Helgarpósturinn - 26.06.1981, Side 13
Jie/garpásturinrL
Föstudagur 26. júrií 1981
Jassinn á misjöfnu gengi að fagna:
DATT NIÐUR í GAFLINUM
DUNAR ÁFRAM í DJÚPINU
Jörundur og Laddi senda ýmsum tóninn á Þórskabarett (mynd:
Jim Smart)
Þórskabarett um landið:
Nokkrar skemmtilegar
pólitískar bombur
Þótt ýmsar nýjungar i skemmt-
analifinu hafi blómstrað á höfuð-
borgarsvæðinu á undanförnu ári
þarf ekki að leita langt út fyrir
borgarmörkin til að sjá heldur
leiðinleg endalok á góðu fram-
taki. Þannig fór Gaflinn i Hafnar-
firði af stað með jasskvöld með
miklu pompi og prakti i fyrra-
sumar á svipaðan hátt og gert var
i D jiípinu i Reykjavik. En það var
stutt gaman. Þegar leið fram á
veturinn var aðsóknin orðin svo
dræm, að eigendur staðarins sáu
sér ekki lengur fært að halda
áfram þessari upplifgun á
skemmtanalifi Hafnfirðinga.
— Það sem gerðist var það, að
aðsóknin var góð i nokkur skipti,
fólki likaði þetta vel. Siðan dró úr
aðsókninni og að lokum stóð hún
ekki undir kostnaði, segir Jó-
hannes Sigvaldason yfirkokkur i
Gaflinum við Helgarpóstinn.
Reynsla þeirra Gafl-manna af
fleiri tilraunum til að auka fjöl-
breytnina er á svipaða lund.
— Við byrjuðum með kalt borð i
fyrrasumar, og það fór á sama
veg. Aðsóknin var góð til að byrja
með, en siðan dró úr henni. En
það er eins og þetta gangi i bylgj-
um. Við byrjuðum á kalda borð-
inu aftur um siðustu helgi, og þá
komust færri að en vildu, segir
Jóhannes.
Mönnum ber saman um, að
ástæða þessa sé meðal annars sú,
að Hafnfirðingum finnist stutt að
fara til Reykjavikur, en Reykvik-
ingar mikli fyrir sér að skreppa
tilHafnarfjarðar séu þeir ekki til-
neyddir. Otkoman er svipuð
þegar Hafnfirðingar panta sér
veislumat til að snæða i heima-
húsum. Þeir virðast flestir panta
matinn úr veitingahúsum i
Reykjavik, en 70% af veislumat
þeim sem útbúinn er i Gaflinum
fer til Reykjavikur og suður i
Sandgerði og Keflavik.
A meðan Hafnfirðingar eiga i
erfiðleikum með að halda úti
„hinum nýja stil” i skemmtana-
lifinu blómstrar hann i höfuð-
borginni.
Jasskvöldin i Djúpinu á
fimmtudagskvöldum virðast hafa
tryggt sér öruggan sess, og að
sögn Jakobs Magnússonar veit-
ingamanns eru nú uppi ráða-
gerðir um að fjölga þeim. Þeir
eru jafnframt að bæta veitinga-
aðstöðuna i'Djúpinu og lita svo á,
að tilraunatimabilinu, sem hófst i
fyrrasumar sé lokið.
— Aðsóknin dalaði að visu dá-
litið eftir áramótin eftir að viö
fórum að taka aögangseyri, en
hún náði sér aftur. En það var
nauðsynlegt að fara að selja inn,
annars hefði þetta ekki boriö sig,
segir Jakob.
Aðgangseyririnn er 25 krónur
og rennur óskiptur til hljóðfæra-
leikaranna. Afrakstur þeirra eftir
kvöldið fer þvi algjörlega eftir
aðsókninni, en að sögn Jakobs
sætta þeir sig fyllilega við það,
enda er stemmningin i Djúpin
yfirleitt góð og það meta jass-
leikararnir okkar mikils. ÞG
Þórskabarett bregður undir
sig betri fætinum og leggur upp í
landreisu um næstu helgi.
Kabarettinn skipa þeir sömu og
hafa sprellað i Þórscafe í vetur,
þeir Halli, Laddi og Jörundur,
ásamt þremur dönsurum úr ís-
lenska dansflokknum og hljóm-
sveitinni Galdrakörlum.
Fyrstu þrir staðirnir sem
kabarettinn heimsækir eru
Vestmannaeyjar, Höfn i Horna-
firði og Kirkjubæjarklaustur.
tbúar á hverjum stað fá að vita
af komu flokksins ömanlega,
þvi hann hefur látið gera kynn-
ingarbækling, sem hefur verið
prentaður i 40 þúsund eintökum,
og verður dreift á öll heimili i
búöir og sjoppur á hverjum stað
eftir þvi sem liður á ferðalagið.
— Það hafa komið hópar utan
af landi á kabarettinn um
hverja helgi i vetur, svo við höf-
um gert nokkrar breytingar á
honum samið nýja stutta þætti
um málefni liðandi stundar. Við
verðum meðal annars með þátt
um steinullarkjaftæöið, sem við
sömdum i slöustu viku. Hann er
þvi ferskur eins og ný ýsa, segir
Jörundur Guðmundsson viö
Helgarpóstinn.
Auk þess verða á dagskránni
nokkrir þættir frá i vetur, sem
þeim félögum finnst hafa tekist
svo vel, að ekki mætti sleppa
þeim. Þar á meðal er þáttur um
Flugleiðamálið og nokkrar
skemmtilegar pólitiskar bomb-
ur.
Skemmtiatriðin eru átján
talsins, þar á meöal splunkunýir
dansar dansflokksins og tvö at-
riði sem Galdrakarlar sjá um
einir. Það er lag i stil Andrew s
systra og dixielandlag. Kaba-
rettinn tekur rúman hálfan ann-
an tima, og á eftir leika Galdra-
karlar fyrir dansi.
Og að lokinni landsreisunni
lofar Jörundur þvi, að þeir taki
upp þráðinn að nýju i Þórscafé.
—ÞG
Jassað i Djúpinu
FYLGIST MEÐ
KEPPNINNI
SUMARSVEINN
HELGARPÓSTSINS
OG ÓÐALS. MJÖG
ÓVENJULEG OG
FRUMLEG KEPPNI Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ
ÓÐAL IALFARALEIÐ
ít,RqrrAFÉLOG,NN^R
^tÚBBAROGs—'ök
Næst þegar þarf að halda
veislu fyrir gesti ykkar
vegna heiinsóknar, mótslita,
eða bara til að knma saman,
þvi þá ekki að
leigja Hlöðuna.
• Hlaöan hentár prýðilega
öllum samkvæmum frá
16 -120 manns ogjafnvel
þaryfir. Þarerhægt að
fá allar veitingar, og við
útvegum alla
skemmtikrafta, ef óskaö er.
• Leitið upplýsinga I
siina 11620, og við
gerum ykkur tilboð
sem þið
gctiö ekki hafnað.