sjá umsögn I
Listapósti.
Tónabió: ★ ★ ★
Heímkoman (Coming Home).
Bandarfsk, árgerð 1978. Leik-
endur: Jane Fonda, John Voight,
Bruce Dern o.fl. Leikstjóri: Hal
Ashby.
Þótt Vietnamstrlðið fléttist aðeins
með óbeinum hætti inn i Heim-
komuna, er ekki um það að ræða,
að verið sé aö taka á striðsrekstri
þessum neinum vettlingatökum.
Boðskapurinn er ótvlræður
friðarboðskapur, en hér er lagt
allt kapp á að sýna bakhliöina á
strlðinu, hvernig það spinnur ör-
lagavefi þeirra sem eru jafnt I
fremstu vlgllnu eða bíða heima
eða hafa verið dæmdir úr leik.
Þessu kemur Ashby vel til skila i
Heimkomunni með yfirleitt
smekklegri leikstjórn, en þaö sem
þó kannski ræður úrslitum um að
vandmeðfarið efni hittir I mark er
stórgóður leikur þeirra Fonda og
Voight. — BVS
Borgarbióið: O
Blazing Magnum. — sjá umsögn I
Lístapósti.
Hafnarbió:
i eidlinunni (Fírepower). Banda-
risk, árgerð 1979. Leikendur:
Soffla Loren, James Coburn.
Leikstjórl: Michael Winner.
Winner hefur oft gert góða þrill-
era. Þessi fjallar um útrýmingu á
11:00 Messa I Kópavogskirkju.
Þorbergur Kristjánsson
messar yfir sóknarbörnum
slnum I áheyrn þjóðarinnar.
Tilvalið að hlusta á milli þess
sem menn snúa sunnudags-
steikinni við I ofninum.
13:30 Spaugað I lsrael. Róbert
Arnfinnsson leikari heldur
áfram að lesa ktmnisögur af
gyðingum. Efnið er greini-
lega óþrjótandi.
14:00 Þetta vil ég heyra.Þetta
vill Gunnar Reynir Sveinsson
heyra. Og Sigmar B. Hauks-
son sem ræðir við hann milli
laga vill örugglega heyra
þetta llka.
15:15 Fararheill. Birna G.
Bjarnleifsdóttir er óþreytandi
upp um fjöll og firnindi. Eg
fer ekki fet.
16:00 Tilveran. Já, er hún ekki
dásamleg. Arni Johnsen og
Olafur Geirsson halda áfram
að vera til.
17:20 Lagið mitt. Og lagiö þitt,
lagið allra barna. Helga Þ.
Stephensen sér um lagið sitt.
19:20 Framhaidsleikritið á sið-
asta snúningi. Flosi Olafsson
bjó til flutnings I útvarp.
Leona verður æ örvæntingar-
fyllri. Hvernig getur hún
komið vesalings konunni sem
á að myrða til hjálpar?
Kannski komumst við að þvi i
kvöld.
20:30 Innbrot I Postultn.
Hvernig er það nú hægt?
21:00 Hljómskálamúslk. Guð-
mundur Gilsson fer niður t
Hljómskálagarö. Skyldi hann
virkilega ætla aö fara að gefa
öndunum? Þær eru örugglega
pakksaddar á sunnudags-
kvöldum og komnar meö
harðlifi af öllu fransbrauðinu.
23:00 Syrpa. Til hamingju með
slöasta þátt Oli. Ég vona bara
að þú haldir áfram að minna
menn á stefnuljósin, ekki
veitir af. Einnig máttu llka
biðja þá hægfara að halda sig
á hægri akgrein, svo við hinir
getum komist óhindrað
áfram.
glæpaforingja sem smyglar
eiturlyfjum til Bandarikjanna frá
eyju einni I Karablska hafinu.
Regnboginn:
Gullræsið (The Sewers of Gold).
Bandarisk árgerð 1979. Leik-
endur: Ian MacShane.
Þessi fjallar um ránið blræfna I
Nice I Frakklandi, þegar bófarnir
fóru eftir holræsum borgarinnar
og brutust inn I einn banka bæjar-
ins og rændu og rupluöu.
Dauðinn á Nfl (Death on the
Nile). Leikendur: Peter Ustinov,
Jane Birkin, Bette Davis, David
Niven o.fl.
Skemmtileg mynd með fullt af
stjörnum. Eins og alltaf hjá
Agötu Kristi, yeit enginn hver
morðinginn er fyrr en undir lokin.
Trommur dauðans. (Bandarlskur
vestri með Ty Hardin I aðalhlut-
verkinu.
Svikavefur (Double Crossers).
Karate-mynd frá Hong Kong, I
stll við Brúsa LI.
tkemmtistaðir
Sigtún:
Gamla góða TIvoli leikur fyrir
dansinum á föstudag og laugar-
dag. Margt verður til skemmt-
unar eins og parisarhjól, spegia-
salur (á klósettinu) o.fl. Geimur
góður og gott geim.
A laugardag kl. 14.30 verður hið
hefðbundna bingó.
Hótel Saga:
A föstudag verður kynning á af-
urðum tslenska lambsins, bæði I
fæöi og klæöi. Laugardagur
verður venjulegur að þvl undan-
skyldu, að hljómsveit Birgis
Gunnlaugssonar er komin I staö-
inn fyrir Ragga Bjarna. A sunnu-
dag veröur sýning á söngleiknum
Evitu, þar sem Birgir og félagar,
ásamt jazzballetflokki Báru fara
á kostum. Einnig fer fram hæfi-
leikakeppni. Ég ætla að mæta og
baula uppi á svibi.
Glæsibær:
Hljómsveitin Arla skemmtir alla
helgina, ásamt diskóteki. Það má
gera ráð fyrir að allir Pavarottiar
bæjarins flykkist inn viö Alf-
heima og spreyti sig I söngkeppni.
Þórscafé:
Þá eru Galdrakarlar loksins
komnir aftur á kreik og munu
skemmta gestum Þórscafés alla
helgina. En góðu gestir: Gleymið
ekki lakkskónum og bindinu og
piltarnir mega ekki fara úr jökk-
unum. Annars er þetta ágætt.
Snekkjan:
Diskótek á föstudag og laugar-
dag. Gaflarar skemmta sér og
fagna þvl að sifellt fjölgar I
bæjarfélaginu.
Skálafell:
Léttur matur framreiddur til
23:30. Jónas Þórir leikur á orgel
föstudag, laugardag og sunnudag
Tiskusýningar á fimmtudögum,
Módelsamtökin. Barinn er alltaf
jafn vinsæll. A Esjubergi leikur
Jónas Þórir á orgel i matartim-
anum, þá er einnig veitt borðvin.
Hótel Loftleiðir:
I Blómasal er heitur matur fram-
reiddur til kl. 22.00, en smurt
brauð til kl. 23. Leikið á orgei og
pfanó. Barinn opinn að helgarsið.
Artún:
Föstudagskvöld: Unglinga-
dansleikur með Utangarðs-
mönnum og diskórokki frá Disu.
Gúanórokk og hress tónlist frá kl.
10-2. 16 ára aldurstakmark.
Laugardagskvöld: Enn unglinga-
dansleikur með sömu flytjendum
og kvöldiö áður en 18 ára aldurs-
takmark. Nú verður sennilega fá-
mennt en góðmennt á Hallæris-
planinu.
Borgin:
Föstudags- og laugardagskvöld:
Flugleikur frá kl. 9-10 en rokk og
annað stuð frá DIsu frá kl. 10-3
báða dagana. Sunnudag: Gömlu
dansarnir með hljómsveit Jóns
Sigurðssonar og Kristbjörgu Löve
söngkonu, Dlsa I pásum. Gamlir
brennivlnsbeserkir.verðandi
menningarvitar og létt frlkaðir
pönkarar — allt á sama stað.
Hollywood:
Mike John diskar sér og öðrum
alla helgina. Allskonar leikir og
sprell, tlskusýningar og fleira
gaman. Hollywood ég heitast
prái/ligga, ligga ligga lái.
Naust:
Matur framreiddur allan daginn.
Trló Naust föstudags- og laugar-
dagskvöld. Barinn opinn alla
helgina.
Lindarbær:
Gömlu dansarnir á laugardags-
kvöld með öllu þvl tjútti og fjöri
sem sllku fylgir. Valsar og gogo
og kannski ræll.
Leikhúskjallarinn:
Hljómsveitin Thalia skemmtir
gestum föstudags- og laugar-
dagskvöld til kl. 03. Menningar-
og broddborgarar ræða málin og
lyfta glösum. Matur framreiddur
frá kl. 18:00.
Djúpið:
Djass á hverju fimmtudags-
kvöldi. Vlnveitingar.
óðal:
Micky Gee aftur i diskótekinu og
þrusar góðu sándi um allan bæ.
Nýtt heimsmet? Kannski. Jón Sig
heldur áfram aö dilla sér á stall-
inum i takt við dynjandi músik.
Skemmtisfaðir á
Akureyri:
Sjálfstæðishúsið:
Sjallinn er nú opinn öll kvöld.
Húsið hefur fengið sér diskótek-
ara beint frá London og heitir
kappinn sá Brian Estcourt. Sér
hann um að þeyta plötunum fyrir
þá norðanmenn. A föstudögum og
laugardögum er það hljómsveit
Finns Eydal. ásamt Helenu, sem
sjá um fjörið. Diskótekið kemur
þá lika við sögu, en það er svo
aftur einrátt alla hina dagana.
Þeir segja að föstudagurinn sé að
sækja I sig veðrið og sé að verða
jafn góður laugardeginum. Það
ætti þvi aö vera stanslaust f jör i
Sjallanum alla daga.
H-100:
Aðalstaður unga fólksins
(einskonar Hollywood
Akureyrar!) Hlöðuböil,
heræfingar og fleiri uppákomur á
fimmtudagskvöldum, en diskó i
fullum gangi allar helgar. Þess
virði að klkja inn.
Hótel KEA:
Staöur fyrir alla aldursflokka, en
mest sóttur af pöruðu fóiki milli
þrltugs og fimmtugs. Mesti
menningarstaöur. Ingimar Eydal
leikur undir borðhaidi á laugar-
dagskvöldum og vinsældir bars-
ins alltaf jafn miklar, — þar sem
annars staðar.
! Til ailra þeirra sem vilja koma
uppiýsingum á framfæri til
iesenda llelgarpóstsins: Þaðeru
vinsamleg tilmæli okkar, að þið
siáið á þráðinn eða sendið okkur
linu ef þið óskiðeftir breytingum i
Leiðarvisi, eða viljið koma á,
framfæri nýjum upplýsingum,
sem þar eiga heima. Það sparar
okkur gifurlega vinnu, en munar
engu fyrir ykkur. Athugið, að
siðustu forvöð að fá inni i Leiðar-
visi helgarinnar er siðdegis á
miðvikudögum. Utanáskriftin
okkar er: Helgarpósturinn,
Siðumúla 11, Rvik, og slminn
81866.
Með þökk fyrir samvinnuna og
von um enn betri samvinnu.