Helgarpósturinn - 26.06.1981, Side 15

Helgarpósturinn - 26.06.1981, Side 15
15 iB/garpásturinrL Föstudagur 26. júní 1981 er stofnað af einstaklingum eða félagasamtökum og hafa þeir fengið skipulagsskrár sinar stað- festar af dómsmálaráðherra. Til viðbótar eru svo til, ógrynni sjóða, sem hafa ekki staðfestar skipulagsskrár a.m.k. ekki stað- festar af ráðherra. Það eru ýmis konar sjóðir innan félagasam- taka, skóla og stofnana. Erfitt er að festa hendur á fjölda slikra sjóða, hvað þá að átta sig á nöfn- um þeirra og fjárhagsstöðu. Stað- festu sjóðirnir þurfa hins vegar allir að skila reikningum sinum til rikisendurskoðunar, sem yfir- fer þá og gerir athugasemdir ef ástæður þykja til. Þessir sjóðir hafa allir sinar sérstöku stjórnir. I spjalli við Halldór Sigurðsson rikisendurskoðanda og Jón Ólafs- son deildarstjóra hjá rikisendur- skoðun, kom fram, að illa gengur að fá þessa sjóði alla til að skila inn reikningum sinum á hverju ári. „Þetta getur verið ansi mikið basl,” sögðuþeir. „Oft þarf rikis- endurskoðun að senda sjóðunum mörg bréf, þar sem óskað er eftir endurskoðuðum reikningum sjóð- anna. Á siðasta ári, fengum við með eftirgangssemi reikningsyf- irlit 1000 sjóða, af þeim 1200 sem til eru”. Almennt eru þær ekki háar upphæðirnar sem liggja á reikn- ingum þessara opinberu sjóða. Samkvæmt siðustu Rikishandbók Islands, frá 1965 þar sem allir þessir opinberu sjóðir eru tiund- aðir, kemur i ljós, að upphæðirn- ar spanna allt frá nokkrum krón- um gömlum upp i nokkrar milljónir. Taka verður fram, að eflaust hafa sjóðirnir vaxið veru- lega frá 1965, og eru i dag, þannig öflugri i krónum talið, þótt verð- gildi þeirra flestra hafi á hinn bóginn vafalaust rýrnað i verð- bólgu siðustu ára. Drápuhliðarlegat frá 1654 Elsti sjóðurinn er frá árinu 1655 og heitir sá, Drápuhliðarlegat (gjöf séra Þorláks Bjarnasonar og konu) og var fjárhæö sjóðsins árið 1965, kr. 9000. Fleiri sjóðir voru stofnsettir á 17. öld, eins og Hamarslegat,' Reynislegat, Gjöf Þorláks biskups Skúlasonar (sá sjóður var að visu fluttur til Dan- merkur) og Vallholtslegat. Þessi sjóðalisti er auðvitað alltof langur til að hægt sé að ti- unda nöfn allra þessara 1200 sjóða, en ljóst er á þeim upphæð- um sem sjóðirnir flestir hafa yfir að ráða, að þeir eru i dag óhæfir til að fullnægja upphaflegum til- gangi. Það gerir fjármagnsleys- ið. Algengt mun vera að þeir sem til sjóðanna stofna, ákveði i skipulagsskrá þannig að t.d. presturinn, lögreglustjórinn og bæjarstjórinn á viðkomandi stað, skipisjóðsstjórn. Þegar sjóðurinn er orðinn nokkur hundruð ára gamall, þá er auðvitað ljóst að nokkrar kynslóðir presta, lög- reglustjóra og bæjarstjóra hafa fengið i hendur með þessum em- bættum, stjórnarsetu i viðkom- andisjóðum. Þess þekkjast dæmi meiraaðsegja, að embættismenn margir hverjir hafi ekki haft hug- mynd um það, þegar þeir tóku við embættum sinum, að starfinu fylgdi stjórnarseta i hinum og þessum sjóðum. Munu margir nýráðnir embættismanna hjá hinu upinbera eða sveitarfelög- um, hafa hrokkið við þegar þeir hafa fengib fréf frá rikisendur- skoðun og eru þar rukkaðir um reikninga sjóðs Jóns Jónssonar og konu hans Jónu frá Jónsstöð- um. En eitt er vist, að það er á færi hvers Islendings að stofna sjóð um sjálfan sig og nákomna, búa út skipulagsskrá, setja einhverja embættismenn i stjórn, láta ein- hvern pening i púkkið og tryggja þannig,að um aldur og ævi verði viðkomandi sjóður til á prenti i opinberum gögnum og þannig, að nafn viðkomandi manns lifi um ókomna tið. — Ódyr minnisvarði það, en varla mjög áberandi. Með þessu er þó auðvitað ekki verið að fullyrða að allir þeir gjafa- og minningarsjóðir sem stofnaðir hafa verið, séu grund- vallaðir á þvi einu að gefandi af hégómagirnd vilji halda nafni sinu á lofti um aldur og ævi. 1 langflestum tilvikum er tilgangur sjóðanna allt annar og betri. Sjóð- irnir eiga að stykria og styöia t.d. fólk sem á sárt um að binda, eða stendur höllum fæti i lifinu. Og mörgum þessum sjóöum hefur tekist að hjálpa og styðja þá sem minnimáttareru. Enflestir hinna eldri sjóða hafa hins vegar ekki staðist timans tönn — verðbólgu- tönnina — og eru þvi vanmáttugir imeira lagi i ætlunarverkum sin- um. Löggjöf um að leggja niður eða sameina Rikisendurskoðandi og deildar- stjóri hans, Halldór Sigurðsson og Jón Ólafsson.sögðu það allmikið og timafrekt verk hjá stofnuninni, að fara i gegnum reikninga allra þessara sjóða. Þeir sögðu jafn- framt að rikisendurskoðun hefði lagt til, fyrir meira en 10 árum, að dómsmálaráðherra legði fram frumvarp sem fæli i se'r heimild til að leggja niður ýmsa vanmátt- uga sjóði eða sameina sjóði, sem hefðu svipuð stefnumál i sinum skipulagsskrám. Þetta frumvarp hefur þó ekki enn orðið að veruleika og á meðan ný lög eru ekki sett um þessi mál, þá verður að viðhalda öllum þessum ara- grúa sjóða, þótt þeir séu engum til góðs — né ills, nema ef vera skyldi öll vinnan hjá hundruðum manna við að aistemma reikn- inga á hverju ár og siðan rikis- endurskoðunar að yfirfara alla súpuna. En staðreyndin er ljós: Islend- ingar hafa i gegnum tiðina verið duglegir við sjóðamyndun ýmiss- konar, ekki siður en hið opinbera og enn er ekkert lát á þessari þró- un, því á hverju ári bætast 20-30 nýir sjóðir i flokkinn. Önnumst kaup og sölu allra almennra veðskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla. Getum ávallt bœtt við kaupendum á við- skiptaskrá okkar. Góð þjónusta. — Reynið viðskiptin. E3 Venlliréfa - AlarluMliiriiiii Nýja húsinu v/Lækjartorg. 12222 Kynntu þér betur -*** r k L h > % Kyrr-, hæg- og hraðmynd — 3 glimrandi nýjungar frá Grundig. Nú ræður þú sjálfur ferðinni og getur sýnt myndina 3s var sinnum hægar til að fylgjast betur með framvindunni og stöðvað hana (á punktinum, ekkert hopp) ef þú vilt skoða eitthvert atvik nákvæmlega. Einnig getur þú sýnt á 3svar sinnum meiri hraða ef þú vilt renna hratt yfir ákveðin myndskeið eða ná fram sérstökum áhrifum. 8 stunda kassetta — Tvöfalt lengri á helmingi lægra verði pr. klst. Video2x4 plus ermeð kassettu sem hægt er að snúa við og gefur þá 2x4 klst. alls. Ekki nóg með það, heldur er hún einnig mun ódýrari pr. klst. Munurinn nemur allt að helmingi. APF — Sjálfvirkur myndleitari og minnistölva. Þú finnur efnið á methraða. Hann stoppar alltaf sjálfvirkt, við leit, þar sem upptökuskil eru og bregður upp kyrrmynd á skjáinn af stöðunni. Þú getur einnig stillt ákveðinn stað á spólunni inn á minni (memory) og fundið hann aftur á augabragði. Video 2X4 plus hefur 2umspólunar- hraða. DNS- þéttir útilokar truflanir ________ og eykur tónsvið og gæði. VIDEO Á hærra stiginu er hægt að Klllll^ umspóla 2x4 stunda kassettu á aðeins ----—---- 105 sek. Bandið er alltaf þrætt í stýringuna til að auðvelda alla leit. tækið okkar! Forriti fyrir 10 daga upptökutímabil. Þú ræður dagskránni sjálfur. Þú ert kannski víðs f jarri, í vinnu, sumarfríi eða lúrir bara á þínu græna á meðan GRUNDIG mynd- segulbandið þitt tekur sjálfvirkt upp 4 útsendingar á 10 dögum. Þú skoðar efnið þegar þér hentar. Fullkomin rafeindastýring — Tækið sér við mannlegum mistökum. Reimalaus fullkomin rafeindastýring tryggir eins einfalda notkun og værirðu að stjórna plötuspilara. Intermix Electronic rafrás útilokar að rangar stillingar og óvitaskapur geti skaðað tækið. Nokkrir aukapunktar um Grundig video 2x4 plus. Video2x4 plus erbúið skerpustillingu fyrir mynd. Það hefur alsjálfvirkan stöðvaveljara. Mynd og tóngæði eru eins og best verður á kosið. Síðast en ekki síst: Kjörin eru fyrir alla. Júnítilboðsverð á GRUNDIG 2x4 plus myndsegulbandi (ásamt einni átekinni kassettu) er: 21.900 kr. Skilmálar sem allir ráða við: 5.000 kr. út og eftirstöðvar á 7—10 mánuðum. Laugavegi 10 Sími: 27788 Þvíbetur sem þú kynnir þér myndsegulbönd því hrif nari verðurðu af Grundig2x4plus.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.