Helgarpósturinn - 11.07.1980, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 11.07.1980, Blaðsíða 24
24 # Viö höfum áöur minnst á mögulegar breytingar á sterf- semi veitingahússins óöalsvegna minnkandi húspláss. Þann 1. júli s.l. rann út umsaminn leigutimi milli veitingahússins og Sam- vinnutrygginga, sem er eigandi stórs hluta húsrýmisins á annarri hæö óöals. Eins og kunnugt er vildu Samvinnutryggingar ekki framlengja leigutlmanum en nýta þetta húsnæöi á annan hátt. Hins vegar hefuróöal forleigurétt á þessu húsnæöi og þegar þaö spuröist aö Samvinnutryggingar hygöust leigja Landsýn — Sam- vinnuferöum þetta húsnæöi, þá þötti Oöalsmönnum sem veriö væri aö brjóta geröa samninga. Þeir hyggjast þvl leita til dóm- stólanna meö þetta mál og á meöan beöiö er eftir úrskuröi sitja þeir sem fastast og halda uppi óbreyttum veitingarekstri. Samvinnutryggingar munu nú vera búnar aö snúa viö blaöinu og segjast ekki ætla aö leigja húsplássiö út I framtiöinni heldur nýta þaö undir skjalageymslur. En málin eru sem sé ennþá I hnút og ennþá dunar þvi dansinn á 2. hæö óöals — á vægast sagt um- deildum gólffleti. # Þaö fer ekkert á milli mála aö eldurinn er þegar farinn aö krauma undir niöri I forystusveit ASl, enda skal þar kjósa nýjan forseta á þinginu 1 haust. Nokkrir hafa veriö nefndir til embættisins en hver kandldat viröist þó hafa sinn djöful aö draga. Þannig er þaö meö þá Björn Þórhallsson, formann Landssambands ísl. verslunarmann og Benedikt Daviösson, formann Félags byggingarmanna. Björn er ekki hæfur vegna þess aö hann er sjálfstæöismaöur og Benedikt vegna þess aö hann er fulltrúi hins svonefnda „uppmælingar- aöals.” Menn sjá þó lausn hjá Birni. Hann getur sagt skiliö viö Sjálfstæöisflokkinn en Benedikt á enga undankomuleiö. Ekki getur hann sagt sig úr lögum viö uppmælingaaöalinn.... 9 Ennþá ganga skreiöarút- flutningsmál ekki stórslysalaust fyrir sig. Islenska umboössalan, þar sem Bjarni Magnússonræöur rikjum sendi I malmánuöi Hvalvlkina meö fullfermi af skreiö niöur til Nlgeriu. Hvalvlk- in hefur ekki fengist losuö, þrátt fyrir hátt I tveggja mánaöa legu viö bryggju þarna niöur frá. Munu vera einhver vandamál I tengslum viö yfirfærslu á gjald- eyri sem skapa þetta ófremdar- ástand. Á þessu ári hafa bæöi Samlag skreiöarframleiöenda og SIS sent skreiöarfarma til Nigeriu og þá gengiö allt eins og I sögu. En islenska umboössalan lætur engan bilbug á sér finnaþrátt fyrir þessi vandamál víövlkjanai Hvalvlkinni og undir- býr nú aöra sendingu á Nlgeriu- hafnir... # Frá Akureyri berast þær fréttir aö hitaveitustjórinn þar, Gunnar Sverrisson, sé aö hætta og staöa hans hefur veriö auglýst laus til umsóknar. Gunnar var ráöinn hitaveitustjóri meö pomp og pragt fyrir aöeins þremur ár- um og ástæöan fyrir þvl hve skamman tima hann hefur enst I starfinu er sögö vera sú, aö for- veri hans Ingólfur Árnason, áhrifamaöur I bæjarmálum á Akureyri, kom þvi þannig fyrir aö hann var ráöinn formaöur stjórn- ar hitaveitunnar og hefur ekki viljaö sleppa hendinni af fram- kvæmdastjórninni. Gunnar á þvi aö hafa þótt ástæöulaust aö vera meö tvo framkvæmdastjóra hjá fyrirtækinu og kaus aö hætta...... Föstudagur n. júii i98c Ha/ijarpriczti irinn ' L Heitir og kaldir réttir frá 11,30-23,30 J Bautinn h/f Akureyri hefur V. opnað nýjan og glœsilegan fyrsta flokks matsölustað, Smiðjuna (Er i sama húsi og Bautinn) Bjóðum allar veitingar en þó fyrst og fremst úrvals mat og þjónustu YFIRMA TREIÐSL UMAÐ UR: Hallgrímur Arason YFIRÞJÓNN: Sigmar Pétursson * A kvöldin í sumar spilar Gunnar Gunnarsson og fleiri „dinnermúsik” Opið alla daga frá kl. 11.30 til kl. 14.00 og frá kl. 18.30 — Bautinn er opinn frá kl. 8-23.30 Morgunverðarhlaðborð frá kl. 8-10.30 M GRILL - CAFETERIA Hafnarstræti 92, Akureyri Sími 96-21818 SMIÐJAN restaurant Hafnarstræti 92, Akureyri Sími 96-21818 Kaupendur notaðra biia athugið! Allir notaðir MAZDA bilar hja okkur eru seldir með 6 mánaða ábyrgð. Takið ekki óþarfa áhættu, kaupið meöÖ6nmánAaZöaA BÍLABORG HF ábyrgð Smiöshöfða 23. sími 81299. # Onnur saga frá Akureyri, sem sýnir hvaö menn leggja á sig til aö losna viö samkeppnina. Þar voru i fyrra veitt tvö leyfi til næt- ursölu og gengu þau til Feröa- skrifstofu Akureyrar. sem GIsli Jónssonrekur, og Hótel Akureyr- ar. Báöar nætursölurnar gengu ágætlega en nú er aöeins nætur- sala feröaskrifstofunnar eftir, þvi aö Gisli Jónsson á aö hafa leigt nætursöluleyfi Hótel Akureyrar aöeins til aö halda þeirri nætur- sölu lokaöri. Og Gisli hefur gengiö lengra. Ekki alls fyrir löngu sótti maöur um leyfi til aö reka pylsu- vagn á Ráöhústorginu I Ásgeirs Hannesar Eirlkssonar stil. Hann fékk samþykki bæjarráös fyrir þvi en formsins vegna var leyfiö auglýst, þar sem maöurinn sótti formlega um auk annars um- sækjanda. Fyrrgreindi maöurinn fékk leyfiö en hins vegar er pylsu- vagninn ekki enn kominn á Ráö- hústorgiö. Þaö kom nefnilega á daginn aö GIsli Jónsson hefur leigt pylsuvagnsleyfiö af þeim sem fékk leyfiö á sinum tíma — væntanlega til aö sitja áfram einn aö pyslusölunni i nætursölu sinni... • Meöal starfsfólks hjá Flug- leiöum er veriö aö býsnast yfir þvi aö Siguröur Helgason, for- stjóri félagsins, skuli vera á lúxusreisu um viöa veröld á sama tlma og veriö er aö segja upp fjölda starfsmanna og félagiö sjálft er á heljarþröm... #Margir minnast þess aö upp kom mikil krlsa I slöustu rlkis- stjórn, þegar Kjartan Jóhanns- son, þáverandi sjávarútvegsráö- herra, neitaöi Noröfiröingum meö Lúövlk Jósepssonum lán úr fiskveiöasjóöi til aö kaupa nýjan togara. Noröfiröingarnir geröu sér þá lltiö fyrir og keyptu togarann meö lánum sem þeir útveguöu sér eftir öörum leiöum og gárungarnir gáfu þá togaran- um nafniö Lúövlk Baröi Kjartan. Nú heyrum viö hins vegar aö ekki hafi öll kurl veriö þar meö til grafar komin, því meö nýjum herrum og velviljaöri I ráöherra- stólum hafi máliö veriö tekiö upp aö nýju og Noröfiröingarnir séu eftir allt saman búnir aö fá fisk- veiöasjóöslániö, sem Kjartan vildi ekki veita þeim af þvi aö hann taldi nóg komiö af togurum. #Matthias Johannessen, Morg- unblaösritstjóri, er maður gamansamur. Hann hitti Erlend Einarsson, SlS-forstjóra i sam- kvæmi ekki alls fyrir löngu og fór óðar aö spyrja Erlend hvaö hæft væri I þeim orörómi sem þá gekk, um aö Erlendur ætti aö veröa næsti Seölabankastjóri. Erlendur haröneitaöi þessu, kvaöst hafa unnið I banka á sinum yngri árum og heföi ekki áhuga að fara i sllka stofnun aftur — hann vildi heldur vera innan um sitt fólk i Sambandinu. ,,Já, Erlendur minn,” sagöi þá Matthias. „Þú vilt auövitaö vera þar sem fjár- magniö er...” # Hermann Gunnarsson, iþróttafréttamaöur útvarpsins hefur haröneitaö aö fara á Ólympfuleikana i Moskvu, og er sagt aö ástæöurnar séu ekki stjórnmálalegs eölis heldur aö Hermann óttist aö missa sæti sitt I Valsliöinu sem nú stendur i toppbaráttunni á Islandsmótinu, ef hann fer I austurviking. Mun nú afráöiö aö Stefán Jón Hafstein fari til Moskvu en hann var ágætur Iþróttamaöur hér á árum áöur og hefur iöulega hlaupiö I skaröiö fyrir Hermann I Iþrótta- fréttunum... £ Akvöröun Andrésar Björns- sonar útvarpsstjóra um aö ráöa Helga Péturssonsem fréttamann útvarpsins fremur en Halldór Halldórsson hefur vakiö athygli. Halldór haföi meömæli Margrétar Indriöadóttur frétta- stjóra og þetta er i fyrsta skipti sem útvarpsstjóri gengur þannig gegn meðmælum fréttastjórans. Halldór hefur auk þess liölega tveggja ára starfsreynslu á fréttastofunni og er um leiö menntaöist fjölmiölamaöur okkar, þvl aö hann hefur nýlokiö MA-prófi I f jölmiölum frá háskóla i Bandarikjunum. Þetta þýöir þó ekki aö útvarpshlustendur fái ekki aö heyra I Halldóri, þvi aö hann var áöur búinn aö sækja um starf sem sumarafleysingamaöur á fréttastofunni og fékk þaö — án þess aö útvarpsráö geröi þar nokkrar athugasemdir viö...

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.