Helgarpósturinn - 06.03.1981, Page 24
ÓDÝR MUNAÐUR '
Helear-ogf gistiferóir
noróur á Akureyri ^Lj>^>
FLUGFAR, GISTING OG BÍLALEIGUBlLL
í EINUM PAKKA A TILBOÐSVERÐI
Helgarpakkinn
í helgarpakkanum felst flugfar
og gisting í 2—3 nætur auk
bílaleigubíls fyrir þá sem þess
óska.
Helgarpakkinn er ódýr munaður
fyrir þá sem vilja slappa af frá
grámyglu hversdagsleikans eða
lyfta sér upp og njóta Iffsins í
nýju umhverfi.
Helgarferð norður á Akureyri er
tilvalið tækifæri til að veita þér
og elskunni þinni notalega til-
breytingu eftir amstur og erfiði
vikunnar.
Þú festir öryggisbeltin og ert
kominn norður eftir 45 mínútur.
Hótel - Gisting
Við bjóðum upp á fjögur hótel,
þar af eitt í Hlíðarfjalli með
glæsilegri skíðaaðstöðu, skíða-
leigu, lyftum og brekkum við
allra hæfi. Tíðar áætlunarferðir
eru íHlíðarfjall úr miðbæ Akur-
eyrarsem taka aðeins um 15
mínútur.
Veitinga-og
skemmtistaðir
Þú ættir að geta raðað íþig
bæði mat og drykk fyrir norðan
og valið úr 8 veitingastöðum,
sem veita þér lipra og góða
þjónustu. Hægterað finna
skemmti- og dansstaði við allra
hæfi, frá diskói til gömlu dans-
anna.
Ýmiss þjónusta
Bílaleiga Akureyrar sendir þér
bíl á völlinn um leið og þú lendir
á Akureyri. Sérstök vildarkjör
með helgarpakka.
Sundlaug Akureyrar með heit-
um pottum og sauna er alltaf
jafn vinsæl. Gufu- og nuddstof-
an í Sunnuhlíð stjanar við þá
sem fá strengi eftir skíði eða
dansleikinn.
Leikhús
Leikfélag Akureyrar sýnir um
þessar mundir leikritið Skáld
Rósa.
Lukkuferð
Um leið og þú verður þér úti um
kynningarbækling um gistiferð
til Akureyrar ertu orðinn þátt-
takandi íhappdrætti um Lukku-
ferð norður.
Hafðu samband við söluskrif-
stofur okkar og tryggðu þér eintak.
Söluskrifstofur Flugleiða h.f.
Ferðaskrifstofan Úrval v/Austurvöll.
• Aðalfundur Flugleiða hefur
enn ekki verið formlega boðaður
og stjórnarformaðurinn örn ó.
Johnsonhefur gefið þær skýring-
ar að erfiðlega gangi að finna sal
undir fundinn. 1 viðskiptaheimin-
um er hins vegar brosaö af þess-
ari skýringu stjórnarformannsins
og sagt að aðrar og flóknari skýr-
ingar séu fyrir drættinum. Miklar
hræringar munu nefnilega vera
meöal hluthafa og sitthvað i að-
sigi. Eftir þeim fregnum sem við
fáum af þessum málum eru
valdahlutföll töluvert að breytast
innan Flugleiða um þessar mund-
ir og er staöan nú sem næst þessi:
Loftleiðaarminum svonefnda vex
stöðugt ásmeginn. Nú siðast
heyrist að Grétar Kristjansson
(sonur Kristjáns Guölaugssonar
fyrrum stjórnarformanns) og
Einarflugriki Sigurðssonsem áð-
ur studdu Sigurð Helgason og
hans blokk, séu nú gengnir til liðs
viö Loftleiðakjarnann gamla,
sem nú sé kominn með um
24—25% atkvæða hluthafa. Rikið
er með um 20% atkvæða og Eim-
skipafélagið með um 19% at-
kvæöa en 8—10% atkvæða eru
þess eðlis að þau skila sér aldrei á
aðalfundi vegna þess að handhaf-
ar þeirra eru dreifðir ýmist út um
land eða erlendis. Afganginn eða
um 25% atkvæöa eiga svo Sigurð-
ur Helgason og hans lið, þ.e. Klak
hf. og Flugfélagsarmurinn gamli.
Miðað við að bandalagið milli
Loftleiðaarmsins og rikisins
haldist á aðalfundinum þá er
þessi blokk komin með um og yfir
40% hlutafjár i Flugleiðum eöa
litlu minni en hluthafablokk Eim-
skipafélagsins og Klaks, sem
þýöir i raun að komin er upp þrá-
skákarstaða i stjórn félagsins.
Þetta hefur haft i för með sér, að
hinn striðandi öfl i félaginu hafa
nú byrjað alvarlegar samninga-
viðræður til að freista þess að
finna friðsamlega lausn á stjórn-
unarvandamálum félagsins og
munu þessar samkomulagsum-
leitanir standa yfir þessa dagana.
Eftir þvi sem við heyrum er nú
helsttalað um þá lausn að kjörinn
verði nýr stjórnarformaður og
jafnhliða tekin upp eins konar
þrieykisstjórn hjá félaginu á nýj-
an leik með þvi að mynduð verði
þriggja manna framkvæmda-
stjórn félagsins. t henni mun eiga
sæti Sigurður Helgason af hálfu
annarrar valdablokkarinnar
Martin Petersen koma inn að
nýju af hálfu Loftleiðaarmsins en
siðan verði þriðji maðurinn, sem
báðar blokkir geti sætt sig við,
eins konar stuðpúði milli þessara
tveggja stjórnenda. Mun hans
ákaft leitað um þessar mundir...
® t þessu sambandi: Það er
rangt sem komið hefur fram i
fjölmiðlun að þeir Lúðvik Jóseps-
son, fyrrum alþingismaður, og
Guðmundur G. Þórarinsson,
alþingismaður, verði fulltrúar
rikisins i hinni nýju stjórn Flug-
leiða. Lúðvik hefur lýst þvi yfir að
hann hafi ekki minnsta áhuga á
þvi að taka sæti i stjórninni og
innan Framsóknarflokks er alls
ekki afráöiö að það verði Guð-
mundur G. Þörarinsson en ekki
einhver annar sem taki sæti af
þeirra hálfu i stjórninni...
• Meira um Ftugleiðir. Við
heyrum að forsvarsmönnum þess
litist ekkert vel á fyrirhugað far-
þegaflug Sterling Airways hingað
til lands i sumar, enda mun það
áreiðanlega koma niður á
Norðurlandaflugi félagsins.
Sterling mun ráðgera að bjóða
fargjöld til og frá landinu sem
munu kosta innan viö 100 þúsund
gamlar krónur og hafa Flugleiöa-
menn farið þess á leit við sam-
gönguráðuneytið að þetta flug
verði stöðvað á þeirri forsendu að
um undirboð sé að ræða. Einhver
tregða mun þó vera hjá ráðuneyt-
inu að verða við þessari kröfu...
• En af þvi talað er um Lúðvik,
þá fer ekkert á milli mála að hann
unir hag sinum vel um þessar
mundir sem bankaráðsformaður
Landsbankans og laus við arga-
þrasið sem flokksformaður. Hann
hefur meira að segja fengið skrif-
stofuaðstöðu hjá Landsbankanum
og heldur þar til um þessar
mundir.
• Þorsteinn Einarsson iþrótta-
fulltrui mun láta af störfum hjá
rikinu einhvern tima i sumar sak-
ir aldurs. Búist er við að magir
muni hafa hug á þessu embætti
þegar þar að kemur en við heyr-
um að einn maður a.m.k. telji sér
bera þetta starf og er það Ingi-
mar Jónsson, doktor i iþrótta-
fræðum og núverandi forseti
Skáksambands Islands. Hann er
hins vegar Alþýðubandalagsmað-
ur en það er menntamálaráð-
herra, Framsóknarmaðurinn
Ingvar Gislason, sem veitir em-
bættið þegar þar að kemur...
• Beinn skjólstæðingur Ingvars
Gislasonar sækir hins vegar um
annað embætti, sem heyrir hins
vegar undir undirmenn ráðherra
— þ.e. útvarpsráð og útvarps-
stjóra. Það er sonur Ingvars —
Gisli að nafni sem mun vera með-
al hinna ellefu umsækjenda um
stöðu pródúsents hjá Lista- og
skemmtideild. Gisli mun hafa að
baki einhverja menntun I fjöl-
miðlafræðum...
® Miklar vangaveltur eru bæði
meöal blaðamanna og lögfróðra
manna um það á hvorn veginn úr-
skurður Hæstaréttar i máli Dag-
blaðsmanna muni falla. Blaða-
mannastéttin er almennt mjög
uggandi út af lyktum þessa máls
og hinir lögfróðustu menn þora
ekki að spá neinu um það hvernig
lyktir málsins verði fyrir hæsta-
rétti. Við höldum okkur hins veg-
ar hafa fyrir þvi nokkurn flugufót
að meirihluti hæstaréttardómara
sé þannig stemmdur að Dag-
blaðsmenn og þá blaðamanna-
stéttin i heild þurfi engu að
kviða...
• Við heyrum einnig að Anders
Hansen, blaðamaður og annar
höfunda Valdatafls i Valhöll sé
tekinn til við að skrifa nýja bók.
Hún mun fjalla um John Lennon,
hin nýlátna meistara poppsins og
verða einskonar ævisaga hans,
Bitlanna og fjalla um áhrif þeirra
hér á landi. Bókin verður og
vendilega myndskreytt með svip-
myndum úr lifi Lennons og ferli
Bitlanna. Anders mun kominn vel
á veg með þessa bók en endanleg-
ur útgáfudagur hefur ekki verið
ákveðinn. Útgefandi verður
Almenna bókafélagið....
• Og meðan við dveljum við fjöl-
miðlaheiminn. Við heyrum að
Gylfi Kristjánssonsé á förum frá
Visi og ætli að flytjast búferlum
til Akureyrar. Þar hafi hannráðið
sig hjá Landsmálablaöinu Degi
sem ætli jafnframt um þaö leyti
sem Gylfi kemur til liðs við það i
mai að fjölga útgáfudögum um
einn og taka upp 12 siðna helgar-
blað sem Gylfi á að veita for-
stöðu...
• Bilasala i fullum gangi var
auglýst til sölu á dögunum. Þetta
er Bilasala Eggerts við Borgar-
tún en Eggertætlar hins vegar að
skipta um starfsvettvang og
heyrum við að hann sé búinn að
kaupa Jóker-spilabúllurnar...
• Auglýsingaherferð
Verslunarmannafélags Reykja-
vikur hefur vakið töluverða at-
hygli, enda óvenjulegt, að laun-
þegafélag leggi út i slikt — jafnvel
þótt merkisafmæli séu á ferðinni.
Þess vegna eru þeir til sem vilja
leggja dýpri merkingu i þessa
herferð. Þeir hinir sömu minna á
að Magnús L. Sveinssonsé i senn
formaður og starfsmaður félags-
ins en hann er jafnframt sjálf-
stæðismaður og borgarstjórnar-
maður fyrir þann flokk. Þeir
minna lika á að bráðum er farið
að liða að prófkjörum fyrir borg-
arstjórnarkosningar og siðan sé
liklegt að eitthvað muni losna af
þingsætum hjá Sjálfstæðisflokkn-
um i næstu alþingiskosningum' og
að öllu þessu athuguðu reikna
þessir sömu menn út að Magnús
L. Sveinsson sé einfaldlega að
minna flokksbræður sina á að
hann sé forsvarsmaður einhverr-
ar stærstu launþegahreyfingar
þessa lands. Þvi beri honum áhrif
sem þvi nemur...
• Margt gamalt og gott verður
að láta undan siga á þessum sið-
ustu og verstu timum nýrrar
tækni. Þannig mun nú ákveðið að
hætta starfsemi elstu starfandi
ljósmyndastofunnar hér á landi —
Ljósmyndastofu Kaldals sem
Ingibjörgdóttir Jóns Kaldalshef-
ur rekið undanfarin ár. Stofan
hefur sérhæft sig i svart/hvitum
portrett-tökum og ekki viljað fara
inn á litmynda-markaðinn sem nú
er að verða allsráðandi. Er svo
komið að Ingibjörg telur ekki
starfsgrundvöll fyrir stofu sina
lengur...
® Við heyrum að Steinar Berg
hljómplötuútgefandi hjá Steinum
hf. sé nú i þann mund að stofna
nýtt hljómplötufyrirtæki i
Englandi með starfsmanni sem
eigi að hafa það hlutverk m.a. að
auðvelda islenskum poppurum
drauminn mikla — að komst inn á
hinn erlenda hljómplötumark-
i að...