Helgarpósturinn - 11.07.1980, Blaðsíða 17

Helgarpósturinn - 11.07.1980, Blaðsíða 17
'PÓstúd'agur 11.' júll 1980 17 „Eftir það fór ég ekki í fleiri píanótíma" Þóra Johansen semballeikari er um þessar mundir stödd heima á isiandi ásamt Wim Hoogewerf gitarleikara. A miðvikudags- kvöldið var héldu þau tónleika i Norræna húsinu og nú á þriðju- dagskvöldið verða þeir endur- teknir á þeim sama stað kl. 20:30. Á miðvikudaginn litum við inn á æfingu hjá þeim, en þá voru þau að æfa verkiö Fiori eftir Þorkel Sigurbjörnsson sem var frumflutt i Norræna húsinu þá um kvöldið. „Ég er búinn aö búa i Hollandi I 9 ár og likar þaö mjög vel” sagöi Þóra. „Þaö er erfitt að bera þaö sam- an viö ísland. Ég bý þarna og er ánægö. Holland er aö mörgu leyti gjörólfkt íslandi. Mér likar vel viö Hollendinga, þeir eru mjög létt og skemmtilegt fólk, almennilegir og hjálpsamir. Ég hef lika meira aö gera þar en ég myndi hafa hér heima. Ég kenni mikiö og svo hef ég haldiö tónleika, en ekki mjög mikiö þar sem ég er meö tvö lltil börn, annaö bara 9 mánaöa,þaö er þvi nóg aö gera. Annars er ég mjög heppin meö þaö aö maöur- inn minnsem er Hollendingur er i þannig námi aö hann getur veriö talsvert heima og hugsaö um börnin. En I Amsterdam er aö- staöa fyrir barnafólk heldur bág- borin. t þessari milljónaborg eru einungis 20 dagheimili og menn eru yfirleitt á þvl I Hollandi aö mæöurnar eigi bara aö vera heima meö börnin”. Eruö þiö taugaóstyrk fyrir tón- leikana I kvöld? „Já svolitiö. Ég hef aldrei spil- aö á tónleikum hér heima. Þaö er mjög gaman og spennandi, en jafnframterfiöara en aö spilaþar sem þú þdckir engan. Þegar maö- ur er búinn aö vera svona lengi I burtu aö læra á kostnaö rlkisins þá vill fólk fá aö sjá aö eitthvaö hafi komiö Ut úr þvl. Og mér finnst þaö alveg réttmæt krafa.” Þóra læröiá plnaó hér heima og þegar hún fór Ut til framhalds- náms var þaö til þess aö halda á- fram planónámi. „Svo eitt sinn þegar ég var aö spila Bach-sónötu ásamt fiölu- leikara, spuröi kennarinn mig hvort ég vildi ekki prófa á sembal og eftir þaö fór ég ekki I fleiri planótíma.” Wim Hoogewerf er nýútskrif- aöur gltarleikari. Hvaö kom til aö hann lagöi leiö sina til Islands? „Viö vorum hvort eö er aö spila saman,” sagöi hann. „Og mér fannst mjög heillandi aö koma hingaö til þess aö spila, þetta var allt svo vel skipulagt. Og svo fannst mér alveg upplagt aö slá saman tónleikahaldi og sumarfrii á þessu yndislega fallega landi”. Þrátt fyrir ungan aldur, en Wim er aöeins 24 ára gamall, á Þóra Johansen. hann langan feril aö baki sem gltarleikari og hefur haldiö tón- leika slöan ’72, bæöi einleikstón- leika og einnig hefur hann spilaö ásamt flautuleikara bæöi I Hollandi og Frakklandi. Og hann hefur spilaö bæöi i Utvarpi og sjónvarpi. Hann er á förum til Frakklands til enn frekari náms og sagöi Þóra aö vel gæti komiö til greina aö þau myndu halda þar tónleika ef tækifæri gæfist. Aö lokum var Þóra spurö aö þvl hvort hún heföi ekki einu sinni sungiö meö þeim Heimi og Jón- asi. „JU minnstu nú ekki á þaö”, sagöi hún og hló. „Ég haföi bara enga rödd, svo þaö varö ekki Ur aö ég legöi söng- inn fyrir mig. En ég haföi mjög gaman af þessu á meöan þaö var og sé alls ekki eftir þvl aö hafa veriö þar meö”. — EI Tjnnn- Símaklefi úti á túni á samnorrænni sýningu nýlista- manna að Korpúlfsstöðum Mikið stendur til hjá nýiistar- mönnum um þessar mundir. 1 kringum 20.júli munu koma hing- að 26 skandinaviskir nýlistar- menn, ásamt frlðu föruneyti bæði útvarps-og sjónvarpsmanna frá heimalöndum slnum sem munu sjá um aö þeir listviðburðir sem héreiga að gerast komist á spjöld sögunnar. En þeir nýlistarmenn munu hafa i hyggju aö búa um sig upp á Korpúlfsstöðum og iðka hinar ýmsu listir sjálfum sér og öðrum til ánægju I þrjár vikur. Ólafur Lárusson myndlistar- maöur sagöi i viötali viö Helear- póstinn aö skandinavarnir myndu koma hingaö efnislausir og vinná aö list sinni upp á KorpUlfsstööum allanþann tima sem þeir dveljast hér. Ug þar mun almenningi gef- ast kostur á aö fylgjast meö störf- um þeirra alla daga kl. 14.00-22.00. frá og meö ~i. jutí n.k. Ólafur sagöi aö margt yröi á döfinni þar efra. Þar yröi filmaö og ljósmyndaö I griö og erg. Einn- ig væri hugmyndin aö gefa Ut fréttabréf daglega þar sem skýrt yröi frá þvi helsta sem geröist á OÐALIÐ í HÖFN Hátt i 30 þúsund manns hafa nú séð kvikmyndina Óðal feðranna. Viröist nú augljóst að þessi þriðja kvikmynd frá Islenska „kvik- myndavorinu” i fyrra muni einn- ig gera meira en aö hafa fyrir kostnaði, og Islenskir kvik- myndageröarmenn þurfa þar af leiöandi ekki að kvarta undan viötökunum. Sýningar á Óðalinu hafa veriö I tveimur kvikmyndahúsum i Reykjavík — Háskólabió og Laugarásbió. Sýningum á mynd- inni fer nú aö ljúka i Háskólablói en hún verður sýnd enn um sinn I Laugarásbiói og þá á öllum sýningum. Tvö eintök af mynd- inni fara út á land til sýninga þar og annað þeirra I Borgarfjöröinn, þar sem myndarinnar er vafa- laust beöiö meö eftirvæntingu, þvl aö hún var tekin á þeim slóö- um. —BVS sýningunni. Og eflaust veröur þarna margt skringilegra uppá- tækja. „Viö erum búnir aö leigja hele- kopter fyrir Jörgen Humle”, sagöi Ólafur. „Og einn vill láta koma upp simaklefa Uti á túni”,bætti hann viö og jánkaöi þeirri spurningu blaöamanns hvort þetta væri ekki afskaplega kyndugt liö sem von væri á. Sýning þessi ber heitiö „Ex- perimental Environment 1980” og er samnorræn sýning, sú fyrsta sinnar tegundar. Norrænum ný- listarmönnum haföi veriö fariö aö leiöast þaö sambandsleysi sem rikti þeirra á meöal aö sögn Ólafs. Þeir krunkuöu sig þvl sam- an I Kaupmannahöfn á dögunum og árangur viðræönanna þar varö heljarmikil sýningarskrá og ákveðiö var aö fara um öll Norö- urlönd meö hana og bæta siöan viö listamönnum og sýningar- skrám I hverju Noröurlandanna fyrir sig. Auk Ólafs Lárussonar taka þátt I sýningunni lslendingarnir RUri, Jón Gunnar, Magnús Pálsson, Niels Hafstein, Ivar Valgarösson, Arni Ingólfsson, Bjarni H. Þórar- insson,Eggert Pálsson og margir fleiri. Héöan mun þessi sýning á sam- spili listar og umhverfis halda til Sveaborg i Helsingfors og áætlaö er aö hún fari þaöan á Sonie Heine safniö I Osló. Aö þvl búnu er reiknaö meö aö hún fari til Ala- borgar og endi slöan feröalag sitt á Moderna museet I Stokkhólmi. E1 Reimleikar i Gamla bíói Gamla bló: Þokan (The Fog). Bandarisk. Argerð 1979. Leik- stjóri John Carpenter. Handrit: Carpenter og Debra Hill. Aöal- hlutverk: Adrienne Barbeau, Hal Holbrook og Janet Leigh. Or lélegu handriti má gera merkilega góöa kvikmynd, rétt sem rlsa Ur votri gröf til aö rukka lifendur um fjársjóö. Þessum draugum fylgir mikil þoka. Þess vegna heitir myndin ÞOKAN. Höfundur þessarar myndar heitir John Carpenter og skrifar handrit og leikstýrir, auk þess Kvikmyndir eftir Guðlaug Bergmundsson og Þráin Bertelsson eins og auövelt er aö gera lélega kvikmynd Ur góöu handriti. Gamla bíó sýnir núna mjög sæmilega hryllingsmynd, sem byggir á voöalega dellukenndu handriti um drukknaöa sæfara sem hann leikur I myndinni, semur tónlistina, og stjórnar stundum myndavélinni sjálfur. Carpenter er einn af þeim ungu og efnilegu I Hollywood, og vist er um það, aö hann fer öruggum höndum um heldur rýran efniviö og tekst aö gera áhorfendum rækilega bylt viö. Sumir hafa líkt John Carpenter viö meistara Hitchcock, þvi enginn má fást viö hryllings- myndagerö án þess aö vera bor- inn saman viö stórmeistarann sjálfan. Hins vegar er Carp- enter hógvær maöur sem tekur þvl fjarri, aö handbragö hans llkist verkum Hitchcock sáluga. Hann hefur sagt, aö Hitchcock hafi tekist aö skapa stööuga spennu, en sjálfur fáist hann viö aö koma áhorfendum á óvart. Þaö er mikiö til I þessu, og sannariega tekst Carpenter aö gera áhorfendum bylt viö. Þaö er engum greiöi geröur meö þvl aö efni myndarinnar sé rakiö, en til aö gefa aöeins for- smekkinn má vitna I pró- gramiö: „Fyrir öld slöan geröist hörmulegur atburður undan strönd afskekkts sjávarþorps, Antonio Bay I Kaliforniu. I dimmri þoku fórst skipiö „Elizabeth Dane” meö allri áhöfn, sex mönnum og öllum Ur þorpinu. Grunur lék á aö skip- verjar hefðu visvitandi veriö leiddir af réttri leiö meö ljósum i landi. Og þaö hefur veriö trú þorpsbúa, aö þegar slika gern- ingaþoku geri aftur þarna, muni hinir látnu sjómenn ganga aftur og hefna sln ...” Þetta er dálltið þokukennt, en skítt veriö meö þaö, þvl sem hryllingsmynd stendur ÞOKAN fyrir sinu, og John Carpenter er kvikmyndageröarmaöur sem gaman veröur aö fylgjast meö I framtíðinni. — ÞB í í Janet Leigh og Hal Holbrook I Þokunni. Erfitt mi/li 5 og 7 Borgarbióið: 0 Blazing Magnum. Bandarlsk- kanadlsk kvikmynd, árgerö 1976. Leikendur: Stuart Whit- man, John Saxon, Martin Landau, Carole Laure, Gayle Hunnicutt, Tisa Farrow. Leik- stjóri: Martin Herbert. „Blazing Magnum — Ný þrumuspennandi bíla- og hasar- mynd frá U.S.A. er greinir frá Tony Saitta (Stuart Whitman) — lögregluforingja, er lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Saitta fær erfiöasta verkefni, sem hann hefur gllmt vib á lifs- leiöinni, en þaö er aö finna moröingja systur sinnar.” Svo mörg voru þau orö. Hvaö gerir heiöviröur, en hornaharður lögregluforingi, þegar hann hefur elt grunaðan, eöa grunsamlegan mann I bil um götur Montreal, sem ýmist eru votar eftir rigningu eöa þurrar, komist nærri huröum himnaríkis oftar en einu sinni, en alltaf reddast á slöustu stundu, hvaö gerir hann þegar báöir bilarnir liggja loks á hvolfi Uti á þjóövegi skemmdir eftir margar ákeyrslur, þegar hann hefur skriöiö Ut Ur sinu flaki meö byssuna I hægri hendi, en enga hreyfingu er aö sjá I hinum bílnum? Hann ber ofur kurteislega aö dyrum og blður átekta. Hvað gerist næst? Grunsamlegi maöurinn er Hka kurteis og þess vegna opnar hann, skrlöur út og gefur þær upplýsingar sem lögreglufor- inginn þarfnast. Þaö getur stundum veriö erfitt aö lifa milli 5 og 7, ekki svo aö skilja, aö manni leiðist eitt- hvaö meira en venjulega milli 5 og 7, þegar maöur er aö ná sér niður eftir vinnuna og biöa eftir þvi að sporörenna ýsunni og margt af þvi sem gerist I kring- um mann fer inn um annab og Ut um hitt. Maður þarf heldur ekki alltaf aö gera grein fyrir þess- um tveim klukkustundum. Þaö má ekki skilja orö min svo, aö mér hafi leiöst eitthvaö meira undir Blazing Magnum, en mörgum öörum myndum. Mun- urinn er hins vegar sá, aö ég hef I fæstum tilfellum þurft aö gera grein fyrir þeim. Aftur á móti er ég tilneyddur nú, bauöst meira aö segja sjálfur til þess aö sjá myndina, þvi aöapriori hef ég gaman aö alls kyns hasarmynd- um. En þaö eru takmörk fyrir öllu. Blazing Magnum fjallar sem sé eins og aðrar myndir af þess- ari tegund um leit aö moröingja. Viö fáum venjulegan skammt af handtökum saklausra manna, af rannsóknum, sem komast I blindgötur, vegna þess aö Ut- gagnspunkturinn var rangur, af bllaleik, af „óvæntri” lausn málsins, af ofbeldi o.s.frv. Þaö er hins vegar ekki sama hvernig þessum klisjum er rað- aö niður I handritiö og hvernig unniö er Ut frá þeim. Hvaö þessa mynd varðar, er allt jafn klaufalega og viövaningslega gert. Þá er komið aö því hvernig leikstjóri vinnur Ur handriti þvl sem hann fær upp I hendurnar. Martin Herbert á greinilega margt eftir ólært I þeim efnum, og ef hann vill halda mannoröi slnu, ætti hann aö láta kvik- myndagerö alveg eiga sig, uns hann kann eitthvaö til verka. Þaö var eins og meö handritiö, ekkert nema klaufaskapur og fiatneskja. Stundum kemur fyrir aö góöur leikur bjargar einhverju I kvikmynd, þegar annaö bregst. Þaö ætti aö vera óþarfi aö segja þaö, en um slikt er alls ekki aö ræöa á þessum bæ. NU má vera, að sumum þyki ég of fúll Ut I þessa mynd, en hvernig má annab vera, þegar manni er ár eftir ár boöiö upp á sömu helv... ömurlegheitin i kvikmyndahúsum borgarinnar, og Borgarblóiö er ekki þaö eina seka. Er ekki kominn tlmi til þess aö þessir menn sjái áhorf- endum fyrir myndum sem eru boölegar sæmilega vitibornum manneskjum, eöa þá aö þeir snúi sér aö einhverjum öörum starfa. Meö þessu áframhaldi veröa kvikmyndagagnrýnendur brátt lagðir niöur, þvl maöur geturekki endalaust skrifaö um hvaöa dellu sem er, nema ein- hverja helv... dellu eins og þetta. Guö blessi kónginn. — GB

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.