Helgarpósturinn - 26.06.1981, Síða 10

Helgarpósturinn - 26.06.1981, Síða 10
10 Föstudagur 26. júní 19frl Að undanförnu hefur mikið verið rætt um varnar- og öryggis- mál bæði hér á landi og erlendis. Háværar raddir kveða sér nú hljóðs og krefjast að stigin verið raunhæfari skref til afvopnunar en Bandarikin og Sovétrikin hafa gert tii þessa. Nýjar og öflugri friðarhreyfingar taka til starfa allt frá Póllandi til Portúgal og setja fram kröfur um kjarnorku- vopnalausa Evrópu. 21. jiíni lagði friðarganga af stað frá Kaup- mannahöfn til Parisar m.a.tilað vekja athygli á kröfunni um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. Friðarrannsóknar- og öryggis- málastofnanir hafa ekki stækkað í réttu hlutfalli við útgjöld til her- mála, en þær gegna þvi vanda- sama hiutverki að fylgjast með þróun vígbúnaðar- og afvopn- unarmála. Á tslandi er af þessum stofnunum einna þekktust „Al- þjóða Friðarrannsóknarstofnunin í Stokkhólmi” SIPRI (Stockholm International Peace Reaserch In- stitut). SIPRI var sett á stofn 1 júli 1966 til minningar um 150 ára órofa frið i' Sviþjóð. Arlega út- hlutar sænska þingið SIPRIfjár- magni en aö öðru leyti er Friðar- rannsóknarstofnunin óháð stofnun sem lýtur stjórn alþjóð- legs starfsliðs. Þegar undirritaður var á ferð i Stokkhólmi fyrr i þessum mán- uði, eða um það leyti sem SIPRI gefur út ársskýrslu sina um vig- búnaðar- og afvopnunarmál, þótti tilvalið að taka hernaðarsérfræö- ingana tali og spyrja þá álits á varnarmálum Islands. Frank Barnaby fráfarandi forstöðu- maöur SIPRIbentistrax á Nýsjá- lendinginn Owen Wilkes sem er helsti sérfræðingur stofnunar- innar um öryggismál tslands og Noregs. Owen Wilkes hefur starf- að undanfarin þrjú ár hjá SIPRI, en þar áður starfaöi hann eitt ár hjá „Friðarrannsóknarstofnun- inni í Osló” PRIO (Peace Rea- search Institut Oslo). Owen Wilkes rekur hér hugmyndir sinar um mikilvægi tslands i kjarnorkuvopnakerfi Bandarikj- anna og hvernig öryggi tslands væri best tryggt. ísland hluti af kjarn- orkuvopnalausum Norðurlöndum — Um þessar mundir er mikið rætt um Norurlönd sem kjarn- orkuvopnalaust svæði. t þessari umræðu er oft vikið að þvi að ts- land sé utan þessa svæðis eða ætti að koma inn i þaö á siðara stigi. Hvað er þitt álit á þessu? Owen Wilkes: Mitt álit er að undir öllum kringumstæðum ætti tsland að vera hluti af þessari hugmynd um kjarnorkuvopna- laus Norðurlönd. öll rök sem styðja kjarnorkuvopnalaust svæöi í Danmörku, Sviþjóð, Nor- egi og Finnlandi vega jafn þungt hvað tsland varðar. Ég hygg að hugmyndinum öryggi,þ.e. að eitt land njóti meira öryggis með þvi aö hafa ekki kjarnorkuvopn og þannig ögra ekki Sovétrikjunum aö óþörfu, eigi fyllilega viö um ts- land. Ég held einfaldlega að þegar þessi hugmynd um kjarnorku- vopnalaust svæði kom fyrst fram i Finnlandi og siðan i umræðunni sem fylgdi i' kjölfarið þá hafi fólk einfaldlega gleymt tslandi, en það átti að sjálfsögöu ekki að gerast. — t viðtali við blaðamenn In- formation (sjá Þjóðviljann 25. mars 1981) setur Johan Galtung fram þá hugmynd að þetta kjarn- orkuvopnalausa svæði væri látið ná til fleiri rikja Evrópu og jafn- vel líka til Kanada. Er nokkur möguleiki fyrir Norðurlönd eða riki Evrópu að snúa Bandarikj- unum og Sovétrikjunum af braut vigbúnaðarkapphlaups? Owen Wilkes: Já, Ég hygg að i staö þess að veröa vigvöllur fyrir stórveldin þá ættu riki eins og ts- land sem eru staösett milli stór- veldanna aö reyna aö mynda verndarsvæöi (buffertzone) milli stórveldanna. Ef tækjaútbúnaður á tslandi er athugaöur i tengslum við kjarnorkuvopn, þá kemur strax I ljós aö hann gegnir mjög mikilvægu hlutverki i kjarnorku- striS. T.d. SOUS-kafbátahlust- unarkerfið (stöðin á Stokksnesi við Höfn i Hornafiröi' — innskot m.g.) sem njósnar úm sóvéska kjarnorkukafbáta og hjálpar til við að eyöa þeim. Ég áltt þvi aö þegar hugmyndin um kjarnorku- | vopnalaust svæði er sett fram þá verði hún aö fjalla um meira en staðsetningu kjarnorkuvopna. Hugmyndin verður einnig að ná til stjórnstöðva og radareftirlits- stöðva sem óhjákvæmilega tengj- ast kjarnorkustyrjöldum. Viðvöruuartækin i hönd- um landsmanna — Hvaða tækjaútbúnaöur á ts- landi tengist beint kjarnorku- styrjöldum? Owen Wilkes: Það eru til fjórar tegundir af kjarnorkuvopna- stöðvum. 1) Geymslustöðvar fyrir kjarn- orkuvopn. Pattersonflugvellir gætu verið ein af þessum geymslustöövum. 2) Stöðvar sem senda kjarn- orkuvopn. Flugvellir sem flug- vélar meö kjarnorkuvopn fljúga frá, hafnir sem kjarnorkukaf- bátar sigla frá o.fl. 3) Stjórnstöövar kjarnorku- vopna. Þetta á til dæmis við um radar og eftirlitsstöðvar sem fylgjast með kjarnorkukafbátum. 4) Tilraunastöðvar kjarnorku- vopna. T.d. svæði eins og á Kyrrahafinu þar sem Frakkar hafa verið aö sprengja kjarn- orkusprengjur i tilraunaskyni. A íslandi hygg ég að séu þrjár fyrstu tegundirnar af stöðvum. Eins og ég sagði áöan þá geta Pattersonflugvellir geymt kjarn- orkuvopn og það er þá tegund kjarnorkuvopnastöðva nr. 1. Keflavik getur gengt hlutverki flugvallar, sem flogiö er með kj arnorkuvopn frá og á timum kjarnorkuvopna striðs er ég sannfærður um að hann yrði not- aður og P3 Orionvélarnar yrðu notaðar til þess að fljúga með kjarnorkuvopn. Ég held aö besta dæmið um tegund kjarnorku- vopnastöðva nr. 3 á tslandi sé Loran C stöðin á Gufuskálum á Snæfellsnesi sem er einskonar stjórnstöð fyrir siglingar kjarn- orkukafbáta. Ég hef veriö að velta fyrir mér ákveönu vandamáli, sem ég von- ast til að geta fest á blað innan tiðar. Það er um það hvernig lönd eins og tsland geti komist hjá þvi að vera vigvöllur, en verði þess i stað verndarsvæði (buffertzone). Ef þessi viðvörunartæki s.s. SOSUS-hlustunarkerfið eru i höndum landsmanna sjálfra, undir þeirra stjórn og stjórnað þannig að þau séu öllum ibúum landsins opinn veröur mögulegt að hafa eftirlit með þvi hvort og hvenærannaðstórveldanna kæmi inn á þessi verndarsvæði. Ef hnattstaöan er athuguö virð- ist greinilegt að strið milli stór- veldanna yröi háð i nágrenni við tsland. Varnarstöðvarnar á ts- landi iFæreyjum, á Grænlandi og i Norður Kanada væri allar hægt að nota til að viðhalda friði, ef þessar þjóðir stjórnuðu þessum stöðvum sjálfar og opinberuðu allar upplýsingar sinar. Ef svo yrði, þyrfti e.t.v. að koma fyrir kerfi sem „tefur” birtingu upp- lýsinga þannig að ekki væri hægt að nota þærtil árása, heldur aö- eins til þess að gera fólki kleift að fylgjast meö þvi sem er að gerast. Sovétmenn hefðu hug á að eyða Keflavikurflug- velli — Nú er mikið rætt um þann möguleika aö hægt verði að heyja „takmarkaða” kjarnorkustyrj- öld. Gæti tsland eða nánasta um- hverfi þess orðið vigvöllur i „tak- markaðri” kjarnorkuvopnastyrj- öld? Owen Wilkes: t fyrsta lagi þá held ég að ekki sé raunsætt að tala um „takmörkuð” kjarnorku- vopnastrið. Ef kjarnorkustyrjöld brýst út þá held ég aö hún breidd- ist fljótlega út og yrði aö heims- styrjöld. Ég held reyndar að öll þessi umræða um möguleikana á „takmörkuöu” kjarnorkustriði hafi aðeins veriö komið af stað til þess að hægt væri að auka útgjöld tilframleiðslu á nýjum tegundum vopna. Ef „takmarkað” kjarnorku- striö hæfist, þá eru Sovétrikin búinundirútbreiöslu þess. Þó svo að Keflavfk væri ekki tengd þessu „takmarkaöa” kjarnorkuvopna- striöi, þá er hún ein af þeim stöö- um sem Sovétmenn hefðu áhuga á að eyöa áöur en striðið breiddist mikiö út, einmitt vegna þess hversu mikilvæg hún er fyrir Bandarikin. Keflavikurherstöðin er lika stöö sem Sovétrikin gætu eytt án þess að fórna svo miklu, og ekki er vist að fram kæmi krafa um hefnd. Ef „takmarkað” kjarnorkustrið stæði yfir þá væru fjölmiðlar svo upptÁnir af þvi, aö fólk i Bandarlkjunum tæki ekki eftir þvi aö Keflavik hyrfi af landakortinu. Sovétrikin hefðu sjálfsagt lika áhuga á aö eyða öðrum tækjabúnaði á tslandi s.s. SOSUS-kerfinu, þannig að þeir gætu sent kjarnorkukafbáta sina suður i Atlandshaf til að sökkva skipalestum sem væru á leið til og frá Evrópu. — Ef Sovétrikin sæju ástæðu til að varpa kjarnorkusprengju á Keflavikurstöðina telurðu að þeir noti svo stóra sprengju sem eitt megatonn (Hiroshima sprengjan varaðeins 12,5 kilotonn) eða held- urðu að þeir mundu notast við minni sprengjur? Owen Wilkes: Sovétrilkin gætu notað minni sprengju, hins vegar virðist svo vera sem Sovétrikin treysti mjög á öflugar sprengjur og þvi þykir mér ekki ósennilegt, að þeir hafi eina eins megatonna kjarnorkusprengju nú þegar stillta til að eyða Keflavik. — Hvernig breytist hernaðar- öryggi Bandarikjanna og Norður- landanna við það ef Norðurlöndin veröa kjarnorkuvopnalaust svæði? Owen Wilkes: Ég hygg aö kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd minnkuðu árásarhernaðarstyrk Bandarikjanna og NATO. Ef Bandarikin vildu t.d. gera árás á Sovétrikin þá er það augljóslega mikil hjálp aö geta flogið frá flug- völlum i' Noregi. Hins vegar held ég að kjarnorkuvopnalaus Norð- urlönd m innki ekki varnir Banda- rikjanna. Heildar varnir NATO minnkuðu heldur ekki. t þessu sambandi verður að athuga hvaða ástæðu Sovétrikin hafa til aö ráðast á Noröurlönd. Eina ástæðan er i rauninni sú aö hindra aö NATO nýti flugvelli og annan útbúnað sem hótun viö Sovétrik- in. Ef ráðist væri á Norðurlönd þá er sennilegt að þaö yrði gert með loftárás. Það er i rauninni mjög auðvelt aö verja Norðurlönd gegn loftárásum, með þvi að koma fyrir jaröföstu loftvarnar- eldflaugakerfi sem grandaði sprengiflugvélum. Þetta kerfi er aðeins til varnar og er aðeins hægt að nota þegar sprengjuflug- vélar koma fljúgandi inn yfir landið. Efhins vegar væru byggð- ir upp flugvellir þá er bæði hægt að nota þá til að verja landið en einnig til að gera árásir á önnur lönd. Þarna hafa Sovétrikin ástæðu til að eyöileggja flugvell- ina eða jafnvel reyna að ná þeim á sitt vald til þess að nota þá sjalf- ir. t þessu ljósu álit ég kjarnorku- vopnalaust svæði veiti jafn mikla vörn eins og svæði með kjarn- orkuvopnum. ísland á minna á hættu sem hlutlaust riki — Telurðu likur á þvi að Sovét- rikin reyndu að ná aðstööu á ts- landi ef Islendingar létu banda- riska herinn fara og ef þeir segðu skiliö við NATO? Owen Wilkes: Já, ég tel það mögulegt, en mér þykir samt ósennilegra að tslendingar gengju þeim á hönd þó þeir færu úr NATO. Siðari heimsstyrjöldin vekur oft athygli mina. T.d. ákvörðun tslendinga að vera hlutlausir og þaö að þeir álitu hlutleysi skyn- samlegustu og bestu vörnina i upphafi heimsstyrjaidarinnar. tsland var hertekið af Bretum og þannig dregið inn i styrjöldina. Ég held að sömu aðstæður riki enn i dag. Ég treysti ekki Sovét- rikjunum og jafnvel þó þeim væri treystandi i dag, þá er ekkert ör- yggi fyrir þvi að svo verði enn eft- ir 10 ár. Undir öllum kringumstæöum álit ég að tsiand eigi minna á hættu að verða fyrir árás eða inn- rás ef það er hlutlaust riki heldur en á meðan það er i NATO. — Hernaðaryíirvöld Bandarikj- anna svara aldrei spurningum um það, hvort þau hafi kjarn- orkuvopn á erlendri grund. 1 Jap- an var Bandarikjastjórn bannað að vera með kjarnorkuvopn á japösnku yfirráðasvæði, en Bandarikjastjórnir hafa snið- gengið þetta bann i fjölda árá og hafa haft kjarnorkuvopn I her- skipum sem liggja i japönskum höfnum og um borð I flugvélum sem staðsettar voru á japönskum flugvöllum. Telur þú likur á þvi að bandarisku herflugvélarnar sem koma reglulega til tslands i æfingarflugi, hafi kjarnorkuvopn um borð og yfirgefi tsland án þess að kjarnorkuvopnin séu nokkurn- tima tekin frá borði? Owen Wilkes: Samkvæmt grein Ðuncan Campell i nýlegu tölu- blaði New Statesman þá hafa bresku kafbátaflugvélarnar Nim- rod kjarnorkusprengjur innan- borös i reglubundnu eftirlitsflugi. Ég tel að fyrst að breski flugher- inn hefur kjarnaodda með á reglubundnu eftirlitsflugi sinu, þá sé afar sennilegt að bandariski herinn hafikjarnaodda iP 3 Orion vélunum á sínu reglubundna eft- irlitsflugi. Þannig er vel mögu- legt aö P 3 Orion flugvélarnar sem koma frá heimavöllum sin- um I Bandarikjunum til Keflavik- ur f reglubundnu flugi hafi kjarn- orkuvopn meðferðis sem höfð séu um borö i flugvélunum allan tim- ann. Ég hef enga sönnun fyrir þessu, hins vegar tel ég það mjög sennilegt. — Gegna AWACS flugvélarnar sem staðsettar eru á Keflavikur- velli þvi hlutverki að stjórna kjarnorkuherstyrk NATO á Norð- ur Atlantshafi? Owen Wilkes: AWACS flugvél- arnar sem eru staðsettar i Evr- ópu eða t.d. I V-Þýskalandi gegna mikilvægu árásarhlutverki t.d. við að stýra sprengjuflugvélum með kjarnorkuvopn gegnum loft- varnarkerfi Sovétrikjanna að réttum skotmörkum inni i Sovét- rikjunum . Svo lengi sem AWACS vélarnar fljúga frá Keflavik, þá held ég að þær gegni meira að- vörunarhlutverki en þvi hlutverki að stjórna árásarherjum. Hins vegar urðum við vitni að þvi að AWACS flugvélarnar i Keflavik voru fluttar til V-Þýska- lanris þegar ástandið i Póllandi fór að verða ótryggara og voru þá strax tilbúnar til að stjórna árásarherjum (agressive forces) sem eru búnir kjarnorkuvopnum. A þann hátt gegna AWACS vél- arnar i Keflavik árásarhlulverki. tsland ætti að losa sig við KeflavíkurherstöfF ina — Flotastyrkur Sovétrikjanna hefur aukist á undanförnum ár- um. Hafa Sovétríkin meiri flota- styrk á Norður Atlantshafi en NATO, eða stendur NATO jafn- fæös Sovétrfkjunum hernaðar- lega séö á þessu svæði? Owen Wilkes: Besta svarið við þessari spurningu er á þessa leið: Fólk hefur spurt bandaríska flotaforingja með hvorum hern- um þeir vildu heldur berjast, sovéska flotanum eða þeim bandariska. Bandarisku flotafor- ingjarnir svara þvi alltaf til, að þeir vildu heldur stjórna sinum eigin her. Ég er fullviss um að bandariski flotinn er sterkari þeim sovéska, sérstaklega þegar tekið er tillit til tæknilegra yfir- buröa. Auk þess er flugvélastyrk- ur m jög mikilvægur þegar borinn er saman flotastyrkur tveggja landa. NATO hefur mörgum og góðum flugvélum á að skipa eins og t.d. Orion og Nimrod flugvél- unum, sem er mikill stuðningur við herskipaflotann. NATO hefur þvi hernaðaryfirburði á Norður Atlantshafi. Sovéski flotinn hefur verið byggður upp, en styrkur hans byggir mikið á þvi að verja eld- flaugakafbátana. Þessi floti er einkum staösettur i Barentshafi og verkefni hans er aðallega að vernda eldflaugakafbátana gegn áreitni (penetration) NATO flot- ans. Sovéski flotinn hefur mjög sterkar kafbátavarnir og mark- mið þeirra er að eyða árásarkaf- batum óvinarins. Það er ekki mjög raunsætt að imynda sér aö sovéski flotinn getisiglti gegnum GIUK-hliðið og sökkt öllum skip- um á Norður Atlantshafi. k — Hvaöa ráð vildir | ) 12 þú gefa ts- Aðildin að NATO i sjálfu sér ekki hættuleg: EN ÍSLAND ÆTFIAD LOSA SIG WÐ KEFLA VÍKUR- HERSTÖDINA Rætt við Owen Wilkes, hernaðarsérfræðing Alþjóðlegu friðarrannsóknarstofnunar I Stokkhólmi Viðtal og mynd: Magnús Guðmundsson

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.